Skessuhorn - 02.08.2017, Qupperneq 22
MIÐVIKUDAGUR 2. áGúst 201722
„Hvaða útivistarsvæði, á eða í
kringum Akranes, hefur þú nýtt
mest í sumar?“
Spurning
vikunnar
(spurt á Akranesi) Þriðji sigur-
leikur Kára í röð
Kári mætti Þrótti Vogum föstu-
daginn síðastliðinn í tólftu um-
ferð þriðju deildar karla í knatt-
spyrnu. Mikil barátta og harka
einkenndi leikinn sem var mik-
ilvægur þar sem bæði lið eru að
berjast í toppbaráttunni. Leik-
urinn endaði með 2-1 sigri
Kára sem hafa nú unnið síðustu
þrjá leiki. Mörk Kára skoruðu
Andri Júlíusson og Alexander
Már Þorláksson en mark Þrótt-
ar skoraði Hrólfur sveinsson.
Kári er eftir leikinn í vænlegri
stöðu í deildinni með 27 stig,
þremur stigum á undan KF
sem er í öðru sæti. Næsti leikur
Kára er svo toppslagur við KF á
Ólafsfjarðarvelli.
Bæði leikmenn Þróttar og
Kára borguðu sig á völlinn.
ástæðan var sú að allur ágóði
leiksins fór inn á styrktarreikn-
ing Héðins Mána, ungs drengs
úr Vogunum, en hann greind-
ist nýverið með krabbamein í
höfði. -bþb
Vandræði ÍA
halda áfram
árangur ÍA í fyrstu deild
kvenna í knattspyrnu hefur ver-
ið langt undir þeim vænting-
um sem gerðar voru fyrir mót.
Liðið mætti Keflavík föstudag-
inn síðastliðinn í tólftu umferð
fyrstu deildar kvenna og lauk
leiknum með 2-1 sigri Kefla-
víkur. Birgitta Hallgrímsdótt-
ir og sveindís Jane Jónsdótt-
ir skoruðu mörk Keflavíkur en
Bergdís Fanney Einarsdóttir
mark skagakvenna. ÍA er eftir
leikinn í sjöunda sæti með fjór-
tán stig. ÍA lék gegn HK/Vík-
ing í gærkvöldið og var leik ekki
lokið þegar fréttin var skrifuð.
-bþb
Víkingur tapaði
gegn HK/Víking
Víkingur Ólafsvík mætti liði
HK/Víkings föstudaginn síð-
astliðinn í elleftu umferð fyrstu
deild kvenna. Víkingur hefur
verið í erfiðleikum það sem af
er tímabili og halda þeir áfram
eftir 2-0 tap gegn HK/Vík-
ing. Mörk HK/Víkings skor-
uðu Ragnheiður Kara Hálfdán-
ardóttir og Margrét sif Magn-
úsdóttir. Víkingur er eftir leik-
inn í næstneðsta sæti með sjö
stig en aðeins markatala skil-
ur liðið frá tindastól sem er í
því neðsta. Næsti leikur Vík-
ings er í kvöld klukkan 19:15 á
heimavelli gegn Þrótti Reykja-
vík. -bþb
Aron Ýmir
aftur í ÍA
Aron Ýmir Pétursson sneri aftur
til ÍA fyrr á þessu ári eftir fjög-
urra ára dvöl í öðrum félögum.
Hann var svo lánaður til Kára
rétt fyrir tímabilið en hefur nú
snúið aftur í herbúðir skagans.
Aron getur leyst báðar bakv-
arðarstöðurnar og býr yfir tölu-
verðri reynslu en hann á að baki
142 leiki í meistaraflokk, flesta í
efstu deild og þeirri fyrstu. -bþb
Flemming Jessen hélt sitt árlega
púttmót á Hvammstanga síðast-
liðinn föstudag. Leiknar voru 2 x
18 holur, alls 36 holur. Mótið gekk
vel, en veður var heldur leiðinlegt.
Þátttakendur voru alls 38 frá hin-
um ýmsu stöðum og hefur þátttaka
aldrei verið meiri, en mótið hefur
verið haldið árlega frá 2011. Völl-
urinn var frekar erfiður en batnar
þó með hverju ári.
