Skessuhorn - 17.10.2018, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2018 11
Allar nánari upplýsingar veitir Lind hjá FAST Ráðningum
í síma 552-1606 eða lind@fastradningar.is
Umsækjendur er vinsamlega beðnir um að
sækja um starfið á www.fastradningar.is
Umsóknarfrestur er til og með
1. nóvember nk.
Orkubú Vestfjarða óskar eftir að ráða metnaðarfullan og ábyrgan verk-
fræðing í spennandi framtíðarstarf á veitusviði. Í boði er áhugavert
starfsumhverfi með krefjandi og fjölbreyttum verkefnum.
Starfsmaðurinn verður með aðsetur á aðalskrifstofu Orkubús Vest-
fjarða á Ísafirði en starfsumhverfið er allir Vestfirðir. Næsti yfirmaður
er framkvæmdastjóri veitusviðs.
Orkubúið sinnir alhliða orkuvinnslu á Vestfjörðum ásamt dreifingu
orkunnar til kaupenda hennar. Starfsmenn eru um 70 talsins og er
hópurinn samheldinn og metnaður mikill.
Ef þú vilt starfa hjá traustu og framsýnu fyrirtæki og búa í návígi við
ægifagra náttúru er þetta tækifærið þitt!
Helstu verke�ni:
• Hönnun og undirbúningur verka
• Verkefnastjórnun og áætlanagerð
• Önnur fjölbreytt og krefjandi verkefni
á veitusviði
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Rafmagnsverkfræði
• Metnaður, nákvæmni og góð skipulagshæfni
• Reynsla af verkefnastjórnun
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Jákvæðni og góð samstarfshæfni
• Reynsla af rafveitustörfum æskileg
Ra�magnsverk�ræðingur - kre�jandi verke�ni
Lind Einarsdóttir
Orkubúið vill fjölga konum
í störfum hjá fyrirtækinu.
Konur sem og karlar eru
því hvött til að sækja um
ofangreint starf.
Allar nánari upplýsingar veitir Lind hjá FAST Ráðningum
í síma 552-1606 eða lind@fastradningar.is
Umsækjendur er vinsamlega beðnir um að
sækja um starfið á www.fastradningar.is
Umsóknarfrestur er til og með
1. nóvember nk.
Orkubú Vestfjarða óskar eftir að ráða metnaðarfullan og ábyrgan
starfsmann í spennandi framtíðarstarf á veitusviði. Í boði er áhugavert
starfs umhverfi með krefjandi og fjölbreyttum verkefnum.
Starfsmaðurinn verður hluti af vinnuflokki veitusviðs Orkubús Vest-
fjarða með höfuðstöðvar á Patreksfirði. Starfsumhverfið er sunnan-
verðir Vestfirðir. Næsti yfirmaður er svæðisstjóri Orkubús Vestfjarða
á Patreksfirði.
Orkubúið sinnir alhliða orkuvinnslu á Vestfjörðum ásamt dreifingu
orkunnar til kaupenda hennar. Starfsmenn eru um 70 talsins og er
hópurinn samheldinn og metnaður mikill. Ef þú vilt starfa hjá traustu
og framsýnu fyrirtæki og búa í návígi við ægifagra náttúru er þetta
tækifærið þitt!
Helstu verkefni:
• Fjölbreytt verkefni í flutnings- og dreifikerfi
• Nýframkvæmdir
• Viðhald á háspennu- og lágspennubúnaði
• Reglubundið eftirlit í veitukerfi
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Sveinspróf í rafvirkjun
• Almenn tölvufærni
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Færni í samskiptum
• Reynsla af veitustarfsemi er kostur
Rafvirki - sunnanverðir Vestfirðir
Lind Einarsdóttir
Orkubúið vill fjölga konum
í störfum hjá fyrirtækinu.
Konur sem og karlar eru
því hvött til að sækja um
ofangreint starf.
Stýrihópur Stjórnarráðsins um
byggðamál hefur sent frá sér grein-
argerð um framvindu samninga um
sóknaráætlanir landshluta og ráð-
stöfun fjármuna ársins 2017. Þar
kemur m.a. fram að á árinu var
unnið að samtals 65 áhersluverk-
efnum í landshlutunum átta og að
594 verkefni hlutu styrki úr upp-
byggingarsjóðum að fjárhæð tæp-
um 473 milljónum króna. Í gegn-
um sóknaráætlun Vesturlands var
úthlutað 113 styrkjum úr Upp-
byggingarsjóði Vesturlands að upp-
hæð samtals 11,5 milljónum króna.
Umsóknarfjöldi á síðasta ári var
155.
Samningar um sóknaráætlan-
ir landshluta voru undirritaðir af
ráðherra sjávarútvegs og landbún-
aðar, ráðherra mennta- og menn-
ingarmála og formönnum lands-
hlutasamtaka sveitarfélaga í byrjun
árs 2015 og gilda þeir til ársloka
2019. „Markmið með sóknaráætl-
unarsamningum er að stuðla að
jákvæðri samfélagsþróun, treysta
stoðir menningarlífs og auka sam-
keppnishæfni hvers landshluta og
þar með landsins alls.“
Með sóknaráætlunum er fé
veitt til tveggja mismunandi þátta,
áhersluverkefna, sem eru á ábyrgð
landshlutasamtakanna og uppbygg-
ingarsjóða sem eru samkeppnis-
sjóðir og styrkja menningar- og
nýsköpunarverkefni, auk annarra
verkefna sem falla að sóknaráætl-
unum landshlutanna.
Stýrihópur Stjórnarráðsins um
byggðamál er skipaður fulltrúum
frá öllum ráðuneytum og fram-
kvæmdastjóra Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Formaður er Hólm-
fríður Sveinsdóttir, samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneyti en verk-
efnisstjóri er Sigríður K. Þorgríms-
dóttir frá Byggðastofnun. mm
Greinargerð um framvindu sóknaráætlana landshluta
Styrkjum var úthlutað við athöfn í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi fyrr á þessu ári. Ljósm. úr safni Skessuhorns/tfk.