Skessuhorn - 03.01.2018, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 3. JAnúAR 201820
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmar 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Sveitarstjórn Borgarbyggðar sam-
þykkti á fundi sínum þann 14. des-
ember 2017 að auglýsa að nýju lýs-
ingu vegna breytingar á aðalskipu-
lagi Borgarbyggðar 2010-2022 fyr-
ir skotæfingasvæði í landi Hamars.
Sveitarstjórnin kýs að koma aft-
ur fram með málið þrátt fyrir mikla
andstöðu við fyrri tilraun hennar
við sama mál haustið 2014. Hald-
inn var opinber fundur þar sem til-
lagan var kynnt og á þeim fundi
lýstu margir sig andsnúna þess-
ari hugmynd. Í framhaldinu bár-
ust Borgarbyggð athugasemdir frá
félagasamtökum, stofnunum, fyrir-
tækjum og einstaklingum. Athuga-
semdum þessara aðila var aldrei
svarað en þær snérust meðal ann-
ars um eftirfarandi þætti:
Hávaði mun skerða náttúru-•
upplifun
Öryggi útivistarfólks og barna•
Ekki í samræmi við markmið •
aðalskipulags
Kostnaðaráætlun skortir•
Slysahætta fyrir hestamenn•
Skerðir möguleika á reiðleið-•
um
Dregur úr áhuga á útreiðum •
Skaðar uppbyggingu hesta-•
mannasvæðis
Hæfir ekki með fólkvangi •
Skipuleggja skotsvæðið með •
motorcross brautinni
Eyðileggur náttúruupplifun •
fólks
Dregur úr öryggistilfinningu•
Skipulagstillagan mun valda •
óþægindum, ónæði og óör-
yggi
Ferðaþjónustan mun verða •
fyrir tjóni
Stjórn Skugga lýsti andstöðu •
strax í upphafi
Staðsetning ekki lögmæt mið-•
að við EU og EFTA
nálægð við Lækjarkot•
Frá þessum tíma hefur verið
skrifaður fjöldi greina með og á
móti skotæfingasvæði, umræður
hafa farið fram á samfélagsmiðlum
og fréttir verið fluttar af fyrirhug-
uðum framkvæmdum. Það yrði of
langt mál að tíunda þessa umræðu
í þessari grein en fyrir áhugasama
er hægt að benda á heimasíðu fólk-
vangsins Einkunna þar sem ég hef
reynt að halda þessum upplýsing-
um til haga.
Öll þessi rök eiga enn við og
hvet ég fólk til að senda aftur inn
athugasemdir sínar og þá sem ekki
skiluðu inn í fyrra skiptið til að
gera það. Samkvæmt auglýsingu
frá Borgarbyggð skulu ábending-
ar vegna lýsingar vera skriflegar og
berast í síðasta lagi fimmtudaginn
19. janúar 2018 í Ráðhús Borg-
arbyggðar, Borgarbraut 14, 310
Borgarnesi eða á netfangið borgar-
byggd@borgarbyggd.is.
Í maí 2016 lét Borgarbyggð há-
vaðamæla í grennd við fyrirhuguð
æfingasvæði fyrir motorcross og
skotæfingar. Skýrsluna er hægt að
nálgast á heimasíðu Borgarbyggð-
ar. Skýrslan er að mörgu leyti vel
unnin en er ómarktæk fyrir skot-
æfingasvæðið vegna þess að í henni
kemur ekki fram gerð skotvopn-
anna sem notuð voru við prófan-
irnar, skotvopnin sem notuð voru
við hljóðmælingarnar voru ekki
hljóðmæld, ekki haft samráð við
hagsmunaaðila við val á mælistöð-
um, fjarlægðir frá mælistöðum að
skotstað ekki getið, veðurskilyrði
voru óhagstæð þegar mælingar
fóru fram og hvorki var starfsmað-
ur Borgarbyggðar né annar óvil-
hallur aðili fenginn til að vera við-
staddur þegar hleypt var af skot-
unum. Í skýrslunni kemur fram að:
„Áætlað hljóðstig við Lækjarkot
liggur þó yfir neðri mörkum.“
Fjarðabyggð fór í sambærilega
vinnu og Borgarbyggð, í byrjun árs
2015 og lét kanna hljóðvist við fyr-
irhugað skotæfingasvæði. Í skýrslu
Fjarðabyggðar er bent á sænsk við-
mið fyrir viðmiðunarmörk fyrir há-
vaða frá skotæfingasvæðum, miðað
við hámarkshljóðstig. Samkvæmt
henni gilda eftirfarandi viðmið:
Í skýrslunni kemur fram að há-
vaði frá skotvopnum getur verið
frá 150- 155 dB frá litlum rifflum
og upp í 175 dB frá öflugustu riffl-
unum. Almenna reglan er sú að
hljóð minnkar um 5dB fyrir hverja
100m. Til glöggvunar má geta þess
að sársaukamörk eru skilgreind við
140 dB. út frá þessum forsendum
reiknaði ég út hversu hávær skot-
hvellur yrði á nokkrum stöðum en
tók ekki með í reikningana að gert
er ráð fyrir að hægt verði að skjóta
úr 5 rifflum samtímis og geta mæld
hljóðstigsgildi þá hækkað um ná-
lega 7 dB.
Því hefur verið haldið fram í
sveitarstjórn Borgarbyggðar að
nota megi hljóðdeyfa við æfing-
ar og í því sambandi verið vitnað
í reglugerðarbreytingu um skot-
vopn, skotfæri o.fl., nr. 787/1998.
Í reglugerðinni er veitt undanþága
til einstaklinga frá banni við að
nota hljóðdeyfa á skotvopn vegna
atvinnu sinnar, svo sem við eyð-
ingu vargs eða meindýra í þéttbýli.
Reglugerðarbreytingin er stutt og
skýr, undanþágan snýr að þeim
sem þurfa að nota riffla í atvinnu-
skyni. Hvergi minnst á undanþág-
ur vegna æfinga eða íþróttaiðkun-
ar. Eftir því sem ég veit best þá eru
ekki til hljóðdeyfar á haglabyssur.
Reynsla íbúa í Kollafirði og á
Kjalarnesi er ekki góð af skotæf-
ingasvæðinu á Álfsnesi. Reykja-
víkurborg keypti m.a. upp bæinn
Skriðu sem er í 2,2 km fjarlægð frá
skotæfingasvæðinu, á tugi millj-
óna til að losa íbúa úr prísund-
inni (Hótel Hamar er í sömu fjar-
lægð frá fyrirhuguðu skotæfinga-
svæði og Skriða er frá skotæfinga-
svæðinu í Álfsnesi). Íbúi þar í sveit
hefur komið inn í umræðuna um
fyrirhugað skotæfingasvæði á sam-
félagsmiðlum og varar stórlega við
þessari framkvæmd. Það eru 5 km
frá skotæfingasvæðinu að heimili
hans og þangað heyrast skothvell-
irnir alla daga. Hvort sem það er
logn, mótvindur eða meðvindur.
Ég setti tvo hringi á kort, annan
með 2,2 km radíus (fjarlægð Skriðu
frá æfingasvæðinu á Álfsnesi) og
hinn með 5 km radíus frá fyrirhug-
uðu skotæfingasvæði við Einkunnir
(þetta er ónákvæmt kort hjá mér). Á
kortinu getur fólk séð hvaða svæði
lenda innan þessara hringja, s.s.
hestahúsahverfið, reiðhöllin, reið-
og göngustígar, fólkvangurinn Ein-
kunnir, Langá, Hótel Hamar, kirkj-
an og grafreiturinn að Borg, ýmis
ferðaþjónusta, sumarbústaðabyggð-
ir og golfvöllur. Ramsarsvæði, al-
þjóðlegt búsvæði fugla á Hvanneyri
liggur við 5 km mörkin og spurn-
ing hvaða áhrif það mun hafa á
það verndunarsvæði? Sveitarstjórn
Borgarbyggðar ætlar að taka þessa
áhættu og rýra gildi þessara staða
með þeim afleiðingum sem það
kann að hafa í för með sér.
