Skessuhorn


Skessuhorn - 10.01.2018, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 10.01.2018, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 10. JANúAR 201814 Það var mikið um að vera um borð í Rifsnesi SH í jólastoppinu. Fór þá Hraðfrystihús Hellissands ásamt Smiðjunni Fönix í það verkefni að rífa aðalvélina í Rifsnesinu. Vélin er af gerðinni Yanmar M220-SN 1100 hestöfl. Skipt var um höfuð- legur, stangarlegur og pakkning- ar. Stimplar, slífar og hedd voru sett í nýja hátíðniþvottavél sem Smiðjan Fönix keypti á dögun- um. Böðvar Haukdal Jónsson yf- irvélstjóri á Rifsnesinu hafði yfir- umsjón með verkinu. Fjöldi manns kom einnig að verkinu með hon- um, til að mynda áhafnarmeðlim- ir skipsins ásamt Rögnvaldi Ólafs- syni og starfsmönnum Smiðjunnar Fönix. Gekk verkið mjög vel enda samhentur hópur og góður andi í mannskapnum en Rifsnesið er nú í sínum fyrsta túr eftir vélarupp- tektina. Smiðjan Fönix sá einnig á dög- unum um að setja nýja aðalvél í Særif SH. Vélin sem tekin var úr var 16 lítra Isuzu vél en nýja vélin er 16,3 lítra Scania. Var það gert meðan báturinn var á floti en sök- um stærðar hans var ekki hægt að taka Særif upp á land nema með miklum tilkostnaði. Gerði það verkefnið erfiðara en allt virðist hafa gengið að óskum í því verk- efni og er Særifið í sínum tólfta róðri eftir vélaskiptin. Meðfylgj- andi myndir eru úr þessum tveim- ur verkefnum. þa Vélaskipti og viðgerðir unnar af Smiðjunni Fönix Safnkostur Amtsbókasafnsins í Stykkishólmi hefur verið fluttur frá Hafnargötu 7 í nýtt Amtsbóka- safn við Borgarbraut 6, sambyggt grunnskólanum. Það eru félagar í Lionsklúbbi Stykkishólms sem undanfarnar vikur hafa unnið að því að flytja safnkostinn. „Við tókum að okkur að flytja safnið. Það gerð- um við líka fyrir ellefu árum þegar flutt var úr gamla safninu og niður í bráðabirgðahúsnæðið við Hafnar- götu. Komið var að máli við okk- ur í haust og spurt hvort við vær- um ekki til í að taka þetta að okk- ur og við urðum við því,“ segir Ey- þór Benediktsson, félagi í Lions- klúbbi Stykkishólms, í samtali við Skessuhorn. „Þetta eru að minnsta kosti nokkur hundruð kassar af bókum og ógrynni af tímaritum sem til er á safninu, því það var á sínum tíma eitt af prentskilasöfn- um landsins. Hluta af tímaritun- um sem við pökkuðum fyrir ellefu árum og fluttum erum við búnir að flytja aftur í nýtt húsnæði, án þess að þau hafi verið tekin úr kössun- um í millitíðinni,“ segir hann létt- ur í bragði. Skemmtilegustu verkefnin Að sögn Eyþórs hófust Lionsmenn handa við flutningana milli jóla og nýárs og hafa verið að á kvöld- in síðan 2. janúar. „Það hafa mætt þeir Lionsmenn sem geta hverju sinni. Ekki eru allir færir um að bera þunga kassa en það eru fleiri verkefni og allir geta gert eitthvað. Margar hendur vinna létt verk og við erum að verða búnir. Langmest er komið uppeftir í nýja safnið og á bara eftir að taka upp þar og koma fyrir á sínum stað. Við Lionsmenn verðum eitthvað við það líka, und- ir stjórn Nönnu Guðmundsdóttur, forstöðumanns safnsins,“ segir Ey- þór og bætir því við að Lionsmenn hafi haft gaman af verkinu. „Þetta er auðvitað fjáröflun fyrir klúbb- inn, eins og annað, sem við munum síðan skila til baka í samfélagið. En þetta er miklu skemmtilegra en að ganga í hús og selja. Þarna fáum við að vinna saman í góðum félagsskap. Það eru alltaf skemmtilegustu verk- efnin,“ segir Eyþór. Stefnt að opnun í lok næstu viku Nanna Guðmundsdóttir, forstöðu- maður Amtsbókasafnsins, segir í samtali við Skessuhorn að flutn- ingarnir hafi gengið vel. „Það hef- ur gengið ótrúlega vel að færa safn- kostinn á milli húsa, Lionsfélagar hafa verið öflugir við flutningana. Við náðum að tæma gamla húsið á styttri tíma en reiknað var með og gátum skilað því af okkur síðasta laugardag,“ segir Nanna í samtali við Skessuhorn. Hún segir þó enn töluverða vinnu framundan áður en hægt verður að opna safnið á nýj- um stað. „Það er hellings vinna eft- ir við að raða í hillur og koma safn- inu upp. Það er búið að raða í tvær hillur af um það bil tvö hundruð,“ segir hún og hlær við. „Þannig að næstu dagar munu fara í að taka upp bækur og blöð, flokka og koma á sína staði. Lionsfélagar munu verða mér innan handar við þá vinnu og það verður gott að fá auka hendur til verksins,“ bætir hún við. Aðspurð kveðst Nanna vona að hægt verði að opna safnið í lok næstu viku en vill þó ekki slá neinu föstu. „Það er engin staðfest dag- setning en við stefnum að því geta opnað í kringum 20. janúar,“ segir hún. Mun betri aðstaða Frá því Nanna tók við starfi for- stöðumanns Amtsbókasafnsins í september hefur hún aðallega feng- ist við að undirbúa flutninginn. Hún kveðst því ánægð að nú hilli undir opnun á nýjum stað. „Það er mjög spennandi að flytja í nýtt hús og verður gaman að geta farið að byggja upp safnið í staðinn fyrir að vera fyrst og fremst að pakka nið- ur. Frá opnun verður opið á safn- inu alla virka daga, eins og var áður, og ég vonast til að geta með tíð og tíma innleitt einhverjar nýjungar í starfið. Ég myndi til dæmis gjarnan vilja halda fleiri viðburði á safninu fyrir börn og fjölskyldur og hafa opið einhverja daga um helgar. Það eru ýmsir möguleikar sem opnast með nýju og rýmra húsi. Aðstaðan verður mun betri bæði fyrir gesti og starfsfólk á nýja staðnum,“ seg- ir Nanna Guðmundsdóttir að end- ingu. kgk/ Ljósm. Eyþór Ben. Búið að flytja safnkost Amtsbókasafnsins í nýtt húsnæði Stefnt að opnun á nýjum stað síðar í mánuðinum Safnkosturinn kominn ofan í kassa og búið að taka niður hillur á Hafnargötunni. Ísleifur Jónsson pakkar skáldsögum ofan í kassa. Nokkrir félagar úr Lionsklúbbi Stykkishólms ásamt Nönnu Guðmundsdóttur, for- stöðumanns Amtsbókasafnsins, í lok vinnukvölds á nýja safninu við Borgarbraut.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað: 2. tölublað (10.01.2018)
https://timarit.is/issue/405055

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

2. tölublað (10.01.2018)

Aðgerðir: