Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2018, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 03.01.2018, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 3. JAnúAR 201812 Venju samkvæmt gengst Skessuhorn fyrir útnefningu á Vestlendingi árs- ins, en sú hefð hefur haldist óslit- ið frá upphafi blaðsins árið 1998. Valið fer þannig fram að kallað er eftir tilnefningum íbúa um þá sem þeim þykja verðugir þess að vera sæmdir nafnbótinni fyrir árangur í leik eða starfi. Að vanda bárust fjöl- margar tilnefningar en engu að síð- ur var snemma ljóst í hvað stefndi. Vestlendingur ársins 2017 er Svav- ar Garðarsson í Búðardal. Er hann tilnefndur fyrir óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins með því að hafa um árabil unnið í sjálfboðastarfi við umhverfisbætur í og við Búðardal. Á liðnu ári hafði hann einnig frum- kvæði að því að tveimur kópum úr Fjölskyldu- og Húsdýragarðin- um var komið í tímabundið fóst- ur í Búðardal. Hefur hann hugsað um selina frá því þeir komu fyrst í bæinn á liðnu hausti. nýjustu íbúar bæjarins, kóparnir tveir, hafa vakið mikla athygli gesta og gangandi og hefur Svavar fengið mikið hól fyrir framtakið. Skessuhorn hitti Svavar milli jóla og nýárs, á köldum en fal- legum degi í Búðardal. „Þegar mér var tilkynnt að ætti að sæma mig þessari nafnbót hugs- aði ég: „Hvur andskotinn“,“ segir Svavar og brosir. „En ég er engu að síður ákaflega þakklátur Vest- lendingum fyrir að hafa veitt því sem ég er að gera athygli og sýnt mér þann heiður að tilnefna mig til þessarar nafnbótar. En um leið er rétt að benda á að það geta allir gert það sem ég hef verið að gera, það er að segja tekið til hendinni í nærumhverfinu. Það þarf bara að skipuleggja sig og láta verkin tala. Þetta er skemmtilegt, maður sér afrakstur vinnunnar jafnóðum og það er manni hvatning til að halda áfram. Ég hvet alla til að gera slíkt hið sama og þakka fyrir mig,“ segir hann. Hefur tekið um 20 svæði í gegn Svavar fluttist í Búðardal 8. janúar árið 1976, þá 24 ára gamall. Hann er alinn upp á Hríshóli í Reykhóla- sveit en fjölskyldan flutti á Akra- nes þegar hann var 16 ára gam- all. Þaðan hélt Svavar á ný vestur á bóginn, settist að í Búðardal og hefur verið þar búsettur allar göt- ur síðan. Hann segir að það hafi hins vegar ekki verið fyrr en fyrir tiltölulega skömmu síðan að hann hóf að láta sig nærumhverfið varða og ráðast í umhverfisbætur í bæn- um. „Ég byrjaði bara á þessu fyrir nokkrum árum síðan. Þá lagði ég til við sveitarfélagið að lagðir yrðu peningar í sjóð sem íbúar gætu sótt í til að sinna umhverfisbót- um í sjálfboðavinnu. Sveitarfélagið myndi þá greiða útlagðan kostnað og vinnan yrði að vera sjálfboða- vinna. Reglurnar um úthlutun eru skýrar; gera verður ítarlega grein fyrir útgjaldaliðum og sá sem sæk- ir um fær ekki krónu meir en það sem fæst vilyrði fyrir,“ segir Svav- ar. „Vel var tekið í erindið og síð- an þessum sjóði var komið á fót þá hef ég sótt um fyrir hinum og þessum verkefnum og verið að laga til hingað og þangað um bæinn all- ar götur síðan,“ segir hann. Svæðin og blettirnir sem Svavar hefur dytt- að að og fegrað undanfarin ár tel- ur hann að séu um 20 talsins. Þar að auki hefur hann tekið að sér að hirða blettina, einnig í sjálfboða- starfi. nú er svo komið að tíminn sem fer í að hirða um svæðin sem hann hefur tekið í gegn er farinn að þrengja verulega