Skessuhorn - 02.08.2017, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 2. áGúst 20178
Fyrsta
frisbígolfmótið
REYKHÓLAHR: Fyrsta
frisbígolfmótið sem hald-
ið hefur verið á Reykhól-
um fór fram á nýjum velli
í Hvanngarðabrekku sl.
föstudag. Mótið var hluti af
dagskrá Reykhóladaga. Alls
voru 15 keppendur sem
tóku þátt í miklum vindi
sem gerði folfurum á köfl-
um erfitt fyrir. Fór að lok-
um svo að Alex bar sigur
úr býtum í barnaflokki en
Loftur í flokki fullorðinna.
Hlutu þeir báðir að laun-
um gjafabréf frá Frisbígolf-
búðinni.
-kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 22.-28. júlí
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes 4 bátar.
Heildarlöndun: 5.313 kg
Mestur afli: Ebbi AK:
1.606 kg í tveimur lönd-
unum.
Arnarstapi 4 bátar.
Heildarlöndun: 4.840 kg.
Mestur afli: Gestur sH:
1.838 kg í þremur löndun-
um.
Grundarfjörður 6 bátar.
Heildarlöndun: 153.890
kg.
Mestur afli: Helgi sH:
83.668 kg í tveimur lönd-
unum.
Ólafsvík 4 bátar.
Heildarlöndun: 3.661 kg.
Mestur afli: Kristján sH:
1.243 kg í einni löndun.
Rif 7 bátar.
Heildarlöndun: 26.729
kg.
Mestur afli: sæbliki sH:
12.108 kg í þremur lönd-
unum.
Stykkishólmur 19 bátar.
Heildarlöndun: 71.255
kg.
Mestur afli: Blíða sH:
16.549 kg í sex löndunum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Steinunn SF-GRU:
61.276 kg. 23. júlí.
2. Helgi SH-GRU:
45.708 kg. 23. júlí.
3. Helgi SH-GRU:
37.960 kg. 26. júlí.
4. Sæbliki SH-RIF:
6.163 kg. 26. júlí.
5. Saxhamar SH:
4.939 kg. 28. júlí.
-bþb
Guðjón Dalkvist Gunnarsson hef-
ur verið kjörinn íbúi ársins í Reyk-
hólahreppi. Efnt var til kosning-
unnar í tengslum við hátíðina
Reykhóladaga, sem fram fór um
síðustu helgi. Kallað var eftir til-
nefningum og var Guðjón Dalk-
vist, eða Dalli eins og hann er oft-
ast kallaður, einn þeirra sem fékk
flest atkvæði. Var það einróma
álit dómnefndar að Dalli væri vel
að sæmdarheitinu kominn. Var
hann því útnefndur íbúi ársins í
Reykhólahreppi 2017 fyrir „frum-
kvöðlastarf, hugmyndaauðgi,
hjálpsemi og jákvæðar ábending-
ar um það sem má bæta, og að sjá
skemmtilegu hliðar tilverunnar,“
eins og segir á Reykhólavefnum.
kgk
Guðjón Dalkvist Gunnarsson, eða Dalli eins og hann er oftast kallaður.
Dalli er íbúi ársins í Reykhólahreppi
Matvælastofnun Rússlands hef-
ur aukið eftirlit með innflutningi á
vörum frá niðursuðuverksmiðjunni
Akraborg á Akranesi. ástæðan er sú
að þungmálmurinn kadmíum fannst
yfir leyfilegum mörkum í niðursoð-
inni þorsklifur sem fyrirtækið seldi
til Rússlands. Fréttablaðið greinir
frá. Eftirlitið var aukið 18. júlí síð-
astliðinn og að því er fram kemur á
vef rússnesku matvælastofnunarinn-
ar voru þrjú sýni tekin. Akraborg er
enn heimilt að flytja vörur sínar til
Rússlands með því skilyrði að sýni
séu tekin úr öllum sendingum. Í
Fréttablaðinu er haft eftir Rolf Há-
koni Arnarsyni, framkvæmdastjóra
Akraborgar, að fyrirtækið sé að bíða
eftir frekari upplýsingum. Akraborg
er í eigu Lýsis og er stærsti fram-
leiðandi á niðursoðinni þorsklifur í
heiminum. Um tíu prósent af fram-
leiðslunni, tíu milljónir dósa af lif-
ur á ári, er flutt til tollabandalags
Rússlands, Hvíta-Rússlands og Ka-
sakstan. Rússneska matvælastofnun-
in sér um eftirlit fyrir ríkin þrjú.
Fram kemur í frétt Fréttablaðs-
ins að málið sé til skoðunar hjá Mat-
vælastofnun. Niðurstöður rann-
sókna frá Rússlandi verði greindar
og miðaðar við þau mörk sem unn-
ið er eftir hér. síðan verði brugðist
við eftir því hvað kemur út úr þeirri
skoðun MAst.
kgk/ Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Rússar auka eftirlit með vörum Akraborgar
Fimmtudaginn 27. júlí voru þrjú
skemmtiferðaskip staðsett í Grund-
arfjarðrahöfn. Mikill fjöldi ferða-
manna fór upp í rútur og tók hring
um snæfellsnes en einnig var tölu-
verður fjöldi af fólki sem rölti um
bæinn og út að Kirkjufellsfossi.
Bærinn var þétt setinn af ferða-
mönnum sem og gestum sem
streymdu að vegna bæjarhátíðar-
innar „á Góðri stund“.
tfk
Þrjú skemmtiferðaskip í Grundarfjarðarhöfn