Mótsstjóri var Flemming Jessen
en um skráningu, útreikning, ljós-
myndum, veitingar og verðlaunaaf-
hendingu sáu Elín Jóna Rósinberg,
Kristianna Jessen, Kristín Ingibjörg
Baldursdóttir og Þórdís Benedikts-
dóttir.
Helstu úrslit mótins urðu eft-
irfarandi:
Karlar
Kári Bragason, Hvammstanga
73 högg / bráðabani
sveinn Hallgrímsson, Borgarbyggð
73 högg / bráðabani
Jón Þór Jónasson, Borgarbyggð
74 högg / bráðabani
Guðmundur Bachmann,
Borgarbyggð
74 högg / bráðabani
16 ára og yngri spiluðu 1 x 18
holur
Orri Arason, Hvammstanga
42 högg
Ari Karl Kárason, Hvammstanga
48 högg
Viktor sigurbjörnsson ,
Hvammstanga 52 högg
Helgi Freyr Hjaltason ,
Hvammstanga 58 högg
Konur
Þóra stefánsdóttir, Borgarbyggð
76 högg
María Gísladóttir, Ísafirði
79 högg /bráðabani
Hugrún Þorkelsdóttir,
Borgarbyggð
79 högg /bráðabani
Jytta Juul, Borgarbyggð
79 högg /bráðabani
fj/kgk
Víkingi Ólafsvík hefur gengið ágæt-
lega í Pepsideildinni að undanförnu.
Víkingur mætti á mánudaginn KR í
Frostaskjóli. Víkingur var fyrir leik-
inn tíunda sæti með þrettán stig en
KR í því fimmta með sautján stig.
Með sigri í leiknum hefði Víkingur
getað slitið sig frá botnbaráttunni,
um tíma í það minnsta. Leikurinn
var hin mesta skemmtun en lauk
með 4-2 sigri KR.
KR hóf leikinn af krafti og var
um algjöra einstefnu að ræða í fyrri
hálfleik. á 20. mínútu braut Alex-
is Egea á tobias thomsen, sóknar-
manni KR, inni í teig Víkings og
vítaspyrna dæmd. tobias fór sjálfur
á vítapunktinn og skoraði. KR hélt
áfram að stjórna leiknum í fyrri hálf-
leik og bættu við öðru marki á 39.
mínútu þegar Finnur Orri Margeirs-
son átti frábæra sendingu inn í teig
á Aron Bjarka Jósepsson sem skall-
aði í mark Víkings. staðan 2-0 í hálf-
leik og ekkert útlit fyrir endurkomu
Víkings.
síðari hálfleikur var heldur betur
fjörugur og Víkingur náði að jafna
metin þvert á gang leiksins. Fyrra
markið skoraði Kwame Quee á 60.
mínútu úr fyrsta alvöru færi Víkings
í leiknum og Víkingur skyndilega
kominn inn í leikinn. Um korteri
seinna fór Guðmundur steinn Haf-
steinsson illa með vörn KR áður hann
skaut í stöngina og inn. Guðmundur
hefur verið iðinn við markaskorun að
undanförnu. Allt stefndi í jafntefli en
á síðustu tíu mínútum leiksins skor-
aði KR tvö mörk. André Bjerreg-
ard, ný leikmaður KR, átti hörku-
skot að marki Víkings á 81. mínútu
sem Cristian Martínez átti ekki roð
í og kom því KR yfir. skömmu síð-
ar kláraði Óskar Örn Hauksson leik-
inn fyrir KR með snyrtilegu marki.
Lokatölur 4-2 og Víkingur enn í
botnbaráttu deildarinnar.
Víkingur á næst leik miðviku-
daginn 9. ágúst á heimavelli gegn
Grindavík.
bþb
Víkingur tapaði í spennandi leik
Úr leik Víkings og ÍA fyrr í sumar. Ljósm. af.
Flemming-púttið var haldið
á Hvammstanga
Karvel Lindberg Karvelsson
„Akrafjall, ég hef reynt að fara
nokkrum sinnum í sumar.“
Márus Líndal Hjartarson
„Motocross-brautina.“
Hafsteinn Kjartansson
„Klapparholt.“
Sóley Sævarsdóttir
„Gönguleiðina að Berjadalsá.“
Sigrún Þorbergsdóttir
„skógræktina, ekki spurning.“