Skessuhorn - 27.03.2018, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 27. mARs 2018 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
snæfellskonur tóku á móti Breiða-
bliki í Domino‘s deild kvenna í
körfuknattleik á laugardaginn í bar-
áttunni um sjötta sætið. Í lok fyrsta
leikhluta leiddu Blikar með tveimur
stigum, 16-18 en Whitney skoraði
fyrstu sjö stig þeirra en fékk fjórar
villur. Vegna þess að Whitney var
komin með fjórar villur urðu Blikar
að skipta í svæðisvörn og var mik-
ið jafnræði með liðunum í öðrum
leikhluta. Í hálfleik leiddu snæfell-
ingar með 34 stig gegn 31.
Leikurinn byrjaði af hörku eft-
ir leikhlé og snemma í þriðja leik-
hluta fékk Whitney fimmtu villuna.
snæfellskonur pressuðu Blika um
allan völl og í lok þriðja leikhluta
voru þær komnar með 12 stiga
forystu, 53-41. Í fjórða leikhluta
komust snæfellskonur í tvígang 15
stigum yfir Blika og var leikurinn
í þeirra höndum. Blikar pressuðu
stíft síðustu mínúturnar og náðu að
minnka forystu snæfellinga niður
í þrjú stig en þar við sat. snæfells-
konur enduðu tímabilið með góð-
um sigri 71-68 í sjötta sæti.
Atkvæðamest í liði snæfells var
Kristan mcCarthy með 32 stig, 19
fráköst og 5 stolna bolta. Á eftir
henni kom Berglind Gunnarsdóttir
með 11 stig. stigahæst hjá Breiða-
blik var Whitney Knight með 15
stig. Næstar voru þær Auður Íris
Ólafsdóttir og Telma Lind Ásgeirs-
dóttir með 14 stig hvor.
arg
Snæfellskonur í
sjötta sæti
Snæfellskonur enduðu tímabilið með
sigri á Blikum. Ljósm. Snæfell.is.
Lokaumferð Dominos deild-
ar kvenna fór fram á laugardag-
inn. Fyrir umferðina var skalla-
grímur í fjórða sæti deildarinn-
ar, jafnt að stigum og stjarnan, en
með hagstæðari úrslit úr innbyrðis
viðureignum. Þrátt fyrir 82-87 tap
skallagríms á laugardaginn gegn
Haukum í Hafnarfirði, verður það
skallagrímskvenna að taka þátt í
úrslitakeppninni því stjarnan tap-
aði fyrir Val sama dag. segja má að
skallagrímskonur hafi þannig stol-
ið fjórða sætinu af stjörnunni með
mögnuðum lokaspretti á mótinu því
þær unnu sex af síðustu sjö leikjum
sínum á lokaspretti mótsins.
Það eru Haukar sem hampa
deildameistaratitlinum og verða því
andstæðingur skallagríms í úrslita-
keppninni sem hefst 2. apríl. Hins
vegar keppa Keflavík og Valur sem
urðu í öðru og þriðja sæti deildar-
innar. mm
Skallagrímskonur í
úrslitakeppnina
Fram kom í viðtali á karfan.is við Sigrúnu Sjöfn Ámundadóttur leikmann Skal-
lagríms að hún var svekkt með að tapa gegn Haukum í lokaleik deildarkeppnin-
nar. Engu að síður var hún hæstánægð með að ná í úrslitakeppnina þrátt fyrir
það. Það verður nóg að gera hjá Sigrúnu og liðsfélögum hennar um páskana að
undirbúa sig fyrir lokaorrustuna sem hefst eftir páska. Ljósm. karfan.is.
snæfellingar sóttu Hamarsmenn
heim í þriðja leik úrslitakeppni
1. deildar karla í körfuknattleik
á föstudagskvöldið. snæfellingar
höfðu þegar tapað í fyrstu tveim-
ur leikjum undanúrslitarimm-
unnar og því ljóst að þeir þurftu
að vinna leikinn en svo fór ekki.
mikið líf var í leiknum til að byrja
með og snæfellingar voru mun
grimmari í öllum sínum aðgerð-
um. Um miðjan fyrsta leikhluta
voru þeir komnir sjö stigum yfir,
9-16. Um miðjan annan leikhluta
voru þeir komnir með 16 stiga
forystu, 32-48, og allt leit út vel út
fyrir snæfellinga. Eftir þetta urðu
kaflaskipti í leiknum og á fjórum
mínútum sóttu Hamarsmenn stíft
og minnkuðu muninn í tvö stig,
49-51.
Bæði lið komu ákveðin til síð-
ari hálfleiks. Þegar fjórar mínútur
voru eftir af þriðja leikhluta voru
snæfellingar komnir með átta
stiga forystu, 60-68. snæfell hélt
forystunni og útlitið var mjög gott
fyrir þá þar til Hamarsmenn náðu
að jafna þegar sex mínútur lifðu
leiks, 87-87 og allt varð brjálað á
pöllunum. snæfell náði forystunni
á ný en leikurinn hélst jafn allt þar
til í lokin þegar Hamar komst fjór-
um stigum yfir og snæfell þurfti
að brjóta til að stoppa klukkuna.
Fór svo að lokum að Hamar sigr-
aði með 104 stigum gegn 98 og
eru komnir í úrslitaeinvígið ann-
að árið í röð. snæfellingar eru því
komnir í frí. arg
Snæfell tapaði eftir harðan leik
Snæfellingar komu ákveðnir til leiks en það dugði ekki til. Ljósm. Snæfell.is.
síðastliðinn miðvikudag var keppt í
fjórum riðlum undankeppni skóla-
hreysti, hreystikeppni grunnskóla.
Keppnin er liðakeppni og fimm
gerðir þrauta; hraðaþraut, upphíf-
ingar, armbeygjur, dýfur og hreysti-
greip. Í Vesturlandsriðlinum gerðu
nýir skólar sig gildandi á toppnum
og þeir sem vermt hafa þau sæti á
liðnum árum skoruðu nokkrir mjög
lágt í keppninni. sigurvegarar, og
skólinn sem fer í úrslitakeppnina,
er Grunnskóli Húnaþings vestra.
Hlutu nemendur hans 55 stig. Í
öðru sæti varð Grunnskóli Borg-
arfjarðar með 44,5 stig og Grunn-
skólinn í stykkishólmi, sigurvegari
riðilsins í fyrra, varð í þriðja sæti
með 43 stig.
Úrslit urðu þessi:
1. Grunnskóli Húnaþings vestra
55 stig
2. Grunnskóli Borgarfjarðar
44,5 stig
3. Grunnskólinn í stykkishólmi
43 stig
4. Grunnskólinn í Grundarfirði
41,5 stig
5. Brekkubæjarskóli á Akranesi
36 stig
6. Grunnskóli snæfellsbæjar
30,5 stig
7. Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit
26,5 stig
8. Auðarskóli í Dölum 23,5 stig
9. Grundaskóli á Akranesi
22 stig
10. Grunnskólinn í Borgarnesi
7,5 stig.
mm
Húnvetningar gjörsigruðu
í Vesturlandsriðlinum
Sigurreifir Húnvetningar. Ljósm. GHV.