Fréttablaðið - 14.11.2019, Side 30

Fréttablaðið - 14.11.2019, Side 30
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,, Fjölbreytileiki mannlífsflórunnar er vissulega heillandi og gefandi. Hef fengið að tengjast fjölda einstakl- inga og kynslóðum innan stórfjölskyldna allt að því frá vöggu til grafar og það eru ein mestu forréttindi þessa starfs. Hátíðarrit – nóvember 2019 Útgefandi: Fríkirkjan í Reykjavík Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hjörtur Magni Jóhannsson Umbrot: Fréttablaðið SKRIFSTOFA FRÍKIRKJUNNAR Í REYKJAVÍK er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 09:00-16:00 og á föstudögum frá kl. 09:00-14:00 Laufásvegi 13, 101 Reykjavík Sími: 552 7270 Safnaðarsalur: 552 7270 Heimasíða: www.frikirkjan.is Netfang: frikirkjan@frikirkjan.is STARFSFÓLK FRÍKIRKJUNNAR Prestur og forstöðumaður: Séra Hjörtur Magni Jóhannsson Sími: 899 4131– hjorturm@frikirkjan.is Viðtalstímar eftir samkomulagi Umsjón skrifstofu: Sigurbjörn H. Jakobsson Sími: 552 7270 – frikirkjan@frikirkjan.is Tónlistarstjóri og organisti: Gunnar Gunnarsson Sími: 661 6100 – gg@internet.is Stjórnandi barnakórs: Álfheiður Björgvinsdóttir Sími: 849 8660 – alfheidurbjorgvins@gmail.com Viltu fá póst með upplýsingum um safnaðarstarfið? Sendu okkur þá póst á frikirkjan@frikirkjan.is – og þú kemst á póstlistann okkar Fríkirkjan í Reykjavík Við í Fríkirkjunni við Tjörnina leyfum okkur að leika okkur með þá flottu hugmynd að við höfum jú víst starfað á þremur öldum, þó að við höfum vissulega byrjað nokkuð seint á þeirri nítjándu. Hvað viljum við segja með því? Jú, að við erum svo samgróin íslenskri sögu, menningu og listum að þar verður ekki sundur greint. Við erum ekkert annað en íslensk grasrót, síðbúið afsprengi sið- bótarinnar, virkur þátttakandi í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar á sínum tíma, helguð víðri sýn, umburðarlyndi og frjálslyndi og við eigum fullt erindi áfram inn í 21. öldina sem trúverðug íslensk grasrótarsamtök/kirkja. Ef til vill framtíðarfyrirkomulag á sviði trú- og kirkjumála. Sjálfur hef ég fengið að þjóna Fríkirkjunni við Tjörnina í 21 ár og verið prestur alls í 33 ár. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið smátt og smátt í hring um mig jákvætt fólk sem hefur víða sýn, fagra hugsjón og traust að leiðarljósi. Ég er þakklátur mínu samstarfsfólki fyrir að veita mér rými og frelsi til að veita skapandi þjónustu. Fríkirkjan í Reykjavík með sína tíu til ellefu þúsund meðlimi er langstærsta trúfélagið á landinu sem þjónað er af einum presti. Ég hef fengið að njóta þess að eiga einstakt samstarfsfólk sem vinnur vel saman. Ég hef fengið að njóta þess að eiga þúsundir helgra athafna í gleði og sorg, á ögurstundum, á tilfinningaríkum tímamótum með fjölbreytilegu fólki, í afar litríkri mannlífs- flóru. Fjölbreytileiki mannlífs- flórunnar er vissulega heillandi og gefandi. Hef fengið að tengjast fjölda einstaklinga og kynslóðum innan stórfjölskyldna allt að því frá vöggu til grafar og það eru ein mestu forréttindi þessa starfs. Það að fjöldi þeirra sem vilja tilheyra Fríkirkjunni við Tjörnina hefur tvöfaldast segir okkur að sam- eiginlega höfum við gert eitthvað rétt og eitthvað gott. Ég er þakklátur þeim mörgu sem skrifuðu í blaðið okkar, fyrir jákvæðnina í okkar garð, hvatn- inguna, stuðninginn og elsku- legheitin. Okkar sameiginlega vegferð er rétt að hefjast. Hjörtur Magni Jóhannsson Fríkirkjuprestur Þakklæti á afmæli Fríkirkjunnar Séra Hjörtur Magni Jóhannsson. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Séra Magni í barnamessu í Fríkirkjunni. ✿ Fjöldi safnaðarmeðlima árin 1990 – 2019 n Fjöldi safnaðarmeðlima í tíð séra Hjartar Magna n Fjöldi safnaðarmeðlima með búsetu hérlendis sem og erlendis 4901 4893 4884 4852 5355 5696 4920 6281 7018 9556 7920 8757 9257 9648 10007 10902 12000 10000 8000 6000 4000 2000 0 1991 1993 1995 1997 1999 2001 2003 2005 2007 2009 2011 2013 2015 2017 2019 Á þessum tíma- mótum er mér þakklæti efst í huga. Tíminn er vissulega af- stæður. 120 ár eru mun lengri tími en ein mannsævi nær að spanna en í samanburði við trúarbrögðin stóru þá er að- eins um andartak að ræða. Davíð S. Snorrason, formaður Árni Gunnarsson, gjaldkeri Ólafur Ástgeirsson, ritari Sædís Guðmundsdóttir Helena Guðmundsdóttir Hörður Hafberg Gunnlaugsson Óskar Þór Nikulásson Hörður Ingi Jóhannsson Júlíana Bjarndís Ólafsdóttir Guðrún Ragnarsdóttir Safnaðarráð Fríkirkjunnar 2 FRÍKIRKJAN 120 ÁRA 1 4 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 1 4 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :4 3 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 3 B -0 A 6 C 2 4 3 B -0 9 3 0 2 4 3 B -0 7 F 4 2 4 3 B -0 6 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 1 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.