Skessuhorn - 10.01.2018, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 10. JANúAR 2018 7
Námskeið í sjálfsþekkingu, íhugun og sjálfsvinsemd.
Þú lærir að þekkja þig betur, vera og standa betur með
sjálfri/sjálfum þér.
Næstu námskeið á Akranesi hefjast 17. og 18. janúar.
Dagnámskeið, kl. 14 – 16, á miðvikudögum, fjögur skipti.
Kvöldnámskeið, kl. 19.30 – 21.30, á fimmtudagskvöldum,
fjögur skipti.
Nánari staðsetning fer eftir fjölda þátttakenda.
Að þekkja styrkleika sína eflir persónulegan þroska, bætir
geðheilsu, samskipti og eykur líkur á að blómstra bæði í starfi
og einkalífinu sem sá einstaklingur sem þú ert.
Skráning í síma 893-1562,
í netfangið steina@her-nuna.is
eða í gegnum facebook @hernuna.
www.her-nuna.is - sími 893-1562
Styrkleikarnir þínir
Kennari á vinnustof-
unum er Steinunn Eva
Þórðardóttir, stofnandi
Hér núna, reyndur sál-
fræðikennari og ráð-
gjafi með diplóma á
mastersstigi í jákvæðri
sálfræði.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Síðastliðinn laugardag var önnur
tilraun gerð á réttri viku til að fella
með sprengingu efnissílóin á lóð
Sementsverksmiðjunnar á Akra-
nesi. Laust eftir klukkan 16 var svo
sprengt. Mikil druna kvað við en
sílóin högguðust ekki og standa
því áfram jafn skökk á sínum stað.
Ljóst er að efnismagn og járna-
binding í þessum sextíu ára mann-
virkjum er meiri en sprengisér-
fræðingar reiknuðu með. Nú er í
undirbúningi af hálfu Work North
ehf sem annast niðurrifið að beita
öðrum aðferðum en sprengiefni
til að fella hin rammgerðu mann-
virki.
Áfram verður því lokað fyrir
umferð um Faxabraut vegna fram-
kvæmdanna og varir lokunin þar til
búið verður að meta að hún sé fær
m.t.t. öryggis. „Mjög mikilvægt er
að bæjarbúar virði þau mörk sem
sett hafa verið um vinnusvæð-
ið og er gangandi og akandi veg-
farendum ekki heimilt að fara um
Faxabraut eins og staðan er núna.
Verktaka er ljóst að vanmat leiddi
til þess að sprengihleðsla dugði
ekki til að fella geymana í fyrstu
atrennu,“ sagði í tilkynningu frá
Akraneskaupstað sem send var út
á föstudagskvöld vegna fyrirhug-
aðrar sprengingar verktakans dag-
inn eftir.
Í þeirri tilkynningu sagði jafn-
framt að vegna umræðu um útboð
verksins þá þyrfti að koma því á
framfæri að útboðið hafi farið fram
í samræmi við lög um opinber inn-
kaup. „Slíkt útboðsferli er um-
fangsmikið og ríkar kröfur gerð-
ar til bjóðenda. útboðsgögn voru
unnin af verkfræðistofunni Mann-
vit og yfirferð á þeim fór fram hjá
skipulags- og umhverfissviði Akra-
neskaupstaðar og lögfræðistofunni
Landslögum. Þá var jafnframt leit-
að til lögfræðistofunnar Landslaga
um mat á tilboðum áður en tilboði
í verkið var tekið. Sveitarfélagið
mun leitast við að upplýsa íbúa
og hagsmunaaðila um framgang
verksins eftir því sem á líður og
er til að mynda verið að setja upp
Reynt var að sprengja
að nýju en án árangurs
myndavélar sem taka upp fram-
kvæmdirnar og er stefnt að því að
birta á mánaðarfresti upptökur af
framvindu verksins.“
Loks segir í tilkynningu bæjaryf-
irvalda að öðru leyti gangi niðurrif
mannvirkja innan Sementsreitsins
vel. Nú þegar er búið að rífa að
mestu leðjuþró, dæluhús, blásara-
hús, rafsíuhús og sandfæriband en
niðurrif á þeim átti að vera lokið í
byrjun febrúar. Verkið sé því vel á
undan áætlun.
mm
Skömmu fyrir myrkur á laugardaginn var í annað skipti reynt að fella efnissílóin
með sprengingu. Þau högguðust ekki. Líkt og í fyrra skiptið er hægt að skoða upp-
töku af sprengingunni á fréttavef Skessuhorns. Ljósm. mm.
Hér má sjá undir tvö af fjórum sílóunum, Suðurgötumegin. Eins og sjá má eru
mannvirkin rækilega járnabent og massíf og því seigt í þeim. Ljósm. ki.