Skessuhorn - 03.01.2018, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 3. JAnúAR 2018 15
Hafnsögumaður Faxaflóahafna sf.
Auglýst er laust til umsóknar starf hafnsögumanns Faxaflóahafna sf.
Faxaflóahafnir sf. óska eftir að ráða til starfa hafnsögumann. Starfsstöð hafnsögumannsins verður í Reykjavík. Starfið felst
aðallega í leiðsögu skipa á svæði Faxaflóahafna sf., skipsstjórn dráttarbáta, móttöku skipa og öðrum tilfallandi störfum.
Nauðsynlegt er að umsækjandi uppfylli eftirfarandi skilyrði:
• Skipstjórnarréttindi – CB (2. stigs skipstjórnarnám)
• Námskeið í Slysavarnarskóla sjómanna
• Góð kunnátta í íslensku og ensku
• Góð tölvukunnátta
Faxaflóahafnir sf. eru með starfsemi í Reykjavík, á Akranesi, á Grundartanga og í Borgarnesi. Hafnsögumenn Faxaflóahafna sf.
sinna verkefnum á þeim stöðum. Unnið er á 12 klst vöktum allt árið.
Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna sf., á netfangið gudbjorg@faxi.is eigi síðar en 21. janúar2018. Þar sem í gildi eru
ákvæði laga um hafnavernd þá er óskað eftir að umsækjandi geti lagt fram sakavottorð.
Nánari upplýsingar gefur Gísli Jóhann Hallsson yfirhafnsögumaður í síma 5258900.
Fyrirbyggjandi vörn gegn eyrnabólgu
og nauðsynlegt fyrir þá sem eru með
rör í eyrum eða viðkvæm eyru.
Til í þremur stærðum.
Njóttu þess að fara
í sund / sjósund
Verndaðu eyrun með Ear Band-It Ultra
eyrnaböndum og eyrnatöppum
Fæst í apótekum,
barnavöruverslunum
og Útilíf
Fjöldi gesta lagði leið sína á hina ár-
legu áramótabrennu sem fór fram á
Breiðinni í Ólafsvík. Var veður með
besta móti og nutu gestir þess að
hittast og syngja saman þjóðleg lög.
Að sögn þeirra sem stóðu að brenn-
unni voru notuð á fimmta þúsund
vörubretti og stór rafmagnskefli.
Björgunarsveitin Lífsbjörg var að
vanda með stórglæsilega flugelda-
sýningu sem var að mati gesta al-
gjört augnakonfekt. af
Fjölmenni á brennu og
flugeldasýningu
Karlakórinn Söngbræður held-
ur sína árlegu, þjóðlegu sviða- og
hrossakjötsveislu í Þinghamri á
Varmalandi í Stafholtstungum,
laugardaginn 13. janúar kl. 20:00.
Að sögn Gunnars Arnar Guð-
mundssonar formanns kórstjórnar
hafa sviðin verið pöntuð frá Kópa-
skeri líkt og fyrri ár. Bæði hafa þau
reynst væn og hæfilega sviðin af
þeim Þingeyingum. „Ungu hross-
in tvö, til veislunnar ætluð, voru
fönguð í byrjun nóvember og slátr-
að á Hellu og síðan söltuð í tunnur.
Þau bíða nú spennt eftir að verða
á veisluborðum Söngbræðra. Ein-
hvers misskilnings gætti hjá ágætu
unghrossi Kibba fyrrum veitinga-
mans í Baulunni. Þetta hross átti
að fá ókeypis ferð austur á Rangár-
velli, en það framdi sjáfsvíg vikunni
fyrir ferðina, gerði sér greinilega
ekki ljóst sá heiður sem fylgir því
að verða étið undir söng og gam-
anmálum. Þykkvabæjarkartöflur og
mosfellskar rófur eru farnar að bíða
vinnslu okkar bræðra.
Vonandi sjá sér sem allra flestir
fært að koma og eiga góða kvöld-
stund með okkur við át og söng.
Söngbræður munu syngja, ein-
hverjir munu vera með gleðimál og
undir lokin munu allir syngja við
undirleik hljómsveitar Söngbræðra.
Söngbræður boða til árlegrar
sviða- og söngveislu
Ekki er víst að öllum líki maturinn,
en það gerir ekkert til, við hinir
borðum þá bara enn meira,“ segir
Gunnar.
Ekki verður breytt þeirri venju
að hafa hvorki grænmeti né káljurt-
ir á borðum, eingöngu verða soðin
svið, heit og köld og saltað hrossa-
kjöt, meðlæti kartöflumús og rófus-
tappa og geta menn borðað eins og
þeir vilja. Unnt er að panta miða
í símum 892-8882 (Þórir Páll) og
894-9535 (Sigurgeir).
mm
Svipmynd af hlaðborðinu á síðasta ári.
Að undanförnu hefur verið unnið að
lagfæringum á gömlu Hlíðartúns-
húsunum í Borgarnesi. Fjárhúsþak
húsanna var orðið ónýtt og því skipt
um það. Yfirumsjón með verkinu hafa
þeir Stefán Ólafsson byggingameist-
ari og Unnsteinn Elíasson hleðslu-
meistari. mm/ Ljósm. úr safni.
Skömmu fyrir áramót veitti Menn-
ingarsjóðurinn Fegurri byggðir,
Sjóminjasafninu í Sjómannagarð-
inum á Hellissandi viðurkenningu
og styrk að upphæð 200.000 krón-
ur. Stjórn Sjóminjasafnsins með
Þóru Olsen í fararbroddi hefur unn-
ið mikið starf í uppbyggingu á hús-
næði safnsins ásamt því að settar
hafa verið upp metnaðarfullar sýn-
ingar. Markmið menningarsjóðsins
er að veita viðurkenningar og styrki
til framfara- og menningarmála á því
svæði sem áður var neshreppur utan
Ennis. Í stjórn sjóðsins eru Þórhalla
Baldursdóttir, Sirrý Gunnarsdóttir,
Lydía Rafnsdóttir og Kári Viðars-
son. Var styrkurinn og viðurkenn-
ingin afhent með athöfn í Sjóminja-
safninu og var boðið upp á veitingar
í tilefni dagsins.
þa
Sjóminjasafninu
afhentur styrkur
F.v: Guðríður Sirrý Gunnarsdóttir, Þórhalla Huld Baldursdóttir, Þóra Olsen og Lydía
Rafnsdóttir.
Hlíðartúnshúsin lagfærð