Skessuhorn - 10.01.2018, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 10. JANúAR 201810
Skömmu fyrir jól fékk kvenna-
deild Heilbrigðisstofnunar Vestur-
lands á Akranesi góða gjöf. Þá kom
ung móðir, Myrra Ösp Gísladóttir á
Akranesi, færandi hendi á deildina.
Hafði hún í fórum sínum ellefu bux-
ur sem hún færði deildinni að gjöf
fyrir ungabörnin sem þar eiga eft-
ir að koma í heiminn. „Hún Myrra
hefur fætt tvö af fjórum börnum sín-
um hér á fæðingadeildinni og kunn-
um við henni bestu þakkir fyrir gjöf-
ina,“ segir Anna Björnsdóttir deild-
arstjóri. kgk
Færði kvenna-
deildinni gjöf
Buxurnar góðu sem Myrra Ösp færði kvennadeild HVE á Akranesi.
Hámark greiðslna úr Fæðingaror-
lofssjóði til foreldra í fæðingaror-
lofi hefur verið hækkað sem nemur
20.000 kr. á mánuði. Kveðið er á um
hækkanir fæðingarorlofsgreiðslna
og fæðingarstyrks í reglugerð Ás-
mundar Einars Daðasonar félags-
og jafnréttismálaráðherra sem tók
gildi 1. janúar sl. Ásmundur Einar
segir þetta fyrsta skrefið í áformum
stjórnvalda um aukinn stuðning við
barnafjölskyldur með hækkun or-
lofsgreiðslna og lengingu fæðingar-
orlofsins. Fyrir dyrum standi að end-
urskoða fæðingarorlofskerfið með
þetta að markmiði, líkt og fjallað sé
um í stjórnarsáttmálanum: „Í þessu
felst ekki einungis fjárhagslegur
stuðningur, heldur einnig félagsleg-
ur þar sem markmiðið er að börn fái
notið samvista með foreldrum sín-
um á fyrstu mánuðum lífs síns. Eins
er það mikilvægt jafnréttismál að
feður nýti rétt sinn til fæðingaror-
lofs en á því hefur verið alvarlegur
misbrestur síðustu ár, eða frá því að
farið var að skerða hámarksgreiðsl-
urnar í kjölfar efnahagshrunsins“
segir Ásmundur Einar.
Breytingar á fjárhæðum sam-
kvæmt reglugerðinni öðlast gildi
1. janúar 2018 og eiga við um for-
eldra barna sem fæðast, eru ættleidd
eða tekin í varanlegt fóstur 1. janú-
ar 2018 eða síðar. Breytingarnar eru
eftirfarandi:
Hámarksgreiðsla hækkar úr
500.000 kr. í 520.000 kr.
Lágmarksgreiðsla fyrir 25-49%
starf hækkar úr 118.335 kr. í 123.897
kr.
Lágmarksgreiðsla fyrir 50-100%
starf hækkar úr 164.003 kr. í 171.711
kr.
Fæðingarstyrkur til foreldra utan
vinnumarkaðar eða í minna en 25%
starfi hækkar úr 71.563 kr. í 74.926
kr.
Fæðingarstyrkur til foreldra í
fullu námi hækkar úr 164.003 kr. í
171.711 kr.
Eldri fjárhæðir (greiðslur úr Fæð-
ingarorlofssjóði 2017) gilda áfram
vegna barna sem fæddust, voru ætt-
leidd eða tekin í varanlegt fóstur á
tímabilinu 15. október 2016 - 31.
desember 2017 og til barna sem
fæddust, voru ættleidd eða tekin í
varanlegt fóstur fyrir 15. október
2016.
mm
Hámarksgreiðslur
í fæðingarorlofi
hækka í 520.000
Ásmundur Einar Daðason félags-
málaráðherra.