Samkvæmt fréttum er haf-
ið kapphlaup á milli sveitarfélaga
um staðsetningu Þjóðgarðsstofn-
unar, Borgarbyggð sækist eftir því
að stofnunin verði á Hvanneyri.
Vitnar í því sambandi til þess að
jörðin Hvanneyri og nánasta um-
hverfi hennar er friðlýst og hafi
hlotið viðurkenningu sem Rams-
arsvæði, alþjóðlegt búsvæði fugla.
Þá séu sex önnur friðlönd og fjöldi
svæða á náttúruminjaskrá í sveitar-
félaginu Borgarbyggð. Eitt þessara
svæða sem vitnað er til er fólkvang-
urinn Einkunnir, eini fólkvangur-
inn á Vesturlandi, þar sem leyfa á
skotæfingasvæði í 160 m fjarlægð
frá fólkvangsmörkum og Ramsar-
svæðið er í rúmlega 5 km frá skot-
æfingasvæðinu. Ef hægt er að yfir-
færa reynslu íbúa á Kjalarnesi upp
í Borgarfjörð þá
má reikna með
því að skothvell-
ir muni heyrast á Hvanneyri. Það
að staðsetja skotæfingasvæði 160
m frá eina fólkvanginum á Vestur-
landi mun ekki liðka til fyrir Borg-
arbyggð að fá Þjóðgarðsstofnun að
Hvanneyri.
Það liggur fyrir að ef skotæfinga-
svæðið verður staðsett á þeim stað
sem boðað er þá mun það kippa stoð-
unum undan starfseminni í Lækjar-
koti og er nóg að vitna til gallaðr-
ar skýrslu Borgarbyggðar í því sam-
bandi. Ábúendur eru búnir að setja
sig í samband við fasteignasölu til að
meta eignir sínar, jörðin er metin á
250 milljónir og eru þeir komnir í
samand við lögfræðistofu til að und-
irbúa málsókn. Fleiri hagsmunaaðil-
ar eru að skoða sín mál. Þessi stað-
setning hefur áhrif á lífsviðurværi og
náttúruupplifun margra. Það mun
styrkja réttarstöðu þeirra á seinni
stigum gagnvart Borgarbyggð að
gera athugasemdir á þessu stigi
málsins.
Það má geta þess að sveitarfélagið
Borgarbyggð er stórt og víðfeðmt
sveitarfélag eða 4.926 ferkílómetr-
ar að stærð og til samanburðar má
nefna að Færeyjar eru 1.396 ferkíló-
metrar að stærð! Borgarbyggð er
því rúmlega þrisvar sinnum stærri
að flatarmáli en Færeyjar. Ég trúi
ekki öðru en sveitarstjórn Borgar-
byggðar geti í góðu samstarfi við
íbúa sveitarfélagsins fundið æfinga-
svæði fyrir byssueigendur og skot-
veiðimenn til æfinga sem sátt ríkir
um. Það er brýnt að byssueigendur
fái slíka aðstöðu hið fyrsta en ekki á
þessum stað enda „skulum hafa það
alveg á hreinu að skotfélagið sóttist
ekki eftir þessari staðsetningu frekar
en annarri, við sóttumst eftir landi
fyrir okkar starfsemi“ svo vitnað sé
í orð eins af stjórnarmönnum Skot-
vest.
Það mun aldrei ríkja sátt um skot-
æfingasvæðið á þessum stað og það
er einlæg von mín að frá þessari
áætlun verði horfið. Hvet ég íbúa
og hagsmunaaðila til að skila inn
athugasemdum sínum í síðasta lagi
fimmtudaginn 19. janúar 2018 í
Ráðhús Borgarbyggðar.
Hilmar Már Arason, formaður
umsjónarnefndar Einkunna.
Er þetta áhættunnar virði?
Pennagrein
Hringirnir eru með 2,2 km og 5 km radíus fá skotstað