Skessuhorn - 30.08.2017, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGúST 2017 5
VEISLA Á
VESTURLANDI
Matarauður Vesturlands leggur áherslu á mat og matarupplifun í október.
Við viljum hampa vei�ngahúsum sem bjóða upp á mat úr héraði. Hvetja fólk �l að
heimsækja framleiðendur og matarmarkaði og beinum kastljósinu að þeim viðburðum
sem tengdir eru menningu og mat í október.
Við birtum dagskrá fyrir „Veislu á Vesturlandi“ og kynningu á þeim aðilum sem taka þá�
í �öldreifðu Skessuhorni í lok september.
Vertu með á nótunum og taktu þá� í veislunni!
Þeir sem vilja taka þá�, vei�ngahús, framleiðendur, matarmarkaðir og aðrir aðilar sem vilja efla
matvælaframleiðslu, fullvinnslu hráefnis í héraði, sölu beint frá býli, hráefnisnotkun úr heimahéraði á
vei�ngastöðum og matartengda upplifun á Vesturlandi, er bent á að hafa samband við verkefnisstjóra,
Signýju Óskarsdó�ur, signy@creatrix.is.
Skráningarfrestur er �l 15. september.
O
K
T
Ó
B
E
R
2017
Í næsta mánuði taka til starfa tveir
samráðshópar á vegum Akranes-
kaupstaðar. Annars vegar starfs-
hópur um málefni fatlaðra ein-
staklinga og hins vegar samráðs-
hópur um málefni íbúa af erlend-
um uppruna á Akranesi. „Að-
dragandi þessara starfshópa er sá
að Akraneskaupstaður samþykkti
mannréttindastefnu þar sem mælt
var fyrir að samráð skyldi haft við
jaðarhópa samfélagsins um mál-
efni sem þá snertir. Það hefur tek-
ið tíma að þróa stefnu og markmið
þessara hópa auk þess sem við höf-
um verið að kynna okkur hvernig
aðrir hafa staðið að slíkum hópum
og hvaða lærdóm við getum dreg-
ið af þeim. Í sumar auglýstum við
svo eftir tilnefningum eða áhuga-
sömum einstaklingum til þess að
taka sæti í þessum samráðshópum
og nú hefur verið fyllt í öll sætin,“
segir Svala Hreinsdóttir, sviðstjóri
velferðar- og mannréttindasviðs
Akraneskaupstaðar, í samtali við
Skessuhorn.
Markmið hópanna er að vera
Akraneskaupstað til ráðgjafar í
málefnum sem snerta þá, fylgjast
með stefnumótun og þróun hug-
myndafræði er varða þjónustu við
hópanna. Þá geta hóparnir gert
tillögur að breytingum á þjónustu
sveitarfélagsins, haft samráð við
þjónustuþegana, hagsmunaaðila
og íbúa sveitarfélagsins um mál-
efni þeirra.
Búið að skipa í hópana
Þeir sem taka sæti í hópunum eru;
Freyr Karlsson, Borghildur Birg-
isdóttir, Böðvar Guðmundsson,
Sigríður Margrét Matthíasdóttir
og Sólveig Sigurðardóttir í mál-
efnum fatlaðra og Stephen John
Watt, Bakir Anwar Nassar, Emilia
Teresa Orlilta, Adriana Monika
Malczyk og Uchechukwu Michael
Eze í málefnum íbúa af erlendum
uppruna. Allt eru þetta einstak-
lingar sem málefnin snerta beint.
Í hópnum um málefni fatlaðra eru
þrír fatlaðir einstaklingar auk full-
trúa aðstandanda fullorðins not-
anda þjónustu Akraneskaupstað-
ar og fulltrúa aðstandenda barns.
Allir í hópnum um málefni íbúa af
erlendum uppruna eru af erlend-
um uppruna. „Við viljum vera í
beinum tengslum við þá sem mál-
ið varðar og gefa þeim rödd í um-
ræðu um þeirra málefni en að lok-
um er ákvörðunin alltaf tekin af
þeim sem eru í forystu fyrir bæjar-
félagið á hverjum tíma. Þetta eru
allt ólíkir einstaklingar með mis-
munandi skoðanir og sýn á hlut-
ina. Það voru ekki sett nein skil-
yrði í hópana, ekki einu sinni ís-
lensku kunnátta í samráðshópi
fólks af erlendum uppruna svo
við eigum eftir að útfæra á hvaða
tungumáli fundirnir fara fram á,“
segir Svala.
Starf Ungmennaráðs
gefið góða raun
„Við vonumst til að eiga gott
samstarf við hópana og þeir fái
málefni til umfjöllunar og hafi
einnig frumkvæði að því að taka
mál upp sjálfir. Reikna má með
að fyrsti og jafnvel næstu fund-
ir fari í að ræða erindisbréfin og
hvaða málefni þeir vilja ræða og
taka fyrir. Við munum nýta okk-
ur í þessu samráði þá reynslu sem
byggst hefur upp með starfi Ung-
mennaráðs sem hefur verið starf-
andi í allmörg ár á Akranesi og
gefið góða raun. Á næstunni mun
starfshópur um samráð og stefnu-
mótun í málefnum aldraðra skila
tillögum um hvernig samráð við
eldri borgara geti verið háttað
á Akranesi. Vonandi verður þá
fjórði samráðshópurinn stofnað-
ur innan tíðar. Það er jákvætt að
sem flestir fái rödd og stjórnvöld
heyri allar hliðar málsins,“ segir
Svala að endingu.
bþb
„Það er jákvætt að sem flestir fái rödd og
stjórnvöld heyri allar hliðar málsins“
Samráðshópar um málefni fatlaðra og íbúa af erlendum uppruna taka til starfa á Akranesi
Ert þú
áskrifandi?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is