Skessuhorn


Skessuhorn - 10.01.2018, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 10.01.2018, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 10. JANúAR 20186 Keppa í Útsvari á föstudaginn AKRANES: Lið Akraness mætir Dalvíkurbyggð í út- svari, spurningakeppni sveit- arfélaganna á RUV, næstkom- andi föstudagskvöld, 12. janú- ar. Akurnesingar komust áfram í aðra umferð eftir að hafa lagt lið Snæfellsbæjar með 74 stig- um gegn 31 snemma í haust, en Dalvíkingar sigrðuðu lið Skeiða- og Gnúpverjahrepps 57-50 í fyrri umferð keppninn- ar. Á meðfygljandi mynd er lið Akurnesinga, en það skipa sem fyrr þau Gerður Jóhanna Jó- hannsdóttir, Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir og Örn Arn- arson. -kgk Fella tíma- bundið niður gatnagerðargjöld REYKHÓLAHR: Sveitar- stjórn Reykhólahrepps sam- þykkti á fundi sínum um miðj- an desembermánuð reglur um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda af íbúðar- húsalóðum. Ástæða niðurfell- ingarinnar er aukin eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði í Reyk- hólahreppi og markmiðið er að hvetja til nýbyggingar íbúðar- húsnæðis. Reglurnar tóku gildi tafarlaust, 14. desember síðast- liðinn, og gildistími þeirra er eitt ár. -kgk Hækka tómstunda- framlög barna AKRANES: Frá nýliðnum áramótum hækkar tómstunda- framlag Akraneskaupstað- ar um tíu þúsund krónur og verður framlag kaupstaðarins til íþrótta- og tómstundaiðk- unar barna 35.000 krónur fyr- ir eitt barn. Tómstundafram- lagið hækkar síðan um 25% fyrir annað barn og aftur um 25% við þriðja barn. Framlag- ið skiptist því þannig að for- eldri með eitt barn fær 35.000 kr., foreldri með tvö börn 39.375 krónur á hvert barn og foreldri með þrjú börn ær 44.479 á hvert barn. Á bæjar- vefnum sagði fyrir helgi að for- eldrar geti innan tíðar skráð sig í íbúagátt Akraneskaupstað- ar og athugað stöðu/nýtingu tómstundaframlagsins. Fram- lagið má nota til að greiða fyr- ir þátttöku í ýmsu tómstunda- og íþróttastarfi samkvæmt sér- stökum reglum þar um. -mm Ungur Akurnes- ingur lést KJALARNES: Harður árekst- ur flutningabíls og fólksbíls varð á Vesturlandsvegi á Kjal- arnesi að morgni miðviku- dagsins 3. janúar. Ökumað- ur fólksbílsins lést. Hann hét Einar Þór Einarsson, var 37 ára gamall og búsettur á Akra- nesi. Einar Þór var ógiftur og barnlaus. Niðurstaða rann- sóknar á tildrögum slyssins liggur ekki fyrir. -mm Datt í hálkunni ÓLAFSVÍK: Snemma á mánudagsmorgun var ósk- að eftir þyrlu Landhelgis- gæslunnar til að sækja slasaða konu í Ólafsvík. Konan sem vinnur við útburð á dagblaði hafði dottið í mikilli hálku og slasast. Þyrlan sótti kon- una og flutti til aðhlynning- ar á Landspítalanum. Hún er samkvæmt heimildum Skessu- horns á batavegi. -mm Aflaverðmæti minnkaði HB GRANDI: Aflaverðmæti skipa HB Granda dróst saman á milli áranna 2016 og 2017. Aflaverðmætið var um 11,8 milljarðar króna í fyrra sem er samdráttur upp á ríflega 15% frá árinu 2016. Heildarafli jókst þó úr tæplega 142 þús- und tonnum í tæplega 152.500 tonn en aflaaukingin skýrist öll af auknum uppsjávarafla. -mm Haraldur Benediktsson, fyrsti þing- maður Norðvesturkjördæmis og varaformaður fjárlaganefndar Al- þingis, gagnrýnir þá stöðu sem sífellt er að koma upp og rekja má til skerts rekstraröryggis í ferjusiglingum hér við land. Telur hann gæðamálum rekstraraðila ferjanna vera ábóta- vant. Gagnrýni sína setur hann fram í pistli sem hann ritar á Facebook síðu sína. Varðandi stöðu ferjusigl- inga skrifar Haraldur meðal annars: „Í nefndaráliti meirihluta fjárlaga- nefndar um fjárlagafrumvarp fyr- ir árið 2018 er rætt um samgöngu- mál. Þar er m.a. fjallað um ferjumál. Meirihluti fjárlaganefndar er þar að fjalla um framtíð og áskoranir í rekstri á a.m.k. tveimur ferjum, sem gegna afar mikilvægu hlutverki. Það er rekstur á Herjólfi til Vestmanna- eyja og Baldur sem siglir á Breiða- firði. Í áliti meirihlutans er undir- strikað mikilvægi á góðu rekstrarör- yggi á þessum tveimur leiðum. Þar er m.a. fjallað um endurnýjun á ferj- um og varaferjur.