Fréttablaðið - 14.11.2019, Síða 21
Það er full ástæða til að þakka Kára Stefánssyni fyrir grein sem hann skrifaði Frétta-
blaðið 7. nóv. undir yfirskriftinni
„Kannski það sé í lagi þegar maður-
inn sem hefur forsætisráðherra að
fíf li er siðfræðingur“. Bæði er að
greinin gefur mér kærkomið tilefni
til að skýra þá lagasetningu sem um
ræðir og svo afhjúpar hún svo skýrt
skilningsleysi á málefninu að það
sannfærir mig enn betur en áður
um mikilvægi laganna. Í greininni
er lýst mikilli furðu á því að í lög-
unum sé ekki skilgreint hvað séu
vönduð vísindaleg vinnubrögð. Það
er reyndar með ráðum gert og fyrir
því eru tvær meginástæður. Önnur
er að vísindamenn viti almennt
fullvel hvað séu vönduð vinnubrögð
og átti sig á því hvað séu óvandaðir
og óheiðarlegir starfshættir sem
hindra sannleiksleit í vísindum.
Það er því sérstakt áhyggjuefni að
fram kemur í greininni að viðmæl-
endur Kára úr vísindasamfélaginu
hafi ekki hugmynd um þetta atriði.
Hin ástæðan fyrir að skilgreina
ekki „vandaða starfshætti“ eða öllu
heldur andstæður þeirra er að þegar
slíkar skilgreiningar eru settar í lög
þá býður það heim því sem kalla
mætti „lagavæðingu“ siðferðilegra
viðmiða. Reynslan hefur sýnt að
það kemur oft í veg fyrir að hægt sé
að taka af siðferðilegum og faglegum
myndugleika á málum af þessu tagi.
Lögmenn hengja sig gjarnan í skil-
greiningar í lagatextum og reyna
með hártogunum og undanbrögð-
um að verja skjólstæðinga sína, þótt
við vísindasamfélaginu blasi að um
ámælisverða hegðun sé að ræða.
Í lögunum er kveðið á um að
„viðurkennd siðferðisviðmið í rann-
sóknum og skilgreiningar á brotum
gegn þeim“ verði skráð og birt (6. gr.).
Hér er líka saga að baki sem Kári á að
þekkja. Fyrir nokkrum árum beitti
Vísinda- og tækniráð sér fyrir því að
mótuð væru „Viðmið um vandaða
starfshætti og siðferði í vísindum
og rannsóknum“. Fulltrúar úr vís-
indasamfélaginu, þ. á m. Íslenskri
erfðagreiningu, unnu þessi viðmið
og leituðu vitaskuld fyrirmynda úr
alþjóðasamfélaginu. Andstætt því
sem Kári segir eru slík alþjóðleg við-
mið til og umræða um heiðarleika í
vísindum (e. research integrity) hefur
verið mikil á undanförnum árum. Og
ekki að ástæðulausu, því að misferli
og óheiðarleiki í vísindum er því
miður furðu útbreitt og hvötunum
til þessa virðist fara fjölgandi. Það er
því áhyggjuefni að forstjóri stærsta
rannsóknafyrirtækis Íslands standi
á gati þegar þetta málefni ber á góma.
Eitt meginstefið í alþjóðlegri
umræðu um þetta efni er að mikil-
vægasta úrræðið sé að bæta mennt-
un vísindamanna sem efli skilning
þeirra á því að gott siðferði sé óað-
skiljanlegur hluti af vönduðu vís-
indastarfi. Þetta er talin árangurs-
ríkari nálgun en refsileiðin sem Kári
kallar eftir þar sem megináhersla er
lögð á viðurlög við brotum. Þarna
leggur nefndin sem samdi lagafrum-
varpið aftur traust sitt á vísinda-
samfélagið. Þar sé að finna skilning
á heiðarlegum starfsháttum og að
þar verði hægt að móta leiðir til að
takast á við misferli og óheiðarleika.
Andinn í lögunum er því að vísinda-
samfélagið ástundi sjálft eftirlit með
góðum starfsháttum og miðlæga
nefndin, sem að stærstum hluta
verður skipuð fólki úr rannsóknar-
samfélaginu, hafi einkum eftirlit
með því að þetta sjálfseftirlit virki.
