Skessuhorn


Skessuhorn - 10.01.2018, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 10.01.2018, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 10. JANúAR 201824 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmar 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 7 Sprautu- og bifreiðaverkstæði Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti Þjónustum öll tryggingafélög Borgarness Enn eitt árið er liðið og það kem- ur ekki aftur. Framundan er nýtt ár og enginn veit hvað það ber í skauti sér. Vafalítið munu skiptast á skin og skúrir á árinu sem er að hefjast og vandamálin verða mörg til að leysa. Ný ríkisstjórn hefur tekið við að nýafstöðnum kosn- ingum, vonandi tekst henni vel til. Vonir eru bundnar við það að hún taki á ýmsum málum, sem nauð- synlegt er að bæta svo sem heil- brigðismálum, samgöngumálum og málefnum almennra launþega og ekki síst þeirra sem minna mega sín. Allavega er ljóst að það skiptir miklu máli að öll grunnþjónusta sé í lagi og að kaupmáttur launafólks haldist sem bestur. Jafnframt þarf að hlúa að rekstrarumhverfi fyrir- tækja almennt í landinu. Miklar vonir eru bundnar við það að ný ríkisstjórn nái að breyta vinnubrögðum á Alþingi, það er að hin mismunandi öfl samfélags- ins sjái sig tilknúin til þess að vinna saman og sigla þjóðarskútunni sem öruggasta leið gegnum brimskafla þjóðlífsins. Auðvitað er það besta lausnin takist að taka upp ný og bætt vinnubrögð á Alþingi, þar sem þingmenn taka saman hönd- um um að leysa úrlausnarmálin á sem farsælastan hátt fyrir þjóðina. Eftir slíkum vinnubrögðum er kallað í dag. Spennandi verður að sjá hvernig tiltekst í þeim efnum. Í desember luku flest sveitarfé- lög í landinu við fjárhagsáætlanir sínar fyrir komandi ár. Þar eru sett fram markmið fyrir nýtt ár. Enn- fremur og samhliða þessari vinnu er skoðað hvernig til hefur tekist á árinu sem er að kveðja. Enda þótt atvinnulífið hafi ver- ið með ágætum hér í Grundarfirði þá setti sjómannaverkfallið óneit- anlega mikið strik í reikninginn. Verkfall af þessum toga er sérstak- lega erfitt í sjávarbyggð eins og Grundarfjörður er. Langstærstur hluti atvinnulífsins byggir á fisk- veiðum og fiskvinnslu og þjón- ustu við þessar greinar. Mikilvægt er því að fulltrúar launþega og at- vinnurekenda nái að semja um kaup og kjör með öðrum hætti en nýtingu verkfallsvopnsins. Tekjur margra heimila og fyrirtækja eru talsvert lægri á árinu 2017 en ella hefði verið ef ekki hefði komið til sjómannaverkfall, sem stóð allt of lengi. Í bæjarsjóði sést þetta best á því að útsvarstekjur sveitarfélags- ins hafa ekki hækkað milli áranna 2016 og 2017 eins og áætlanir gerðu ráð fyrir. Slíkt er að sjálf- sögðu bagalegt. Að öðru leyti hefur rekstur sveitarfélagsins gengið með ágæt- um. Flest hefur verið gert af því sem áætlað var fyrir í fjárhagsáætl- un ársins 2017. Almennt náðist að sinna allri grunnþjónustu í sveit- arfélaginu eins og til stóð. Auk þessa var unnið að margvíslegum framkvæmdum í sveitarfélaginu. Helst er þar að nefna framkvæmd- ir við lagfæringu gatna og mal- bikun þeirra, lagfæringu útrásar undir Sæbóli, viðgerðir á húsnæði grunnskólans, aðgengi og um- hverfi sundlaugarinnar, nýtt gervi- gras sett á sparkvöllinn, ný tæki voru keypt fyrir áhaldahúsið og sérstakar klippur fyrir slökkvilið- ið, sem geta skipt sköpum þegar vá ber að dyrum. Þá var áfram unnið að endurskoðun aðalskipulags fyr- ir bæinn og er við það miðað að því ljúki á komandi vori. Hafist var handa við gróðursetningu í Paim- pol garði, unnið að fjárgirðing- um umhverfis bæinn, gerðar lag- færingar á þaki íbúða að Hrann- arstíg 18, jafnframt var bætt að- koma utan við sundlaug og gerðar lagfæringar á tjaldsvæði bæjarins. Auk þessa var ráðist í margvísleg verkefni í viðhaldi tækja og húsa- kosts