Skessuhorn - 10.01.2018, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 10. JANúAR 2018 27
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
ÍA tók á móti Snæfelli í Vestur-
landsslag 1. deildar karla í körfu-
knattleik á sunnudaginn. Leikur-
inn var kaflaskiptur mjög, Skaga-
menn heilt yfir sterkari í fyrri hálf-
leik og leiddu í hléinu. Snæfell var
hins vegar sterkara í síðari hálfleik
og vann að lokum með 103 stigum
gegn 85.
Snæfell hafði heldur yfirhönd-
ina á upphafsmínútum leiksins og
var fjórum stigum yfir um miðj-
an fyrsta leikhluta, 10-14. Þá tóku
Skagamenn stjórn leiksins í sínar
hendur og komust átta stigum yfir
áður en upphafsfjórðungurinn var
úti, 27-19. Snæfell minnkaði mun-
inn í þrjú stig snemma í öðrum
leikhluta áður en Skagamenn tóku
við sér að nýju. Þeir áttu einn af
sínum betri leikköflum í allan vet-
ur í fyrri hálfleik, léku af yfirvegun
og skynsemi og stóðu sína plikt í
vörninni. Þeir náðu þægilegri for-
ystu á nýjan leik og héldu Snæfelli
í hæfilegri fjarlægð út fyrri hálfleik.
Skagamenn leiddu með tíu stigum í
hléinu, 45-35.
En það voru Snæfellingar sem
áttu þriðja leikhlutann með húð og
hári. Þeir jöfnuðu metin snemma í
síðari hálfleik og eftir það fylgdust
liðin að. Með góðum kafla undir
lok þriðja leikhluta náðu Hólmarar
ellefu stiga forystu fyrir lokafjórð-
unginn, 61-72. Snæfell hafði þegar
þarna var komið við sögu ágætis tök
á leiknum og lét forystuna aldrei af
hendi. Snæfellingar juku forskotið
hægt og bítandi síðustu mínútur
leiksins og höfðu að lokum 18 stiga
sigur, 85-103.
Þeir Jón Frímannsson og Marcus
Dewberry voru stigahæstir í liði
Skagamanna með 19 stig hvor. Jón
tók sjö fráköst að auki og Marcus
gaf fimm stoðsendingar. Sigurður
Rúnar Sigurðsson skoraði 15 stig
og tók sjö fráköst og Björn Stein-
ar Brynjólfsson var með 13 stig og
fimm fráköst.
Í liði Snæfells var Christian Co-
vile atkvæðamestur með 30 stig og
tíu fráköst. Viktor Marinó Alex-
andersson var með 18 stig, Jón Páll
Gunnarsson 14 stig og sjö fráköst
og Geir Elías úlfur Helgason skor-
aði tólf stig.
Staða liðanna í deildinni er þann-
ig að Skagamenn sitja á botninum
án stiga, tveimur stigum á eftir FSu
í sætinu fyrir ofan en eiga tvo leiki
til góða á sunnanmenn. Snæfell er
aftur á móti í þriðja sæti með 18
stig, tveimur stigum á eftir Breiða-
bliki í sætinu fyrir ofan en með jafn
mörg stig og næstu tvö lið fyrir
neðan.
Bæði lið leika næst mánudag-
inn 15. janúar. Skagamenn mæta
Breiðabliki á útivelli en Snæfell
mætir Skallagrími í öðrum Vestur-
landsslag í Stykkishólmi.
kgk/ Ljósm. jho.
Snæfell sigraði í kaflaskiptum Vesturlandsslag
Marcus Dewberry reynir hér að komast framhjá Geir Elías Úlfi Helgasyni, leik-
manni Snæfells.
Loftfimleikar. Viktor Marinó Alexandersson fer hér fimlega Sindra Leví Ingasyni,
leikmanni ÍA.
Á morgun, fimmtudaginn 11. janú-
ar, verður leikið í undanúrslitum
Maltbikars kvenna í körfuknatt-
leik. Leikið verður í Laugardals-
höll í Reykjavík og sá háttur hafð-
ur á að báðir leikirnir fara fram sama
daginn. Vesturlandsliðin Skalla-
grímur og Snæfell verða í eldlín-
unni á morgun, en þau mættust ein-
mitt í undanúrslitum á síðasta ári. Í
fyrri undanúrslitaleiknum á morg-
un mætast Skallagrímur og Njarð-
vík en í þeim síðari eigast við Snæ-
fell og Keflavík. Því gæti farið svo, ef
allt gengur að óskum, að vestlensk-
ir körfuknattleiksunnendur fái ná-
grannaslag Snæfells og Skallagríms í
bikarúrslitum. Það kemur í ljós ann-
að kvöld. kgk/ Ljósm. úr safni/ jho.
Vesturlandsliðin
leika í bikarnum
Þrír ungir leikmenn, þeir Alexander
Már Þorláksson, Birgir Steinn Ell-
ingsen og Marinó Hilmar Ásgeirs-
son, hafa skrifað undir tveggja ára
samning við Knattspyrnufélag ÍA
og munu leika með liðinu út sum-
arið 2019. Allir eru þeir uppaldir hjá
félaginu.
Alexander Már er fæddur árið
1995 og hefur undanfarin ár leikið
með Fram, KF og Hetti en lék síð-
asta sumar með Kára í 3. deildinni.
