Skessuhorn - 03.01.2018, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 3. JAnúAR 20188
Harma niður-
skurð á fé til
náttúrustofa
LANDIÐ: Stjórn Fugla-
verndar harmar niður-
skurð á fé til náttúru-
stofa. Stjórnin skorar á
fjárlaganefnd, að auka
framlag til stofanna. „Á
náttúrustofunum eru
unnar þýðingarmiklar
grunnrannsóknir á lífríki
Íslands. Í því sambandi
vill stjórn Fuglaverndar
benda á mikilvægt hlut-
verk stofanna við vökt-
un stofna bjargfugla og
lunda. Stofnar nær allra
sjófugla sem verpa á Ís-
landi hafa átt undir högg
að sækja og þeir hafa
minnkað á undanförn-
um árum. Rannsóknir og
vöktun eru forsenda þess
að skilja hvað ráði þess-
ari fækkun og hvernig
tryggja megi vernd þess-
ara fugla. náttúrustof-
urnar hafa verið leiðandi
við rannsóknir á sjófugl-
um og mikilvægt að geta
þeirra á því sviði verði
ekki skert,“ segir í til-
kynningu frá félaginu.
„Það er óforsvaranlegt,
nú þegar Íslendingar eru
í fararbroddi í alþjóð-
legu loftslagssamstarfi
eins og Arctic Circle, að
skerða rekstur náttúru-
stofanna.“
-mm
Forsvarsmenn Skagans 3X und-
irrituðu skömmu fyrir jól stærsta
samning sinnar tegundar sem ís-
lenskt tæknifyrirtæki hefur gert.
Þar er færeyska útgerðarfélag-
ið Varðin Pelagic sem kaup-
ir vinnslubúnað fyrir nýja upp-
sjávarvinnslu á Þvereyri sem er á
Suðurey í Færeyjum. Virði samn-
ingsins er um fimm milljarðar ís-
lenskra króna. nýja vinnslan mun
hafa afkastagetu fyrir allt að 1.300
tonn af pakkaðri vöru á sólarhring.
Samningurinn kveður einnig á um
að hægt verður að stækka vinnslu-
getuna í allt að 1.700 tonn á sólar-
hring. Auk Skagans 3X koma fyrir-
tækin Frost og Rafeyri á Akureyri
að verkefninu ásamt fleiri íslensk-
um fyrirtækjum.
Skaginn 3X hafði árið 2012 sett
upp heildarvinnslu fyrir Varðin
Pelagic og var sú vinnsla á sínum
tíma stærsta og fullkomnasta upp-
sjávarvinnsla í heiminum. Hús-
ið sem hýsti vinnsluna brann hins
vegar í júní síðastliðnum og hef-
ur Varðin Pelagic síðan farið út í
mikinn og nákvæman samanburð
á lausnum til að geta byggt upp
að nýju. „Það var skylda okkar að
skoða alla kosti sem í boði voru
og einnig að hlusta á kröfur við-
skiptavina okkar og aftur höfum
við komist að þeirri niðurstöðu
að lausnin frá Skaganum 3X sé sú
framúrskarandi lausn sem mætir
okkar kröfum best,“ segir Bogi Ja-
cobsen, forstjóri Varðin Pelagic.
Skilvirkni, afurðagæði
og umhverfisvernd
„Þetta er stærsti samningur í sögu
fyrirtækisins og að mér vitandi
stærsti samningur sem íslenskt
tæknifyrirtæki hefur gert,“ segir
Ingólfur Árnason forstjóri Skagans
3X. „Það er mikil viðurkenning í
því fólgin að Varðin hafi aftur valið
okkur og er sönnun þess að okkar
lausnir eru í senn áreiðanlegar og
framsæknar,“ segir Ingólfur.