Til hennar má síðan vísa málum
sem ekki verða leyst með viðunandi
hætti á vettvangi. Lögunum er því
einkum ætlað að móta ramma um
þessa málsmeðferð sem og að standa
fyrir ráðgjöf og fræðslu eða eins og
segir í lögunum (6. gr.): „Hlutverk
nefndar er að upplýsa stjórnvöld,
almenning og vísindasamfélagið
um vandaða starfshætti í vísindum
og um vísindasiðfræði og hafa eftir-
lit með því að siðferðileg viðmið séu
í heiðri höfð í vísindasamfélaginu.“
Miðað við grein Kára í Fréttablað-
inu er ekki vanþörf á þeirri upplýs-
ingu sem hér er kveðið á um. Í orðum
hans felst að hugmyndir um gott
vísindasiðferði hamli vísindalegri
framþróun. Lög um vönduð vinnu-
brögð í vísindum ganga hins vegar
út frá þeim skilningi að þetta tvennt
verði ekki sundur skilið. Ég held að
sá skilningur sé raunar útbreiddur í
vísindasamfélaginu og að skilnings-
leysi Kára sé sjaldgæf undantekning.
Skilningsleysi afhjúpað
Vilhjálmur
Árnason
prófessor í
heimspeki og
stjórnarfor
maður Siðfræði
stofnunar
Alltaf þegar stjórnmálamenn út h lut a t a k mörk u ðu m gæðum býður það spillingu
heim. Þess vegna er markaðsleið
eina réttláta aðferðin til þess að
verðleggja kvótann. Enginn bjóst
við því að horfið yrði frá spill-
ingu eða sérhagsmunagæslu þegar
núverandi ríkisstjórn tók við. Samt
kom það jafnvel mér á óvart, að
þegar VG gekk inn í sérhagsmuna-
bandalagið hafði f lokkurinn for-
ystu um lækkun á veiðigjaldi, sem
auðvitað rann í gegn.
Almenningi er varla misboðið
lengur. Við erum orðin vön því að
stjórnmálamenn ívilni útgerðar-
mönnum sem kveinka sér undan
háum gjöldum til samfélagsins í
formi auðlindagjalds, en verða ekki
varir við að sambærileg fjárhæð
rennur sem „ráðgjafakostnaður“ til
vildarvina á suðlægum slóðum.
Allir segjast vera sammála því
að nytjastofnar á Íslandsmiðum
séu sameign íslensku þjóðarinnar,
enda eru það lög í landinu. En þegar
kemur að því að þjóðin fái sann-
gjarna greiðslu fyrir auðlindina
vilja f lestir stjórnmálamenn frekar
styðja lítilmagnana í útgerðinni.
Viðreisn hefur engan áhuga á að
„ná kvótanum“ af útgerðinni. Mark-
miðið er að þjóðin fái sanngjarnt
gjald fyrir auðlindina. Þeir sem
aðhyllast frjálsa samkeppni vilja
að markaðurinn ákveði verðið fyrir
afnotin, „vinir útgerðarinnar“ vilja
að stjórnmálamenn ákveði verðið.
Kannski hækkar það frá því sem nú
er, kannski lækkar það.
Það er einföld leið til þess að
nota markaðsverð strax á næsta
ári. Ráðherra úthlutar núna 5,3%
af kvótanum; í af lamark Byggða-
stofnunar, strandveiðar, byggða-
kvóta, línuívilnun, rækju- og skel-
bætur og frístundaveiðar. Bjóðum
þennan hluta á markaði til að byrja
með. Við getum jafnvel látið and-
virðið renna beint til byggðanna.
Þá er styrkurinn gagnsær.
Meginatriðið er þó að þá erum
við komin með markaðsverð á kvót-
ann og getum notað það til grund-
vallar auðlindagjaldinu. Til þess að
gera þetta þurfum við stjórnmála-
menn sem eiga sig sjálfir og þora að
standa með þjóðinni.
En finnast einhverjir slíkir í sér-
hagsmunaf lokkunum sem styðja
ríkisstjórnina?
Special Price for You,
My Friend
Benedikt Jó-
hannesson
fyrrverandi
fjármála
ráðherra Allir segjast vera sammála
því að nytjastofnar á Ís-
landsmiðum séu sameign
íslensku þjóðarinnar, enda
eru það lög í landinu.
LAND ROVER HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK, SÍMI: 525 6500
Land Rover kynnir nýjan Discovery Sport með blandaðri dísil hybrid vélatækni. Nýr
Discovery Sport er einn glæsilegasti millistærðarjeppi sem völ er á. Nýtt útlit minnir
á stóra bróður, sjálfan Discovery, og innréttingin er öll með glæsilegasta móti.
Verið velkomin í reynsluakstur því sjón er sögu ríkari.
UPPGÖTVAÐU
HRÍFANDI NÝJUNGAR
www.landrover.is
DÍSIL HYBRID VÉLATÆKNI,
NÝTT ÚTLIT OG INNRÉTTING
Land Rover Discovery Sport
Sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn.
Verð frá: 6.890.000 kr.
NÝR DISCOVERY SPORT M-HYBRID
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F I M M T U D A G U R 1 4 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9
1
4
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:4
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
3
A
-C
F
2
C
2
4
3
A
-C
D
F
0
2
4
3
A
-C
C
B
4
2
4
3
A
-C
B
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
1
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K