Skessuhorn - 03.01.2018, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 1. tbl. 21. árg. 3. janúar 2018 - kr. 750 í lausasölu
Lúsina burt!
Augndropar!
www.landnam.is - landnam@landnam.is
Sími: 437 1600
Auður djúpúðga
sýningar
Sýningar í febrúar
laugardagur 10. kl. 16:00
sunnudagur 11. kl. 16:00
sunnudagur 18. kl. 16:00
Uppselt
í janúar
Miðpantanir:
landnam@landnam.is
sími 437-1600
20 ÁR
Besta bankaappið
á Íslandi
Samkvæmt könnun MMR
Fyrsta barn ársins á Heilbrigðis-
stofnun Vesturlands á Akranesi
kom í heiminn að kvöldi nýársdags
klukkan 22:16. Var það myndar
stúlka sem vó 3.822 grömm og er
52 sentímetrar að lengd. Stúlkan
er búsett í Reykjavík en foreldr-
ar hennar eru þau Karlotta Maria
Scholl úr Borgarnesi og Morgan
Walford sem kemur frá Ameríku.
Stúlkan er fyrsta barn foreldra
sinna og að sögn móður hennar
gekk fæðingin mjög vel. „Settur
dagur var 22. desember svo hún
lét okkur bíða í tíu daga, en þegar
kom að þessu gekk allt mjög vel.
Það voru engir erfiðleikar í fæð-
ingu og allt eins og það átti að
vera,“ segir Karlotta. „Ég er líka
alveg búin að jafna mig og sú litla
er enn sem komið er bara mjög
vær og góð, alveg fullkomin,“
bætir hún við og brosir.
arg
Fyrsta barn ársins
fæddist á nýársdag
Fyrsta barn ársins á HVE ásamt foreldrum sínum, Morgan Walford og Karlottu
Mariu Scholl.
Frá upphafi útgáfu hefur Skessu-
horn staðið fyrir útnefningu á Vest-
lendingi ársins. Valið fer þann-
ig fram að kallað er eftir tilnefn-
ingum íbúa um þá sem þykja verð-
ugir þess að hljóta þetta sæmdar-
heiti fyrir árangur í starfi eða leik.
Að þessu sinni bárust tilnefningar
um 32 einstaklinga. Vestlendingur
ársins 2017 er Svavar Garðarsson í
Búðardal í Dalabyggð. Hlaut hann
fjölda tilnefninga. Einkum er nefnt
að hann hefur lagt fram hundr-
uði klukkustunda í sjálfboðastarfi
við að fegra og bæta umhverf-
ið á heimaslóðum. Hann lagfærir
og hreinsar opin svæði og er öðr-
um íbúum hvatning. Í haust beitti
hann sér fyrir því að selir úr Hús-
dýragarðinum yrðu fluttir í laug í
Búðardal. Þar fóðrar hann selina
og undirbýr þá til að komast í sjó í
sitt náttúrulega umhverfi.
Þeir sem urðu í tíu næstu sætum í
kjöri á Vestlendingi ársins eru:
Andrea Björnsdóttir á Eystri-
Leirárgörðum (Vestlendingur árs-
ins 2016), Anna Dröfn Sigurjóns-
dóttir Kvíaholti á Mýrum, Guð-
mundur Smári og Runólfur Guð-
mundssynir í Grundarfirði, Guðrún
Jónsdóttir safnstjóri í Borgarnesi,
Ingólfur Árnason framkvæmda-
stjóri á Akranesi, Jósep Ö Blöndal
læknir í Stykkishólmi, Máni Hilm-
arsson hestamaður í Borgarnesi,
Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur á
Akranesi og Þórður Gylfason veit-
ingamaður á Akranesi.
Skessuhorn óskar öllu þessu fólki
til hamingju. Rætt er við Svavar
Garðarsson Vestlending ársins á
miðopnu.
mm
Svavar Garðarsson er Vestlendingur ársins 2017
Svavar Garðarsson í Búðardal með verðlaunagrip og blóm frá lesendum Skessuhorns. Ljósm. sm.