Skessuhorn


Skessuhorn - 10.01.2018, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 10.01.2018, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 2. tbl. 21. árg. 10. janúar 2018 - kr. 750 í lausasölu Lúsina burt! Augndropar! www.landnam.is - landnam@landnam.is Sími: 437 1600 Auður djúpúðga sýningar Sýningar í febrúar laugardagur 10. kl. 16:00 sunnudagur 11. kl. 16:00 sunnudagur 18. kl. 16:00 Uppselt í janúar Miðpantanir: landnam@landnam.is sími 437-1600 20 ÁR Besta bankaappið á Íslandi Samkvæmt könnun MMR Fátt er hressilegra á gamlársdag en reima á sig hlaupaskóna og taka léttan sprett með félögunum. Þessar skrautklæddu konur á Akranesi voru í hópi tæplega tvö hundruð sem hlupu Gamlárshlaup ÍA. Nánar um það í Skessuhorni í dag. Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson. Spölur hættir innheimtu veggjalda í Hvalfjarðargöngum í lok sumars, að sögn Gísla Gíslasonar stjórnarfor- manns Spalar, sem á og rekur göng- in. Gísli segir í samtali við Skessu- horn að þetta sé samkvæmt samn- ingi sem gerður var við ríkið áður en framkvæmdir hófust fyrir rúmum tuttugu árum. Endanleg dagsetning á hvenær yfirtakan fer fram liggur þó ekki fyrir en líklegt að það verði síðla sumars eða í haust. Ráðherra samgöngumála hefur þó ekki kveð- ið skýrt á um að gjaldtöku verði hætt jafnvel þótt ríkið yfirtaki göngin. Hvalfjarðargöngin voru opnuð fyrir umferð 11. júlí 1998. Frá upp- hafi var ákveðið að ríkið tæki göng- in yfir þegar afborgun af lánum og öðrum kostnaði lyki og ekkert sem bendir til annars en að svo verði. Frá opnun hafa vegfarendur um Hval- fjarðargöng greitt veggjald sem í dag er þúsund krónur fyrir staka ferð á fólksbíl en um 280 krónur fyrir þá sem hafa fasta samninga og veglykla í bílum sínum. Með því að gjaldtöku verði hætt í sumar má reikna með að umferð um Kjalarnes og Hvalfjarð- argöng aukist og hefur verið nefnt að aukningin gæti orðið allt að tíu prósent. Þó gjaldtöku verði hætt þarf engu að síður að sinna rekstri ganganna og ýmiskonar þjónustu sem lýtur að öryggismálum og viðhaldi. Þannig liggur til dæmis fyrir, að sögn Gísla, að fara verður innan tíðar í kostn- aðarsamar aðgerðir við endurnýj- un dúks sem klæðir göngin að inn- an. Ríkið yfirtekur rekstur ganganna þegar starfstíma Spalar samkvæmt samningi verður hætt. Forsvars- menn Spalar lýstu yfir áhuga sínum fyrir allnokkrum árum á að koma að sér tvöföldun Hvalfjarðarganga, það er nýjum göngum, í ljósi þess að umferð hafði þá þegar þróast í þá átt að öryggisviðmiðum yrði innan tíðar náð um umferð í evrópskum jarðgöngum. „Enginn áhugi hefur reynst fyrir frekari aðkomu Spalar og þess vegna liggur fyrir að verk- efninu verði lokið eins og um var samið, en heimildir Spalar til inn- heimtu veggjalds falla niður þeg- ar samningurinn við ríkið er upp- fylltur,“ segir Gísli. Frá 2016 hefur Spölur óskað eftir afstöðu ríkisins til þess hvernig verði staðið að skilum á göngunum og segist Gísli reikna með að viðræður um það fari fram fljótlega. Á það hefur verið bent að ástand Vesturlandsvegar, allt frá Mosfellsbæ og í Borgarnes, er með þeim hætti að vegurinn sjálfur er ekki síður kom- inn að þolmörkum en Hvalfjarðar- göngin. Í fjárlögum fyrir nýhafið ár er ekki gert ráð fyrir framkvæmd- um við Vesturlandsveg eða tvöföld- un Hvalfjarðarganga. Nýr ráðherra samgöngumála, Sigurður Ingi Jó- hannsson formaður Framsóknar- flokksins, hefur hins vegar ýtt út af borðinu hugmyndum Jóns Gunn- arssonar fráfarandi ráðherra um að hefja stórfellda vegagerð á suðvestur- horni landsins sem fjármögnuð yrði með veggjöldum. Í fréttum í ljós- vakamiðlum að undanförnu hefur Sigurður Ingi hins vegar ekki kveðið skýrt á um að ríkið hætti gjaldtöku í Hvalfjarðargöng þótt Spölur skili ríkinu mannvirkjunum. Því má segja að bæði framkvæmdir við vegagerð um Vesturlandsveg, mannvirki þeim tengd og gjaldtaka fyrir umferð, sé í töluverðri óvissu. mm Útlit fyrir að gjaldtöku verði hætt síðsumars

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.