Skaginn 3X hefur undanfar-
ið gert fjölda samninga um nýjar
lausnir í uppsjávariðnaði og má
þar m.a. nefna uppsetningu á nýrri
verksmiðju fyrir Eskju á Eskifirði,
samning við France Pélagique um
nýja kynslóð sjálfvirkrar vinnslu
fyrir skip auk samningsins við
Varðin Pelagic. Allar þessar lausn-
ir eru stór skref í framþróun á sjálf-
virknivæðingu og bættum gæðum
afurða. „Fjölbreyttir möguleikar í
framleiðslu og pökkun eru mikil-
vægir til að fullnýta auðlindir hafs-
ins og til að mæta auknum kröfum
markaðarins. nýja vinnslan verður
byltingarkennd heildarlausn fyrir
uppsjávariðnaðinn þar sem sérstök
áhersla er lögð á umhverfisvernd,
skilvirkni og afurðagæði,“ segir
Ingólfur Árnason.
mm
Stærsti samningur Skagans 3X frá upphafi
Varðin Pelagic byggir nýju uppsjávarvinnsluna á Suðurey í Færeyjum.
Ingólfur Árnason og börn hans undirrituðu samninginn við forsvarsmenn Varðin Pelagic skömmu fyrir jól.
Ingólfur Árnason forstjóri Skag-
ans 3X tók í gær við viðskiptaverð-
launum Viðskiptablaðsins. Það var
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra sem afhenti Ingólfi verðlaun-
in. Í rökstuðningi Viðskiptablaðs-
ins segir m.a.: „Hátæknifyrirtæk-
ið Skaginn 3X er að umbylta mat-
vælaiðnaði, sérstaklega í sjávarút-
vegi, með nýjum og framsæknum
lausnum. Fyrirtækið sérhæfir sig í
kæli- og vinnslutækni og framleið-
ir í dag íslaus kælikerfi, alsjálfvirk
lestarkerfi fyrir fiskveiðiskip og
verksmiðjur fyrir vinnslu á upp-
sjávarfiski. Þó Skaginn 3X sé til-
tölulega nýtt nafn í hugum margra
þá stendur það á gömlum merg.
Skaginn 3X er sameiginlegt vöru-
merki þriggja systurfyrirtækja;
Skagans hf., Þorgeirs & Ellerts hf.
og 3X Technology ehf.“
Fyrirtækið Skaginn 3X hefur
vaxið hratt síðustu misseri og ár.
Starfsmannafjöldinn hefur marg-
faldast og velta Skagans hf., eins
dótturfélaganna þriggja, nam 4,3
milljörðum króna árið 2016, sem
var 42% aukning frá árinu 2015.
Vöxtur fyrirtækisins endurspegl-
ast ágætlega í því að fyrir skömmu
undirritaði Skaginn 3X um fimm
milljarða króna samning við fær-
eyska fyrirtækið Varðin Pelagic
um byggingu uppsjávarverksmiðju
á Suðurey í Færeyjum. Verksmiðja
sú mun geta afkastað 1300 tonnum
af unni og pakkaðri vöru á sólar-
hring.
Heimurinn opinn
fyrir nýrri tækni
Sjálfur segir Ingólfur Árnason að
nú séu að verða kaflaskil hjá fyr-
irtækinu. Búið sé að þróa einstak-
ar vörur og nú þurfi að nýta tæki-
færið til fullnustu. „Við erum kom-
in með vörur sem við teljum alveg
einstakar og jafnframt teljum við
að þær eigi gríðarlega mikið inni
á markaðnum. Það er ástæðan fyr-
ir því að við höfum verið að stækka
mjög hratt síðustu misseri. Það er
til þess að geta nýtt þau tækifæri
sem ég held að okkar nýja tækni
muni veita okkur. Ég trúi því að
næstu tvö ár verði mjög viðburða-
rík hjá Skaganum 3X. Heimurinn
er opinn fyrir okkar tækni,“ segir
Ingólfur Árnason. nánar er rætt
við Ingólf í nýjasta tölublaði Við-
skiptablaðsins.
mm
Ingólfur og Skaginn 3X hljóta viðskiptaverðlaun
Ingólfur Árnason við höfuðstöðvar fyrirtækisins á Akranesi. Ljósm. Viðskiptablaðið/ Haraldur Guðjónsson.