Skessuhorn


Skessuhorn - 10.01.2018, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 10.01.2018, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 10. JANúAR 2018 25 Akranes - miðvikudagur 10. janúar Slökun í bæ á nýju ári kl. 16:15. Við fögnum nýju ári í Matarbúri Kaju og ætlum að bjóða upp á samverustund á miðvikudögum þar sem við sitjum saman í 20 mínútur (á gólfi eða á stól) og tökum öndunaræfingar, slökun og höfum það kósí. Í upphafi verður boðið upp á Cacoa skot stútfullt af magnesíum meðal annars. Helga Guðný mun leiða samverustundina. Akranes - miðvikudagur 10. janúar Kaffifundur um ferðamál. Létt kaffispjall um ferðaþjónustu á Akranesi og í Hvalfirði. Þeir sem eru að gera góða hluti í ferðaþjónustu hittast og ráða ráðum um hvernig má vinna saman að því að gera svæðið áhugaverðara fyrir ferðamenn og hvernig sameiginlega má standa að því. Fundurinn hefst kl. 20:00 í Dularfullu búðinni. Dalabyggð - fimmtudagur 11. janúar Bingó eldri borgara á Dvalarheimilinu Silfurtúni í Búðardal kl. 13:30 til 16:00. Borgarbyggð - fimmtudagur 11. janúar Félagsvist í Þinghamri kl. 20:00. Annað af þremur spilakvöldum í félagsvist í Þinghamri á vegum Kvenfélags Stafholtstungna. Borgarbyggð - fimmtudagur 11. janúar Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Borgarfjarðarsýslu verður haldinn fimmtudagskvöldið 11. janúar kl. 20:30 í Skemmunni á Hvanneyri. Venjuleg aðalfundarstörf og ávörp gesta sem eru: Haraldur Benediktsson alþingismaður og Óli Björn Kárason alþingismaður. Nýir félagar velkomnir. Borgarbyggð - föstudagur 12. janúar Föstudagurinn Dimmi verður haldinn í annað sinn en þá eru íbúar Borgarbyggðar hvattir til að vera, eftir bestu getu, án raftækja í einn sólarhring. Þetta er áskorun um að hvíla síma, netið og kaffivélar eftir bestu getu og finna skemmtilegar lausnir og hafa gaman saman. Hvað gerist á dimmum föstudegi? Viðburðir í tilefni dagsins. Sjá nánar í frétt í blaðinu. Borgarbyggð - föstudagur 12. janúar Félagsvist kl. 20:00. Fyrsta kvöldið í fjögurra kvölda keppni, sem dreifist á sex kvöld. Góð kvöld- og lokaverðlaun. Veitingar í hléi. Allir velkomnir. Borgarbyggð - laugardagur 13. janúar Hin árlega sviða- og hrossakjötsveisla Karlakórsins Söngbræðra verður haldin í Þinghamri kl. 20:00. Upplýsingar og miðapananir í síma 894-9535 og 892-8882. Stykkishólmur - mánudagur 15. janúar Vesturlandsslagur í 1. deildinni! Snæfell og Skallagrímur mætast í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikurinn hefst kl. 19:15 í íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Borgarbyggð - fimmtudagur 18. janúar Fyrirlestur í Safnahúsi kl. 20:00. Guðrún Bjarnadóttir flytur erindi um jurtalitun í Safnahúsi Borgarfjarðar. Borgarbyggð - miðvikudagur 17. janúar Vesturlandsslagur í körfunni! Skallagrímur tekur á móti Snæfelli í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið verður í íþróttahúsinu í Borgarnesi og hefst leikurinn kl. 19:15. Blaðburður Borgarnesi Skessuhorni vantar að bæta við blaðburðarbarni í Borgarnesi. Bor- ið er út á miðvikudögum. Starfið gæti einnig hentað eldri einstak- lingi sem vill taka vikulegan hress- andi göngutúr. Nánari upplýsingar í síma 861-3385. Lítið snoturt hús vantar þrif Tækifæri fyrir duglegan