Skessuhorn - 30.08.2017, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGúST 2017 13
Tónlistarskóli Borgarfjarðar 50 ára
Fimmtudaginn 7. september mun skólinn bjóða upp á:
Hádegissnarl í skólanum, Borgarbraut 23, Borgarnesi, kl. 12:00
Velkomið að fylgjast með kennslu allan daginn
Tónleikar í Borgarneskirkju kl. 20:00, þar kemur fram tónlistarfólk sem útskrifast hefur frá skólanum
Tónlistarskóli Borgarfjarðar ÞÉR ER BOÐIÐ Í AFMÆLI
Verið velkomin,
skólastjóri
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Mikil veðurblíða var á Snæfells-
nesi fyrrihluta síðustu viku. Voru
því margir útivið til þess að njóta
hennar. Börn og eldra fólk var á
göngu jafnt í þéttbýlinu sem úti í
náttúrunni. Börnin á meðfylgjandi
mynd voru að leik í Hvalsá. Á hinni
myndinni er starfsfólk dvalarheim-
ilisins Jaðars með eldri borgara í
gönguferð. Allir fengu sér ís í þess-
ari gönguferð um Ólafsvík.
af
Fólk naut
veðurblíðunnar
Síðastliðinn laugardag voru tvær
stuttmyndir, sem framleiddar voru
af Skagamönnum og að mestu tekn-
ar upp á Akranesi, sýndar fyrir að-
ila tengda myndunum í Bíóhöll-
inni á Akranesi. Myndirnar sem um
ræðir eru Áhrif eftir Skagamann-
inn Ísak Mána Sævarsson og Eng-
ir draugar eftir Ragnar Snorrason
og framleidd af framleiðslufyrir-
tækinu Muninn sem starfrækt er á
Akranesi.
Áhrif er forvarnarmynd um skað-
semi ölvunaraksturs og var mynd-
in styrkt af Minningarsjóði Lovísu
Hrundar. Myndin sigraði í stutt-
myndakeppni framhaldsskólanna
fyrr á árinu en Ísak leikstýrði og
skrifaði handrit að myndinni auk
þess að taka hana upp og grófklippa.
Skagamaðurinn Sigurður Ingvar
Þorvaldsson sá um hljóðvinnslu.
Engir draugar eftir Ragnar
Snorrason var tekinn upp fyrir ári
síðan að mestu á Akranesi þar sem
m.a. var sett upp leikmynd í Sem-
entsverksmiðjunni en um það sá
Sara Hjördís Blöndal. Hópur-
inn sem kom að myndinni stóð að
stórum hluta saman af Vestlend-
ingum en Skagamaðurinn Heiðar
Mar, eigandi framleiðslufyrirtæk-
isins Munans, framleiddi mynd-
ina, Hólmarinn Guðlaugur Ingi
Gunnarsson sá um hljóðið og tvö
af stórum hlutverkum myndarinn-
ar voru leikin af Skagamönnunum;
Sindra Birgissyni og Jóel Jóhannes-
syni. Engir draugar fer nú á ferða-
lag um heiminn á kvikmyndahátíðir
og hefst ferðalagið á RIFF í Reykja-
vík, Nordisk Panorama í Malmö
og Canberra Short Film Festival í
næsta mánuði. bþb
Kvikmyndaframleiðsla af Akranesi
sýnd í Bíóhöllinni um liðna helgi
Hér eru þau Sindri Birgisson og Lísbet Freyja Ýmisdóttir sem fóru með aðalhlut-
verk í myndinni „Engir draugar“ við frumsýningu í Bíóhöllinni um helgina. Ljósm:
Páll Guðjónsson.