að nýjum sam- félagsverkefnum. „Samhliða þessu er ég auðvitað í vinnu, ég starfa sem verktaki en þetta gengur með góðu skipulagi. Það er gott að vera sjálfstætt starfandi, þá getur maður skipulagt sinn tíma sjálfur. Annars gæti ég væntanlega ekki gert jafn mikið,“ segir hann. Byrjaði af illri nauðsyn En af hverju byrjaði hann á þessu? „Það var nú eiginlega bara af illri nauðsyn. Mér fannst staðurinn víða illa hirtur og þá var annað hvort að gera þetta sjálfur eða fara bara í burtu,“ segir Svavar og brosir. „Mörg svæði voru illa hirt og hálf ömurleg fannst mér. Allt eru þetta blettir í eigu Dalabyggðar og ekki ofarlega á verkefnalista stjórnenda sveitarfélagsins að koma þeim í betra horf. Á sama tíma fannst eng- um öðrum eins og þeir ættu að gera neitt í málinu. Þannig að ég byrj- aði bara, lagði til að þessi sjóður yrði stofnaður, sótti um og hófst handa,“ segir Svavar. „Það geta all- ir gert þetta. Það þarf bara að vera skipulagður og láta verkin tala,“ bætir hann við. „Ef maður byrjar á ljótasta blettinum og gerir hann fínan þá er hann ekki lengur ljót- astur, heldur einhver annar. Svo heldur maður áfram koll af kolli og með tímanum verður það þann- ig að verstu blettirnir eru kannski ekkert svo slæmir.“ Og Svavar seg- ist hvergi nærri hættur að taka til hendinni í Búðardal. „næsta sumar hef ég í huga að sækja um til að laga tvö svæði. Þau verkefni eru bæði áframhaldandi lagfæringar á blett- um sem ég hef þegar tekið í gegn,“ segir hann. Selirnir koma í Búðardal Það var 26. september síðastlið- inn að fjölgaði í Búðardal um tvo og það fyrir tilstilli Svavars. Hann hafði frumkvæði að því að tveim- ur landselskópum úr Húsdýra- garðinum var komið í tímabund- ið fóstur í bænum. Vakti framtak- ið mikla athygli og fékk góða um- fjöllun. „Hugmyndina fékk ég fyr- ir rúmum tveimur árum síðan þeg- ar kópur strauk úr Húsdýragarðin- um og komst inn á tjaldsvæðið þar í nágrenninu. Lögregla var kölluð til, fangaði kópinn og kom honum í garðinn að nýju. En síðan strauk kópurinn aftur og þá var ákveðið að lóga honum. Það var bara einhver einn maður sem tók þá ákvörðun,“ segir Svavar. „Ég ritaði því garðin- um bréf og bauðst til þess að taka við kópunum í fóstur, með það að markmiði að sleppa dýrunum út í náttúruna að nýju. Mér var tjáð að einn Þrándur væri í Götu og það væru dýraverndarlögin, þar sem segir að ekki megi sleppa dýr- um sem hafa alist upp hjá mönn- um út í náttúruna aftur, nema fisk- um eða seiðum,“ segir hann. „Mér var því vísað á Matvælastofnun og var í samskiptum við þá og ráðu- Svavar Garðarsson er Vestlendingur ársins 2017 „Það þarf bara að skipuleggja sig og láta verkin tala“ Blaðamaður Skessuhorns færir Vestlendingi ársins blómavasa og blómvönd að gjöf fyrir hönd Skessuhorns og með kveðju frá lesendum. Bæði vasinn og vöndurinn eru úr versluninni Módel á Akranesi. Svavar ræðir við blaðamann á útsýnispalli við Ægisbraut í Búðardal. Pallinn smíð- aði Svavar í verktöku fyrir Dalabyggð, en verkefnið var styrkt af Framkvæmda- sjóði ferðamannastaða. Svavar og selirnir sem eru í tímabundnu fóstri í Búðardal. Kóparnir komu úr Húsdýragarðinum á liðnu hausti og hefur Svavar hugsað um þá síðan. Markmiðið er að sleppa þeim frjálsum í náttúruna fyrir næsta haust, fáist til þess tilskilin leyfi, svo fóstra megi aðra kópa í Búðardal næsta vetur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.