einstak- ling sem vill bæta við sig auka- vinnu. Sirka 2 tímar í þrif á litlu húsi miðsvæðis í Stykkishólmi. Um framtíðarvinnu er að ræða. Áhuga- samir sendið nafn og símanúmer á sunnan7@simnet.is. Borgarnesdagatalið Borgarnesdagatalið 2018 er vegg- dagatal með 13 myndum úr Borg- arnesi. Skoða má myndirnar og fá nánari upplýsingar á slóðinni www.hvitatravel.is/dagatal. Grand Vitara Suzuki Grand Vitara árgerð 2005. Ekinn 198 þús., beinskiptur með dráttarkrók. Ágætis eintak. Til- boðsverð: 490 þúsund. Ekkert prútt, 100% lán. Til sýnis á Bílási, Akranesi. Upplýsingar: magnus@ bilas.is. Markaðstorg VesturlandsNýfæddir Vestlendingar Á döfinni 6. janúar. Drengur. Þyngd: 3.810 gr. Lengd: 51 cm. Foreldrar: Snædís Anna Þórhallsdóttir og Helgi Elí Hálfdánarson, Borgarfirði. Ljósmóðir: Málfríður Þórðardóttir. ATVINNA TIL SÖLU Markaðstorg Vesturlands Skráðu SMá- auglýSinguna Frítt á www.SkeSSuhorn.iS Fyrir klukkan 12.00 á þriðjudöguM 4. janúar. Stúlka. Þyngd: 3.414 gr. Lengd: 51 cm. Foreldrar: Sigrún Ásta Brynjarsdóttir og Magnús Óskar Þórðarson, Borgarnesi. Ljósmóðir: Ásthildur Gestsdóttir. Stúlkan hefur fengið nafnið Alma Margrét. Frestur til að sækja um Eyrarrósina LANDIÐ: Eyrarrósin er við- urkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfs- svæði Byggðastofnunar. Minnt er á að umsóknarfrestur renn- ur út 15. janúar nk. „Markmið Eyrarrósarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menn- ingarlegrar fjölbreytni, nýsköp- unar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Byggða- stofnun, Air Iceland Connect og Listahátíð í Reykjavík hafa staðið saman að verðlaununum frá upphafi, eða frá árinu 2005. Umsækjendur um Eyrarrósina geta meðal annars verið stofn- un, tímabundið verkefni, safn eða menningarhátíð. Valnefnd, skipuð fulltrúum Byggðastofn- unar, Listahátíðar í Reykjavík og Air Iceland Connect ásamt einum menningarfulltrúa á starfssvæði Byggðastofnunar tilnefnir þrjú verkefni og hlýt- ur eitt þeirra Eyrarrósina ásamt veglegum peningaverðlaunum. Hin tvö tilnefndu verkin hljóta einnig peningaverðlaun,“ segir í tilkynningu. -mm Jón Þór fer að þjálfa hjá Stjörnunni Frá því er greint á Twitter-síðu Knattspyrnufélagsins Stjörn- unnar í Garðabæ að félagið hafi ráðið til sín tvo aðstoðarþjálfara hjá meistaraflokki karla. Þetta eru þeir Veigar Páll Gunnars- son og Jón Þór Hauksson og verða þeir til fulltingis Rúnari Páli Sigmundssyni þjálfara. Jón Þór Hauksson er Skagamaður í húð og hár og hefur einkum sinnt starfi þjálfara yngri flokka og verið yfir afreksstarfi félags- ins. Jón Þór stýrði ÍA liðinu í fimm síðustu umferðum Pepsi- deildarinnar á liðnu sumri og fór vel út úr þeim viðureignum, taplaus með fjögur jafntefli og einn sigur. Krafta Jóns Þórs var hins vegar ekki óskað áfram hjá Skagamönnum og var Jóhannes Karl Guðjónsson eins og kunn- ugt er ráðinn þjálfari karlaliðs ÍA. Veigar Páll er hins vegar að koma á heimaslóðir að nýju í Garðabæ en var síðast með Vík- ingi. Nú leggur hann skóna á hilluna og hefur þjálfun. mmSkagabraut 6, Akranesi - sími: 431-5110/666-5110 www.smaprent.is - smaprent@smaprent.is Vandaðar svuntur í mörgum litum Fáið verðtilboð í vinnufatnað og merkingar. Smáprent

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.