Skessuhorn


Skessuhorn - 10.01.2018, Page 17

Skessuhorn - 10.01.2018, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 10. JANúAR 2018 17 Hátt í tvö hundruð vaskir hlaup- arar létu ekki smá kulda á sig fá og hlupu árlegt Gamlárshlaup ÍA á gamlársdag. Veðrið var reyndar gott miðað við árstíma og því upp- lagt að hrista af sér steikarslenið. Hitað var upp á Akratorgi og ræst með því að flugeldur var sendur á loft. Hlaupnir voru tveir eða fimm kílómetrar. Að venju var fólk í alls konar búningum í hlaupinu og margir sem krydduðu daginn og kölluðu fram bros með skemmti- legum klæðnaði. úrslit í hlaupinu urðu þau að Sunna Sigurðardótt- ir kom fyrst í mark í tveggja kíló- metra hlaupinu en bróðir henn- ar Arnór Sigurðsson var fyrstur að ljúka fimm kílómetrum. Með- fylgjandi myndir tók Guðmund- ur Bjarki Halldórsson af nokkrum hlauparanna. mm Nýja árið byrjar vel í líkamsrækt- araðstöðunni í Íþróttamiðstöðinni við Jaðarsbakka á Akranesi. Íþrótta- bandalag Akraness hefur að undan- förnu keypt inn nokkur ný tæki og lagt auk þess nýtt gólfefni á hluta húsnæðisins. „Við reynum alltaf að bæta aðstöðuna og endurnýja eitt- hvað á hverju ári en núna fórum við í aðeins meiri framkvæmdir en venjulega. Síðustu tækin voru sett saman um liðna helgi og nýtt gólf- efni lagt inni í tækjasal og að hluta til inni í hliðarsal,“ segir Hildur Karen Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri ÍA, í samtali við Skessuhorn. „Nýja gólfefnið er töluvert meira hljóðdempandi sem breytir miklu fyrir aðstöðuna og dregur úr hávaða þegar lóð falla í gólfið. Við keypt- um einnig tvö ný Assault þrekhjól í tækjasalinn og tvö Assault hlaupa- bretti, sem eru orðin mjög vinsæl meðal notenda. Í tækjasalinn hefur líka verið sett upp stór margnota kaplavél auk þess sem við bættum við handlóðum í báða sali,“ segir Hildur Karen. arg Bætt aðstaða í líkamsræktinni á Jaðarsbökkum Stór margnota kaplavél í líkamsræktarstöðinni. Þarna má sjá hluta af nýja gólfefninu. Meðal þeirra tækja sem bættust við í líkamsræktarstöðina voru tvö Assault hlaupabretti. Hlupu Gamlárshlaup ÍA Nýtt ár, ný markmið Gleðilegt ár kæru lesendur og velkomin í Heilsuhorn Kaju! Áramótin að baki og marg- ir hafa sett sér markmið á nýju ári. Algengustu markmiðin eru að venju að létta sig, hætta ein- hverju eða bæta einhverju inn í sína daglegu rútínu. Markmiðin tengjast oftar en ekki að bæta heilsu og vellíðan sem er bara gott og gilt. En þegar líða tekur á árið renna markmiðin oftar en ekki út í sandinn sennilega sök- um þess að þau voru of háleit og/eða of erfitt að fylgja þeim. Í þessum pistli ætla ég að gefa nokkur góð ráð sem hafa það að markmiði að minnka sykurneysl- una, en ekki að hætta henni al- veg. Með því einu að velja holl- ari viðbættan sykur getur þú stórbætt heilsu þína og um leið minnkað sykurneyslu. En ef við byrjum á byrjunni. Ég legg til að þú lesir fyrstu tvo pistlana mína um viðbættan sykur til þess að þú verðir meðvitaður/meðvituð um hvað viðbættur sykur er og hvaða heiti hann hefur. Í fram- haldi af þeim lestri þá skaltu setja þér markmið um hvaða viðbætta sykur þú ætlar að úti- loka úr mataræði þínu og hvaða viðbætta sykri þú ætlar að halda inni. Ég mæli með að halda inni pálmasykri, hunangi og hlynssír- ópi. En þetta þrennt er náttúruleg- ur sykur sem inniheldur næringu að einhverju leyti. Þessi ákvörð- un, þ.e. að henda út úr mataræði þínu öllum hinum viðbætta sykr- inum, kallar á mjög svo breyttan lífsstíl en samt sem áður getir þú gert þér glaðan dag með pálma- sykri, hunangi og/eða hlynssírópi. Það að fá sér 70% súkkulaði með hrásykri ætti einnig að halda inni enda hefur það lítil áhrif á sykur- púkann. Skýringuna tel ég vera að með neyslu á 70% súkkulaði inn- byrðir þú það mikla næringu að líkaminn segir sjálfkrafa stopp, þ.e. hátt hlutfall kakómassa verður náttúrulegur „sykurfíknar stopp- ari“. Síðan er algjör skylda að lesa innihaldslýsingar þegar farið er að versla og sleppa þeim vörum sem innihalda þann sykur sem eru í banni. Þeir sem hætta í viðbættum sykri fara oft í það að fá sér þurrkaða ávexti og falla í þá gryfju að borða óhóflega af þeim. Til að koma í veg fyrir óhóf þá er besta ráðið að borða ætíð hnetur og/eða fræ með þurrkuðum ávöxtum því próteinið og næringin í hnet- um og fræjum býr til þennan líkamlega „sykurfíknar stopp- ara“. Ég mæli með þessari sam- setningu, möndlur og trönu- ber, kasjúhnetur og apríkosur, fíkjur og heslihnetur, svo eigum við til í Matarbúri Kaju blöndu sem við köllum Kaju blöndu sem er algjör snilld sem milli- mál eða út á morgunmatinn. Nú fyrir kökufíklana þá er mjög gott ráð að nota heilhveiti 2/3 með hvíta hveitinu og nota lífrænan reyrsykur (hrásykur) í staðin fyrir þann hvíta. Næring- in og trefjarnar sem eru í heil- hveitinu og að einhverju leyti í reyrisykrinum verður að hinum náttúrulega „sykurfíknar stopp- ara“. Látum þetta duga í bili en þeir sem vilja frekari upplýsingar eða ráðleggingar geta komið í Matarbúr Kaju mánudaga og þriðjudaga frá kl. 17-18. Lífrænar kveðjur, Kaja Heilsuhorn Kaju

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.