Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2018, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 03.01.2018, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 3. JAnúAR 201816 Horft til baka og litið til nýja ársins Metoo byltingin, frumkvöðlar, ferðalög, barnalán og fleira kemur við sögu Nú þegar árið 2018 er gengið í garð er vel við hæfi að líta til baka og velta fyrir sér árinu sem var að ljúka. Líkt og undanfarin ár leitaði Skessu- horn til nokkurra valinkunnra Vestlendinga víðs- vegar um landshlutann og spurði þá spurninga um árið sem leið. Var fólk spurt að því hvað stóð upp úr á árinu sem var að líða og hverjar vænt- ingar til nýja ársins væru. Svörin létu ekki á sér standa og voru flestir sammála um að 2017 hefði verið ánægjulegt og gott ár. Er það í góðu sam- ræmi við svörin sem bárust við spurningunni á vef Skessuhorns yfir hátíðirnar og lesa má um á blaðsíðu 2. Væntingar til ársins 2018 eru einnig góðar og eru Vestlendingar almennt bjartsýnir í upphafi árs. Eyjólfur Ingvi Bjarnason, Dalabyggð: Er formlega orðinn bóndi „Fyrir mig persónulega stóð það helst upp úr að ég keypti jörðina af foreldrum mínum og er formlega orðinn bóndi,“ segir Eyjólfur Ingvi Bjarnason í Ásgarði í Dölum. „Það geng- ur allt ágætlega en er sauðfjárbú og staða sauðfjárbænda setur vissulega strik í reikninginn. Ég læt þetta ganga og ætla ekki að gefast upp,“ bætir hann við. Eyjólfur segist vona að ró komist í pólitíkina á nýju ári. „Ég vona að það komist ró á stjórnmálin og verði í það minnsta ekki kosningar á nýju ári,“ segir Eyjólfur og hlær. „Einnig vona ég að árið verði farsælla en árið 2017 fyrir sauðfjárbænd- ur. Annars er ég jákvæður fyrir árinu og nýjum verkefnum sem því fylgja en árið 2018 er stórt ár fyrir mig því þá á ég von á mínu fyrsta barni,“ segir Eyjólfur. Anton Jónas Illugason, Ólafsvík: Opnaði kaffihús á árinu „Ég verð að segja þegar karlalandsliðið komst áfram á HM í fótbolta hafi helst staðið upp úr á árinu, að mínu mati. Maður hafði eiginlega sett væntingarnar á hilluna eftir EM. Ég trúði þessu varla þegar þeir svo tryggðu sér þetta sæti áfram, það var svo magnað og allar EM tilfinningarnar komu yfir mann aftur,“ segir Anton Jónas Illugason í Ólafsvík. „Fyrir mig persónulega stóð svo upp úr að við bræðurnir stofnuðum kaffihúsið Kaldalæk og það hefur allt gengið von- um framar og við ætlum bara að halda ótrauðir áfram á þeirri braut,“ bætir hann við. Anton Jónas segist vona að nýja árið verði jafn gott og það síðasta. „Árið 2017 var mjög gott og ég vona bara að þetta haldi áfram svona inn í nýja árið,“ segir Anton Jónas. Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, Borgarfirði: Stofnaði fyrirtæki á árinu nýtt fyrirtæki og stjórnmálin eru meðal þess sem stóð upp úr á árinu að mati Halldóru Lóu Þorvaldsdóttur. „Fyrir mig persónulega stendur helst upp úr að stofna fyrirtæki en ég stofnaði ísgerð á búi foreldra minna og hefur það alveg geng- ið vonum framar enn sem komið er, en við byrjuðum að selja ísinn í byrjun desember,“ segir Halldóra Lóa sem rekur fyr- irtækið í félagi við Helga Eyleif bróður sinn. „Í þjóðfélag- inu öllu finnst mér helst standa upp úr stjórnarslitin og allt í kringum þau og auðvitað kosningarnar. Metoo byltingin hef- ur líka verið mjög áberandi og hreyft ansi vel við umræðunni,“ segir Halldóra Lóa. „Mínar væntingar fyrir nýja árið er að hér verði stöðugleiki í samfélaginu og við sem þjóð náum að hugsa hlutina eins og langhlaup en ekki spretthlaup,“ segir Halldóra Lóa. „Ég hef svo auðvitað líka miklar væntingar um að fyrirtækið mitt muni blómstra vel á árinu og allt gangi að óskum,“ bætir hún við. Jón Einar Hjaltested, Akranesi: Eignaðist tvíbura á árinu „Ég verð að segja að það stendur helst upp úr fyrir mig að hafa eignast tvö börn,“ segir Jón Einar Hjaltested sem eignaðist tvíburadætur á árinu. „Þær eru mjög hressar og til þessa hefur allt gengið mjög vel þó maður sofi kannski ekki mikið þessa dagana,“ bætir hann við og hlær. Almennt séð segir hann um- ræðuna í samfélaginu árið 2017 einnig standa mikið upp úr. „Það má kannski segja að umræðan í samfélaginu hafi verið umdeild, þá helst stjórnmálaumræðan og metoo byltingin en mér finnst öll þessi umræða standa upp úr,“ segir Jón Einar. „Ég vona bara að þetta ár verði enn betra en það síðasta og sérstaklega að við fáum gott og hlýtt sumar. Ég get nú líka al- veg sagt að ég hafi væntingar um að sofa aðeins meira á þessu ári,“ segir Jón Einar og hlær. Alex Páll Ólafsson í Stykkishólmi: Ferð til Kraká eftirminnileg Ferð til Póllands var eitt af því sem stendur mest upp úr hjá Alexi Páli Ólafssyni í Stykkishólmi. „Við áhöfnin fórum sam- an til Póllands en í hópnum eru nokkrir Pólverjar sem sýndu okkur Kraká. Þetta var mjög eftirminnileg og skemmtileg ferð,“ segir Alex. Hann fór að auki tvisvar til Tenerife og vann mikið á árinu. „Þetta eru alltaf ferðalög og vinna hjá manni. Ég fór á grásleppu sem gekk mjög vel, það átti nú bara að vera hobbý en var svo bara hörkuvinna. Það stendur líka upp úr hvernig það gengur alltaf betur og betur í skelinni, þar er allt á réttri leið og gaman að sjá svona fyrirtæki koma sér á lapp- irnar,“ segir Alex. „Veturinn var líka mjög góður, bæði síðasti vetur og það sem af er þessum, bara mjög góð tíð og ég er al- mennt mjög sáttur við árið,“ bætir hann við. „Ég vona svo bara að næsta ár verði ennþá betra. Það er þó kannski ekki hægt að toppa endalaust, en það má vona,“ segir Alex og hlær. Marta Magnúsdóttir í Grundarfirði: Hitti vinalega stelpu og urðu þær perluvinkonur Það sem stóð helst upp úr á síðasta ári fyrir mig var að hafa fengið að kynnast fólki sem ég hefði örugglega seint farið að tala við ef ég væri ekki skátahöfðingi,“ segir Marta Magnús- dóttir í Grundarfirði. „Þegar ég var búin að vera í skiptinámi í

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.