Skessuhorn - 24.01.2018, Qupperneq 26
MIÐVIKUDAGUR 24. JANúAR 201826
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hver er uppáhalds
þorramaturinn þinn?
Spurni g
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Agnes Ásgeirsdóttir
Harðfiskur og hangikjöt.
Hörður Ingi Stefánsson
Hangikjöt og flatbrauð.
Steingrímur Bragason
Svið.
Helgi Björn Hjaltested
Flatbrauð með hangikjöti.
Stefán Magnússon
Hangikjöt.
Brim hf. mun byggja upp eigið
vörumerki undir nafninu „Say Ice-
land“ og selja fullunninn ufsa á nýja
markaði á austurströnd Bandaríkj-
anna, nái tillögur sigurliðs Hnakka-
þons HR og SFS, útflutningskeppni
sjávarútvegsins 2018 fram að ganga.
úrslit keppninnar voru kynnt í HR
í liðinni viku. Í vinningstillögunni er
lagt til að lögð verði aukin áherslu
á íslensk gæði, sjálfbærni og jafnt
framboð allt árið um kring í mark-
aðssetningu á ufsa á Bandaríkja-
markaði. Þróað verði nýtt vöru-
merki „Say Iceland“, og byggð upp
aðstaða til fullvinnslu í Portland í
Maine í Bandaríkjunum, þar sem
ufsinn verði marineraður, reykt-
ur eða hjúpaður brauðraspi. Sér-
stök áhersla verði lögð á markaðs-
setningu á minni einingum fyrir
kantínur háskóla, hjúkrunarheim-
ila og vinnustaða. Sem dæmi um
stærð þess markaðar benda nem-
endurnir á að yfir ein milljón nem-
enda sækir háskóla í New York borg
einni. Í framtíðinni er lagt til að auk-
in áhersla verði lögð á markaðssetn-
ingu beint til neytenda.
Í Hnakkaþoninu reyna nemend-
ur HR með sér í lausn verkefna sem
tengjast íslenskum sjávarútvegi. Í
áskorun Hnakkaþonsins að þessu
sinni þurftu nemendur að finna
leiðir til að auka sölu á sjófrystum
ufsa til hótela og veitingahúsakeðja í
Bandaríkjunum. Verkefnið var þró-
að með Brimi hf, Icelandic, Eimskip
og Samhentum.
„Íslenskur sjávarútvegur er marg-
þætt atvinnugrein sem kallar á mikla
þekkingu og sérhæft starfsfólk.
Meðal viðfangsefna hans eru fisk-
veiðar, matvælavinnsla, markaðs-
setning, nýsköpun og tækniþróun,
flutningar, rannsóknir, umhverfis-
mál og margt fleira. Markmið með
Hnakkaþoninu er að kynna þau
ótalmörgu tækifæri til nýsköpunar
og fjölbreyttu störf sem íslenskur
sjávarútvegur býður upp á og kalla
fram nýjar og frískar hugmyndir frá
nemendum HR. Þá er eitt af meg-
inmarkmiðum Hnakkaþonsins að
minna nemendur á að arðbærni og
góð umgengni um náttúruna verða
að fara saman ef atvinnustarfsemi
á að vera sjálfbær. Hnakkaþonið er
einnig liður í áherslu Háskólans í
Reykjavík á raunhæf verkefni í námi,
í samvinnu við íslenskt atvinnulíf,“
segir í tilkynningu.
Sigurliðið að þessu sinni skipa:
Tinna Brá Sigurðardóttir meistara-
nemi í mannauðsstjórnun og vinnu-
sálfræði, Sóley Sævarsdóttir Meyer
laganemi, Serge Nengali Kuma-
kamba og Yvonne Homoncik skipti-
nemar í lagadeild og Julia Robin de
Niet skiptinemi í tækni- og verk-
fræðideild. Hópurinn mun heim-
sækja Seafood Expo North Amer-
ica, stærstu sjávarútvegssýningu N-
Ameríku í Boston í mars, í boði Ice-
landair Group og sendiráðs Banda-
ríkjanna á Íslandi. mm
Say Iceland vinnur Hnakkaþonið 2017
Snæfellingar máttu játa sig sigr-
aða gegn baráttuglöðum Gnúpverj-
um, 79-83, þegar liðin mættust í 1.
deild karla í körfuknattleik á sunnu-
dag. Liðin fylgdust að fyrstu mínút-
urnar áður en gestirnir náðu fjög-
urra stiga forskoti. Snæfell jafnaði
seint í leikhlutanum en Gnúpverjar
skoruðu síðustu körfuna í fyrsta og
leiddu með tveimur stigum að upp-
hafsfjórðungnum loknum, 21-23.
Snæfell komst yfir snemma í öðrum
leikhluta og hafði fimm stiga for-
skot, 33-28, þegar hann var hálfnað-
ur. Gnúpverjar náðu þá góðri rispu
og komust yfir. Snæfellingar kom-
ust hins vegar yfir að nýju og leiddu
í hléinu, 41-40.
