Skessuhorn - 10.01.2018, Síða 24
MIÐVIKUDAGUR 10. JANúAR 201824
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmar 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Enn eitt árið er liðið og það kem-
ur ekki aftur. Framundan er nýtt
ár og enginn veit hvað það ber í
skauti sér. Vafalítið munu skiptast
á skin og skúrir á árinu sem er að
hefjast og vandamálin verða mörg
til að leysa. Ný ríkisstjórn hefur
tekið við að nýafstöðnum kosn-
ingum, vonandi tekst henni vel til.
Vonir eru bundnar við það að hún
taki á ýmsum málum, sem nauð-
synlegt er að bæta svo sem heil-
brigðismálum, samgöngumálum
og málefnum almennra launþega
og ekki síst þeirra sem minna mega
sín. Allavega er ljóst að það skiptir
miklu máli að öll grunnþjónusta sé
í lagi og að kaupmáttur launafólks
haldist sem bestur. Jafnframt þarf
að hlúa að rekstrarumhverfi fyrir-
tækja almennt í landinu.
Miklar vonir eru bundnar við
það að ný ríkisstjórn nái að breyta
vinnubrögðum á Alþingi, það er
að hin mismunandi öfl samfélags-
ins sjái sig tilknúin til þess að vinna
saman og sigla þjóðarskútunni sem
öruggasta leið gegnum brimskafla
þjóðlífsins. Auðvitað er það besta
lausnin takist að taka upp ný og
bætt vinnubrögð á Alþingi, þar
sem þingmenn taka saman hönd-
um um að leysa úrlausnarmálin á
sem farsælastan hátt fyrir þjóðina.
Eftir slíkum vinnubrögðum er
kallað í dag. Spennandi verður að
sjá hvernig tiltekst í þeim efnum.
Í desember luku flest sveitarfé-
lög í landinu við fjárhagsáætlanir
sínar fyrir komandi ár. Þar eru sett
fram markmið fyrir nýtt ár. Enn-
fremur og samhliða þessari vinnu
er skoðað hvernig til hefur tekist á
árinu sem er að kveðja.
Enda þótt atvinnulífið hafi ver-
ið með ágætum hér í Grundarfirði
þá setti sjómannaverkfallið óneit-
anlega mikið strik í reikninginn.
Verkfall af þessum toga er sérstak-
lega erfitt í sjávarbyggð eins og
Grundarfjörður er. Langstærstur
hluti atvinnulífsins byggir á fisk-
veiðum og fiskvinnslu og þjón-
ustu við þessar greinar. Mikilvægt
er því að fulltrúar launþega og at-
vinnurekenda nái að semja um
kaup og kjör með öðrum hætti en
nýtingu verkfallsvopnsins. Tekjur
margra heimila og fyrirtækja eru
talsvert lægri á árinu 2017 en ella
hefði verið ef ekki hefði komið til
sjómannaverkfall, sem stóð allt of
lengi. Í bæjarsjóði sést þetta best á
því að útsvarstekjur sveitarfélags-
ins hafa ekki hækkað milli áranna
2016 og 2017 eins og áætlanir
gerðu ráð fyrir. Slíkt er að sjálf-
sögðu bagalegt.
Að öðru leyti hefur rekstur
sveitarfélagsins gengið með ágæt-
um. Flest hefur verið gert af því
sem áætlað var fyrir í fjárhagsáætl-
un ársins 2017. Almennt náðist að
sinna allri grunnþjónustu í sveit-
arfélaginu eins og til stóð. Auk
þessa var unnið að margvíslegum
framkvæmdum í sveitarfélaginu.
Helst er þar að nefna framkvæmd-
ir við lagfæringu gatna og mal-
bikun þeirra, lagfæringu útrásar
undir Sæbóli, viðgerðir á húsnæði
grunnskólans, aðgengi og um-
hverfi sundlaugarinnar, nýtt gervi-
gras sett á sparkvöllinn, ný tæki
voru keypt fyrir áhaldahúsið og
sérstakar klippur fyrir slökkvilið-
ið, sem geta skipt sköpum þegar vá
ber að dyrum. Þá var áfram unnið
að endurskoðun aðalskipulags fyr-
ir bæinn og er við það miðað að
því ljúki á komandi vori. Hafist var
handa við gróðursetningu í Paim-
pol garði, unnið að fjárgirðing-
um umhverfis bæinn, gerðar lag-
færingar á þaki íbúða að Hrann-
arstíg 18, jafnframt var bætt að-
koma utan við sundlaug og gerðar
lagfæringar á tjaldsvæði bæjarins.
Auk þessa var ráðist í margvísleg
verkefni í viðhaldi tækja og húsa-
kosts bæjarins sem nauðsynlegt
var að sinna.