bæjarins sem nauðsynlegt var að sinna. Ennfremur verður ekki komist hjá því að minnast á það að unnið hefur verið á árinu að ljósleiðara- væðingu í dreifbýli sveitarfélags- ins og er vonast til að því verki verði lokið á komandi vori. Jafn- framt hefur verið unnið að undir- búningi að stækkun Norðurgarðs hafnarinnar og hefur þá helst ver- ið skoðuð hönnun á mannvirkinu og námumál bæði til lands og sjáv- ar. Þá hefur einnig verið unnið að skipulagi og hönnun á bættu að- gengi við Kirkjufellsfoss. Á árinu skoðuðu sveitarfélögin Grundarfjarðarbær, Helgafells- sveit og Stykkishólmsbær hag- kvæmni þess að sveitarfélögin yrðu sameinuð í eitt sveitarfélag. Endurskoðunarfyrirtækið KPMG var fengið til þess að aðstoða sveit- arfélögin við þessa athugun. Nið- urstaða þeirra mála var sú að ekki var talinn nægjanlegur ávinning- ur í slíkri sameiningu fyrir sveit- arfélögin til þess að ráðist yrði í kosningar um sameiningu. Að svo stöddu verður því ekkert af sam- einingu sveitarfélaganna, hvað svo sem framtíðin ber í skauti sér. Þrátt fyrir að margt hafi verið gert hefur tekist að greiða niður skuldir og skiptir það miklu fyrir rekstur sveitarfélagsins til fram- tíðar. Skuldsetning sveitarfélags- ins hefur til skamms tíma verið of mikil. Árangur hagræðingar og aðhalds er að skila sér í lækk- un heildarskulda sveitarfélagsins. Þessi árangur mun auðvelda okk- ur róðurinn inn í framtíðina. Í fjárhagsáætlun Grundarfjarð- arbæjar fyrir árið 2018 var ákveðið að stilla álögum á íbúa í hóf. Marg- ar gjaldskrár eru óbreyttar milli ára. Má þar nefna fasteignagjöld, leikskólagjöld, sem verða óbreytt milli ára, fæðisgjald í leikskóla og skóla hækkar um áætlaða verðlags- breytingu. Gjaldskrár sundlaugar, bókasafns og tjaldsvæðis eru einn- ig að mestu óbreyttar. Ákvörðun um litlar hækkanir á gjaldskrám sveitarfélagsins skila sér til íbú- anna. Jafnframt er ákvörðunin tekin í þeirri von að hin alkunna verðbólga sem Íslendingar þekkja vel fari ekki á skrið. Mikill hagur er í því fólginn að verðbólgustig haldist lágt. Með því móti verð- ur mun betra að reka fyrirtæki og heimili landsins en ella væri. Nýta verður vel tækifæri, sem við höfum til þess að byggja upp atvinnu og þjónustu á svæðinu. Við þurfum að hlúa vel að grunn- atvinnugreinunum og auka veg þeirra sem mest. Mikilvægt er að nýta þá miklu möguleika sem felast í ört vaxandi ferðamanna- straumi til svæðisins. Áhugi fólks er mikill fyrir Snæfellsnesi, enda státar svæðið af gríðarlegri nátt- úrufegurð og hreinleika, sem óhætt er að halda á lofti. Jafnframt er mikilvægt að fjar- skipti séu góð og ekki lakari en best gerist á landinu. Nýjungar í frekari vinnslu sjávarafurða og líf- tækniiðnaður tengdur sjávarút- vegi er einnig mjög áhugaverð- ur. Skapa þarf aukinn fjölbreyti- leika í atvinnuflórunni þ.e. að ungt menntafólk sjái sér hag í því að snúa heim til starfa að afloknu námi. Þrátt fyrir að ávallt sé nokkuð öldurót í efnahagsmálum þjóðar- innar geta Grundfirðingar litið björtum augum til framtíðarinnar. Með samstilltu átaki allra getum við gert gott samfélag enn betra. Landsbyggðafólk á óhikað að halda á lofti kostum þess að búa úti á landi, því þeir eru margir. Með bjartsýni og krafti bæjar- búa er ég fullviss um að nýbyrj- að ár verður gott fyrir okkur hér í Grundarfirði. Ég vil að lokum þakka fyrir samstarfið á árinu sem var að líða og óska öllum Grundfirðingum og nærsveitamönnum farsældar á komandi ári. Þorsteinn Steinsson, bæjarstjóri í Grundarfirði Ljósm. tfk. Nýárspistill bæjarstjórans í Grundarfirði Pennagrein Skagabraut 6, Akranesi - sími: 431-5110/666-5110 www.smaprent.is - smaprent@smaprent.is Hönnum, prentum og merkjum fyrir einstaklinga, hópa, félög, samtök og fyrirtæki Smáprent

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.