Svipað var uppi á teningnum í
byrjun síðari hálfleiks. Gestirnir
náðu forystunni fljótlega eftir hléið
en Snæfell jafnaði í 53-53 um miðjan
þriðja leikhluta. Gnúpverjar komust
yfir að nýju og héldu forystunni út
leikhlutann, 57-62. Lokafjórðung-
urinn var hálfnaður þegar Snæfell
komst tveimur stigum yfir, 71-69
og héldu þeir tveggja stiga forskoti
næstu mínúturnar. Gestirnir börð-
ust áfram hvað þeir gátu, pressuðu
stíft á heimamenn og það skilaði sér
því Snæfellingar misstigu sig á ög-
urstundu. Þeir fengu á sig óíþrótta-
mannslega villu þegar ellefu sekúnd-
ur lifðu leiks. Gnúpverjar fengu því
vítaskot og boltann og náðu að stela
sigrinum, 79-83.
Christian Covile var stigahæstur
í liði Snæfells með 24 stig og tók
hann tíu fráköst að auki. Nökkvi
Már Nökkvason var með 16 stig og
sex stoðsendingar og Viktor Mar-
inó Alexandersson skoraði 16 stig
einnig. Þorbergur Helgi Sævarsson
skoraði 14 stig og tók ellefu fráköst
en aðrir höfðu minna.
Everage Lee Richardson var í sér-
flokki í liði gestanna. Hann skoraði
38 stig og tók ellefu fráköst. Gabríel
Sindri Möller skoraði 23 stig og tók
níu fráköst og Atli Rúnar Gunnars-
son var með 16 stig og sex fráköst.
Snæfell situr í fimmta sæti deild-
arinnar með 18 stig, fjórum stigum
á eftir næstu liðum fyrir ofan og
fjórum stigum á undan Fjölni í sæt-
inu fyrir neðan. Næst leikur Snæfell
föstudaginn 26. janúar næstkomandi
þegar liðið heimsækir Breiðablik.
kgk
Snæfellingar misstigu
sig á ögurstundu
Nökkvi Már Nökkvason í baráttu við varnarmann Gnúpverja. Ljósm. sá.
Skallagrímur vann góðan sigur á
Breiðabliki í toppslag 1. deildar
karla í körfuknattleik. Leikið var
í Borgarnesi á fimmtudagskvöld.
Eftir góða byrjun gestanna tóku
Skallagrímsmenn öll völd á vell-
inum og sigruðu með 99 stigum
gegn 84.
Blikar voru öflugir í upphafi
og leiddu 10-16 þegar fyrsti leik-
hluti var hálfnaður. Skallagríms-
menn komu sér upp að hlið þeirra
en gestirnir luku upphafsfjórð-
ungnum af krafti og náðu tíu stiga
forskoti, 21-31. Eftir það snerist
taflið við. Snemma í öðrum leik-
hluta komst Skallagrímur yfir og
þeir héldu nokkurra stiga forskoti
allt til loka fyrri hálfleiks. Heima-
menn voru sex stigum yfir í hléinu,
52-46.
Skallagrímsliðið mætti ákveð-
ið til síðari hálfleiks, keyrðu upp
hraðann og gerðu sig líklega til að
stinga af. Blikar héldu í við þá fyrst
um sinn en á seinni hluta þriðja
leikhluta náði Skallagrímur mjög
góðum leikkafla og 19 stiga for-
ystu fyrir lokafjórðunginn, 77-58.
Breiðablik náði að minnka muninn
niður í tíu stig áður en fjórði leik-
hluti var hálfnaður en nær komust
þeir ekki. Skallagrímsmenn léku
af yfirvegun það sem eftir lifði
leiks og hleyptu gestunum ekki
inn í leikinn aftur. Lokatölur urðu
99-84, Skallagrími í vil.
Eyjólfur Ásberg Halldórsson
setti upp enn eina þrennuna í
leiknum á fimmtudag. Hann skor-
aði tólf stig, tók ellefu fráköst og
gaf tíu stoðsendingar. Aaron Parks
var hins vegar stigahæstur í liði
Skallagríms með 26 stig. Bjarni
Guðmann Jónsson og Kristófer
Gíslason voru með 17 stig hvor og
Darrell Flake var með tíu stig og
níu fráköst.
Herbert Jeremy Smith var at-
kvæðamestur í liði Breiðabliks með
30 stig og níu fráköst, Erlendur
Ágúst Stefánsson skoraði 14 stig
og þeir Halldór Halldórsson, Árni
Elmar Hrafnsson og Snorri Vign-
isson tíu stig hver.
Með sigrinum styrkti Skalla-
grímur stöðu sína á toppi deild-
arinnar. Hafa Borgnesingar nú 26
stig í fyrsta sæti og fjögurra stiga
forskot á Breiðablik. Næst leik-
ur Skallagrímur föstudaginn 26.
janúar þegar liðið mætir Vestra á
útivelli.
kgk
Skallagrímur styrkti
stöðu sína á toppnum
Eyjólfur Ásberg Halldórsson setti upp enn eina þrennuna í toppslagnum gegn
Breiðabliki. Ljósm. úr safni/ kgk.