Ennfremur verður ekki komist
hjá því að minnast á það að unnið
hefur verið á árinu að ljósleiðara-
væðingu í dreifbýli sveitarfélags-
ins og er vonast til að því verki
verði lokið á komandi vori. Jafn-
framt hefur verið unnið að undir-
búningi að stækkun Norðurgarðs
hafnarinnar og hefur þá helst ver-
ið skoðuð hönnun á mannvirkinu
og námumál bæði til lands og sjáv-
ar. Þá hefur einnig verið unnið að
skipulagi og hönnun á bættu að-
gengi við Kirkjufellsfoss.
Á árinu skoðuðu sveitarfélögin
Grundarfjarðarbær, Helgafells-
sveit og Stykkishólmsbær hag-
kvæmni þess að sveitarfélögin
yrðu sameinuð í eitt sveitarfélag.
Endurskoðunarfyrirtækið KPMG
var fengið til þess að aðstoða sveit-
arfélögin við þessa athugun. Nið-
urstaða þeirra mála var sú að ekki
var talinn nægjanlegur ávinning-
ur í slíkri sameiningu fyrir sveit-
arfélögin til þess að ráðist yrði í
kosningar um sameiningu. Að svo
stöddu verður því ekkert af sam-
einingu sveitarfélaganna, hvað svo
sem framtíðin ber í skauti sér.
Þrátt fyrir að margt hafi verið
gert hefur tekist að greiða niður
skuldir og skiptir það miklu fyrir
rekstur sveitarfélagsins til fram-
tíðar. Skuldsetning sveitarfélags-
ins hefur til skamms tíma verið
of mikil. Árangur hagræðingar
og aðhalds er að skila sér í lækk-
un heildarskulda sveitarfélagsins.
Þessi árangur mun auðvelda okk-
ur róðurinn inn í framtíðina.
Í fjárhagsáætlun Grundarfjarð-
arbæjar fyrir árið 2018 var ákveðið
að stilla álögum á íbúa í hóf. Marg-
ar gjaldskrár eru óbreyttar milli
ára. Má þar nefna fasteignagjöld,
leikskólagjöld, sem verða óbreytt
milli ára, fæðisgjald í leikskóla og
skóla hækkar um áætlaða verðlags-
breytingu. Gjaldskrár sundlaugar,
bókasafns og tjaldsvæðis eru einn-
ig að mestu óbreyttar. Ákvörðun
um litlar hækkanir á gjaldskrám
sveitarfélagsins skila sér til íbú-
anna. Jafnframt er ákvörðunin
tekin í þeirri von að hin alkunna
verðbólga sem Íslendingar þekkja
vel fari ekki á skrið. Mikill hagur
er í því fólginn að verðbólgustig
haldist lágt. Með því móti verð-
ur mun betra að reka fyrirtæki og
heimili landsins en ella væri.
Nýta verður vel tækifæri, sem
við höfum til þess að byggja upp
atvinnu og þjónustu á svæðinu.
Við þurfum að hlúa vel að grunn-
atvinnugreinunum og auka veg
þeirra sem mest. Mikilvægt er
að nýta þá miklu möguleika sem
felast í ört vaxandi ferðamanna-
straumi til svæðisins. Áhugi fólks
er mikill fyrir Snæfellsnesi, enda
státar svæðið af gríðarlegri nátt-
úrufegurð og hreinleika, sem
óhætt er að halda á lofti.
Jafnframt er mikilvægt að fjar-
skipti séu góð og ekki lakari en
best gerist á landinu. Nýjungar í
frekari vinnslu sjávarafurða og líf-
tækniiðnaður tengdur sjávarút-
vegi er einnig mjög áhugaverð-
ur. Skapa þarf aukinn fjölbreyti-
leika í atvinnuflórunni þ.e. að
ungt menntafólk sjái sér hag í því
að snúa heim til starfa að afloknu
námi.
Þrátt fyrir að ávallt sé nokkuð
öldurót í efnahagsmálum þjóðar-
innar geta Grundfirðingar litið
björtum augum til framtíðarinnar.
Með samstilltu átaki allra getum
við gert gott samfélag enn betra.
Landsbyggðafólk á óhikað að
halda á lofti kostum þess að búa
úti á landi, því þeir eru margir.
Með bjartsýni og krafti bæjar-
búa er ég fullviss um að nýbyrj-
að ár verður gott fyrir okkur hér í
Grundarfirði.
Ég vil að lokum þakka fyrir
samstarfið á árinu sem var að líða
og óska öllum Grundfirðingum
og nærsveitamönnum farsældar á
komandi ári.
Þorsteinn Steinsson,
bæjarstjóri í Grundarfirði
Ljósm. tfk.
Nýárspistill bæjarstjórans í Grundarfirði
Pennagrein
Skagabraut 6, Akranesi - sími: 431-5110/666-5110
www.smaprent.is - smaprent@smaprent.is
Hönnum, prentum og merkjum
fyrir einstaklinga, hópa, félög, samtök og fyrirtæki
Smáprent