Skessuhorn


Skessuhorn - 02.08.2017, Side 20

Skessuhorn - 02.08.2017, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 2. áGúst 201720 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Leiguakstur á Akranesi sem og á öllu Vesturlandi Ari Grétar Björnsson Sími: 864-2100 Email : taxar@simnet.is www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 Pennagrein Duglegir skátar skátar unnu sjálfboðastörf fyr- ir okkur í skógræktarfélagi Akra- ness tvo daga í síðustu viku, mið- vikudaginn 26. júlí og fimmtudag- inn 27. júlí. 15 manna hópur mætti fyrir hádegi fyrri daginn, annar 15 manna hópur eftir hádegi sama dag, þriðji 15 manna hópurinn mætti fyrir hádegi 27. júlí og loks mætti fjórði hópurinn (16 skátar) eftir há- degi þann dag. Allir hóparnir stóðu sig afar vel, skátarnir voru hörkuduglegir og ósérhlífnir. Þeir gróðursettu birki og fleiri tré, grisjuðu úr sér sprott- inn víði, settu niður ræsi og grófu ræsisskurði sem er hörku púl. Þá var njóli klipptur, tekið til og ým- islegt fleira. Hvergi var slegið af. Okkur sjálfboðaliðana í skógrækt- arfélaginu munar aldeilis um þessar hjálpsömu hendur. skátarnir voru frá hinum ýmsu Evrópulöndum, Kanada, Brasi- líu, Mexíkó, Hong Kong, Líbanon o.s.frv. Þeir voru fæstir vanir svona vinnu en fljótir og viljugir að læra og óhræddir við að óhreinka sig í ræsagerðinni og annari vinnu. Þrír fyrstu hóparnir unnu í slögu en síðasti hópurinn vann við þjóðveg- inn þar sem aðallega var grisjað og gróðursett. Nú er búið að gróðursetja öll 20 þús. tréin sem við fengum í sum- ar. skátarnir kláruðu að setja niður þau tré sem eftir voru. Skjátur skemma Raunar fengum við óvænt 5 manna skátahóp á föstudeginum. tilefnið var heldur leiðinlegt, rollur kom- ust í tré við Einbúann, kipptu upp og nöguðu nýgróðursett tréin. Við fengum skátana til að reka rollurn- ar. Þær fóru beinustu leið í gegnum gat á girðingunni að Ytra Hólmi. Lítil lömb komust í gegnum þetta gat fyrr í sumar en nú tróðust stærðar rollur þar í gegn. skátarn- ir aðstoðuðu við að loka gatinu og síðan við að taka til í gámnum. Allir brosandi og jákvæðir (þó þau væru berhent að kljást við gaddavírinn) þannig að maður gat ekki annað en glaðst með þeim þó rolluskját- urnar hafi óneitanlega spillt degin- um og valdið miklu tjóni. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem rollur kom- ast í tréin okkar í sumar, aðeins um viku fyrr komust nokkrar rollur í bakka með trjám sem biðu þess að vera settir niður í slögu. tjónið var töluvert: aspir, reyniviður og birki voru nöguð og tætt. Eins og þetta sé ekki nóg þá hafa rollur ítrekað komist inn í slögu með tilheyrandi skemmdum á gróðri og til ama þeim sem þar vilja njóta náttúrunnar. Bændur og hobbýbændur verða að sjá til þess að fé þeirra haldi sig á þeirra eigin landi en eyðileggi ekki fyrir öðrum. Við áhugafólkið í skóg- rækt sem viljum rækta upp land- ið eyðum allt of miklum tíma í alls konar rolluvafstur en eigendur fjár- ins virðast ekki nenna að hirða um það eða geta það. tryggja þarf að lög og reglur kveði á um að fólk beri ábyrgð á búfénaði sínum en geti ekki komist upp með að bera enga ábyrgð vegna tjóns sem dýrin valda. Sláttur og fleiri góðar fréttir Fyrir utan rolluvafstur eru mest góðar fréttir af skógræktarfélaginu. Við höfum verið afar dugleg að setja niður tré í sumar. Fyrir stuttu síðan sló Ingólfur Valdimarsson stígana okkar með ruddasláttuvél sem hann keypti nýlega. árum saman höf- um við átt í basli með að fá stígana slegna á viðráðanlegu verði og m.a. reyndum við að safna fyrir dráttar- vél í vetur. Ekki er sama þörf fyrir okkur að eignast slíkt tæki fyrst við fengum hagstæð kjör og rétt tæki hjá Ingólfi. Vél hans sló m.a. njóla- skóga eins léttilega og grasið. Þá bindum við miklar vonir við að fá meira land til að gróðursetja í. árum saman höfum við óskað eft- ir því, bæði við þjóðveginn og fyr- ir neðan slögu. Ef okkur tekst að fá meira land þá getum við stækk- að útivistarsvæði skagamanna um- talsvert. Fátt er eins heilnæmt fyr- ir bæjarbúa nútímans eins og að ganga, hlaupa nú eða hjóla úti í náttúrunni og njóta gróðursins og dýralífsins. Það hentar fólki á öll- um aldri og margir sem glíma við heilsubrest af einhverju tagi telja góðan göngutúr í náttúrunni gera þeim gott. Í lokin hvet ég sem flesta til að styðja okkur í skógræktarfélagi Akraness með því að ganga í fé- lagið, líka þá sem ekki treysta sér til að vinna líkamlega vinnu. Það munar líka um “andlega” stuðning- inn. Fylgjast má með fréttum af fé- laginu á heimasíðunni: http://www. skog.is/akranes/ Einnig á Facebooksíðunni: https://www.facebook.com/gro- ups/326273417742172/ Jens Baldursson formaður Skóg- ræktarfélags Akraness jensbb@internet.is Kraftmiklir skátar, skjátur skemma og fleiri fréttir

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.