“ Hefðu átt að eiga til varahluti Þá skrifar Haraldur: „Ég er að missa trú á núverandi fyrirkomulagi. Það hafa verið slík áföll við rekstur á Herjólfi og Baldri að ekki er leng- ur boðlegt annað en að samgöngu- yfirvöld rannsaki sérstaklega hvern- ig stjórnun og gæðamálum þess aðila sem rekur þær ferjur er háttað. Mörg hundruð króna klúður við viðhald á Herjólfi í haust, þarfnast rannsókn- ar. Það dugar ekki að segja að þetta sé leiðinlegt og óheppilegt. Það verður að skýra hvað fór úrskeiðis og hvernig á að taka á þeim bresti. Al- þingi samþykkti verulegar fjárhæðir á fjáraukalögum til að bregðast við margföldum kostnaði vegna þessa – kostnað sem vönduð vinnubrögð hefðu vafalaust getað lækkað veru- lega. Eins og t.d. að eiga varahlutina til, þegar viðgerð hefst og byrjað var að rífa skipið.“ Enn eitt klúðrið Haraldur segir að einn eitt klúðrið hafi vafið hressilega upp á sig. „Ferj- an Baldur er stopp svo vikum skipt- ir. Ekki er útlit fyrir að hún komist aftur í gang fyrr en undir lok janúar. Þá hefur hún væntanlega verið stopp í tvo mánuði. Sveifarás brotnar og það tekur tvo mánuði að koma því í lag! Nú virðist málið snúast um að það vantaði tvo varahluti með nýj- um sveifarás – og það kemur ekki í ljós fyrr en á að setja vélina saman. Hvaða gæðaferli er þarna í gangi,“ spyr þingmaðurinn. Efast um hæfi rekstraraðila Loks segir Haraldur að það sé at- vinnu- og mannlíf í tveimur af „verð- mætustu“ eyjum og landshlum okk- ar; Vestmannaeyjar og sunnanverð- ir Vestfirðir, sem blæði fyrir þetta. „Ekki ætla ég hér að rekja þá gífur- legu hagsmuni sem liggja hér undir. Aðeins að segja það eitt – að óveður yfir Vestfirði getur haft miklar afleið- ingar og það er varla boðlegt að vísa þungaflutningum eftir þeim vegum sem þar liggja í mesta skammdeginu. Vegagerðin virðist næsta ráðalaus. Eimskip virðist lítið þurfa að leggja á sig að halda þjóðleiðinni yfir hafið opinni. Ég hreinlega efast um hæfi þeirra og til rekstrarins af fenginni reynslu. Ég vildi gjarnan fá að vita og skilja hvernig ábyrgð á milli Vega- gerðarinnar og rekstraraðilans Eim- skips er háttað, í slíkum tilfellum,“ skrifar Haraldur og bætir við að sagt er að ekki sé möguleiki á að finna varaferju. „Þegar þing kemur sam- an í janúar mun ég senda samgöngu- ráðherra fyrirspurn og óska eft- ir upplýsingum um til hverra Vega- gerðin hafi leitað og hver svör hafa verið um að fá leigða ferju og hve- nær slíkar fyrirspurnir voru gerðar. Það þarf auðvitað að rannsaka þetta ítarlega og spyrja um áætlanir þegar slíkar aðstæður koma upp. En líklega eru svör við slíkum spurningum fljót skrifuð – engin. Það er ekki í boði að láta sem ekkert sé – slíkt klúður og áföll geta ekki verið endalaust af- greidd sem einstök óheppni. Meðan eru íbúar þessara svæða í fjötrum og óvissu og reikningar sendir á ríkis- sjóð,“ skrifar Haraldur að endingu í pistli sínum. mm Gagnrýnir samninga um ferjusiglingar Herjólfur. Baldur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.