Þar skoraði hann 17 mörk í 18 leikj-
um og varð markakóngur deildar-
innar. Marinó Hilmar er fæddur árið
1995 einnig og hefur undanfarin ár
leikið með Kára við góðan orðstír.
Birgir Steinn er yngstur þremenn-
inganna, fæddur árið 1998. Hann
hefur undanfarin ár leikið með yngri
flokkum ÍA auk þess að eiga að baki
leiki með Kára.
„Það er jákvætt að Alexander Már,
Birgir Steinn og Marinó Hilm-
ar skuli hafa skrifað undir samning
við ÍA til næstu tveggja ára. Þetta
eru allt efnilegir og duglegir leik-
menn sem hafa mikinn metnað. Þeir
munu án vafa styrkja leikmannahóp
okkar fyrir komandi tímabil,“ segir
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari
ÍA. kgk/ Ljósm. KFÍA.
Þrír ungir leikmenn
semja við ÍA
Skallagrímur vann góðan útisigur
á Njarðvík í fyrsta leik liðsins eftir
jólafrí síðastliðinn laugardag. Eftir
jafnan leik framan af kláraði Skalla-
grímur leikinn í fjórða leikhluta og
sigraði, 61-76.
Jafnræði var með liðunum í upp-
hafsfjórðungnum. Gestirnir skoruðu
fyrstu stigin en Skallagrímur jafn-
aði í 6-6 og eftir það fylgdust lið-
in að. Undir lok leikhlutans náðu
Skallagrímskonur síðan smá rispu og
leiddu með fjórum stigum að fyrsta
fjórðungi loknum, 11-15. Njarðvík-
urliðið var heldur ákveðnara í upp-
hafi annars leikhluta og náði foryst-
unni um hann miðjan, 20-19. En
heimakonur leiddu aðeins örstutta
stund, því Skallagrímur lauk fyrri
hálfleik af krafti og hafði sjö stiga
forskot í hléinu, 29-36.
Njarðvíkurliðið kom held-
ur ákveðnara til síðari hálfleiks og
minnkaði muninn snarlega í tvö stig
og fylgdi Skallagrími eins og skugg-
inn næstu mínúturnar þar á eftir.
En enn luku Skallagrímskonur leik-
hluta af krafti og með því tryggðu
þær sér sex stiga forskot fyrir loka-
fjórðunginn,46-52. Það var þá sem
Skallagrímur tók öll völd á vellinum
og náði að slíta sig frá heimaliðinu,
sem átti mjög erfitt uppdráttar síð-
ustu mínúturnar. Fór svo að lokum
að Skallagrímur sigraði með 15 stig-
um, 61-76.
Carmen Tyson-Thomas var at-
kvæðamest í liði Skallagríms með 25
stig, tólf fráköst og fimm stoðsend-
ingar. Ziomora Esket Morrison kom
henni næst 18 stig og ellefu fráköst.
Í liði Njarðvíkur var Shalonda
Winton algerlega sér á parti með
34 stig og 15 fráköst en aðrar höfðu
minna.
Skallagrímur situr í sjötta sæti
deildarinnar með 14 stig eftir 15 leiki,
tveimur stigum á eftir Breiðabliki
í sætinu fyrir ofan og jafn mörgum
stigum á undan Snæfelli í sætinu fyr-
ir neðan. Vesturlandsliðin tvö mætast
einmitt í Borgarnesi í næstu umferð.
Sá leikur fer fram miðvikudaginn 17.
janúar. Fyrst leikur Skallagrímur hins
vegar aftur gegn Njarðvík, en í und-
anúrslitum bikarsins. Bikarleikurinn
fer fram á morgun, fimmtudaginn
11. janúar, í Laugardalshöll.
kgk
Kláruðu leikinn í
lokafjórðungnum
Carmen Tyson-Thomas og liðsfélagar
hennar í Snæfelli gerðu góða ferð til
Njarðvíkur. Ljósm. úr safni/
Skallagrímur.
Skagamaðurinn Björn Bergmann
Sigurðarson hefur verið seld-
ur frá Molde í Noregi til rúss-
neska úrvalsdeildarliðsins FC Ro-
stov. Greint var frá félagaskipt-
unum á heimasíðu Molde á föstu-
dag. Björn er 26 ára gamall og hef-
ur leikið með Molde frá því sum-
arið 2016 og var markahæsti leik-
maður liðsins á liðnu keppnistíma-
bili með 16 mörk. Þá var hann enn
fremur valinn í lið ársins í Noregi
og tilnefndur sem leikmaður árs-
ins. Á heimasíðu Molde er haft eft-
ir Birni að honum hafi líkað vel að
spila með Molde og að hann hafi
lært margt af Ole Gunnar Solskjær,
þjálfara liðsins. „En þetta er tæki-
færi til að spila á hærra plani og ég
varð að grípa það,“ segir hann.
Björn á að baki níu landsleiki fyr-
ir A landslið Íslans og hefur hann
skorað í þeim eitt mark. Var hann
fastamaður í íslenska hópnum
sem hefur tryggt sér farseðilinn á
HM í Rússlandi næsta sumar. Vel
að merkja þá er liðið FC Rostov í
borginni Rostov, þar sem Ísland
mun leika gegn Króatíu í lokaleik
riðlakeppninnar á heimsmeistara-
mótinu 26. júní næstkomandi.
kgk
Björn Bergmann til FC Rostov