Nýfætt barn. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Slökkvilið Akraness og Hvalfjarð-
arsveitar var í tvígang þriðjudags-
kvöldið 2. janúar sl. kallað út vegna
gróðurelda á skógræktarsvæði bæj-
arbúa. Fyrra útkallið barst klukkan
8:30 og logaði þá í gróðri við und-
irgöngin við Klapparholt. Slökkvi-
starf gekk vel. Síðan klukkan 23:37
barst útkall að nýju en þá logaði
eldur á öðrum stað í skógræktinni.
Þráinn Ólafsson slökkviliðsstjóri
metur að um hálfur hektari lands
hafi brunnið og eitthvað af skóg-
arplöntum þar með. Um orsak-
ir brunans vildi Þráinn ekkert út-
tala sig um, en benti á að lögregla
færi með rannsókn á orsökum þess
að í tvígang kviknaði í á svipuðum
slóðum sama kvöldið. Þráinn lýsti
jafnframt áhyggjum sínum yfir að
slökkvilið hefur í tvígang um há-
tíðirnar verið kallað út. Kveikt var
í gámum, annars vegar við Jaðars-
bakka og hins vegar Bíóhöllina.
mm/ Ljósm. ki.
Í tvígang gróðureldar á sama stað
Í birtingu næsta
morgun mátti sjá að
svæðið sem brann
var töluvert stórt
og nokkur tré höfðu
orðið eldi að bráð.
Þannig leit seinni bruninn út séð frá íbúðarhúsum við Asparskóga.
Breytingartillaga Fjárlaganefnd-
ar þess efnis að veita 150 milljón-
um króna í Þjóðgarðsmiðstöðina á
Hellissandi á árinu 2018, var sam-
þykkt með öllum greiddum at-
kvæðum við aðra umræðu fjárlaga
22. desember síðastliðinn. „Þetta
gerir það að verkum að hægt verður
að setja fullan kraft í framkvæmdir
á árinu 2018 og reikna má með að
miðstöðin verði tilbúin til noktun-
ar í byrjun árs 2020,“ segir Kristinn
Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæj-
ar. Hann skrifar á upplýsingasíðu
sveitarfélagsins að þar komi einn-
ig fram að heildarkostnaður við
byggingu miðstöðvarinnar sé áætl-
aður um 380 milljónir króna. „Það
er mjög mikilvægt fyrir svæðið að
þjóðgarðurinn fái eigið húsnæði
undir starfsemi sína og ekki síst að
þar verði aðstaða fyrir sýningar og
kynningarmál hjá þjóðgarðinum,
auk aðstöðu fyrir starfsfólk.“
Fyrsta skóflustungan að Þjóð-
garðsmiðstöð á Hellissandi var tek-
in af Sigrúnu Magnúsdóttur, þá-
verandi umhverfisráðherra, í ágúst-
mánuði árið 2016. Bygging mið-
stöðvarinnar á sér þó talsvert lengri
aðdraganda. Það var fyrir tólf árum,
árið 2006, sem efnt var til hönn-
unarsamkeppni um miðstöðina og
varð Jökulhöfði, hönnun teikni-
stofunnar Arkís ehf., hlutskörp-
ust í þeirri keppni. Við hrunið og
þrengingar í ríkisfjármálum í kjöl-
far þess fór málið hins vegar í bið
í áratug, eða allt þar til umhverfis-
ráðherra ákvað árið 2016 að hafist
yrði handa. Til dæmis var 50 millj-
óna króna fjárveiting skorin út af
fjárlögum ársins 2009 vegna gjald-
þrots íslensku bankanna. „Ekkert
þýðir að horfa til baka heldur fagna
þessum áfanga og þeim tækifærum
sem skapast í kringum hann fyrir
samfélagið, sérstaklega í ljósi þess
mikla ferðamannafjölda sem heim-
sækir svæðið ár hvert,“ segir Krist-
inn Jónasson. kgk
Ríkið leggur 150 milljónir í
Þjóðgarðsmiðstöðina á Hellissandi
Teikning Arkís ehf. að Jökulhöfða, Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi.