Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.11.2019, Qupperneq 60

Fréttablaðið - 14.11.2019, Qupperneq 60
Vildi gera veg Íslands sem mestan Í Hafnarborg er yfirlitssýning um Guðjón Samúelsson, húsameistara ríkisins. Pétur H. Ármannsson arkitekt segir hann hafa verið mikilvægan geranda í nútímavæðingu íslensks samfélags. Yf i r l i t s s ý n i n g u m Guðjón Samúelsson, húsameistara ríkis-ins, stendur nú yfir í Hafnarborg. Þar eru til sýnis frumrit teikn- inga, ljósmyndir og líkön af bygg- ingum Guðjóns. Hlýða má á einu varðveittu upptökuna með rödd hans og sjá einstakt myndskeið frá árinu 1943 þar sem Guðjóni bregður fyrir. Sýningarstjórar eru Ágústa Kristófersdóttir, forstöðu- maður Hafnarborgar, og Pétur H. Ármannsson arkitekt sem vinnur að bók um Guðjón sem væntanleg er á næsta ári. Tækifæri til áhrifa „Guðjón er sá arkitekt sem f lestir Íslendingar kannast við og helstu byggingar hans eru alþekkt tákn fyrir staði og stofnanir í íslensku samfélagi. Þegar við hugsum um Akureyri sjáum við fyrir okkur kirkjuna og tröppurnar sem tengja hana við miðbæinn. Sama á við um Þingvallabæinn, skólahúsin í Reyk- holti og á Laugarvatni. Form sem hann mótaði eru auðkenni fyrir Háskóla Íslands, Landspítala, Lista- safn Íslands, Landsbanka og Þjóð- leikhús. Á seinustu árum er turn Hallgrímskirkju orðinn alþjóð- legt vörumerki Reykjavíkur,“ segir Pétur. „Guðjóns er oftast minnst fyrir tilraunir sínar til að móta sérþjóð- legan, íslenskan byggingarstíl. Hann var þó ekki síður brautryðj- andi nýrra alþjóðlegra hugmynda í húsagerð og borgarskipulagi hér á landi. Hann heillaðist snemma af hugmyndum garðbæjahreyf- ingarinnar um fagurfræðilegt borgarskipulag þar sem húsagerð og bæjarskipulag mynda heil- steypt listaverk. Þetta var ein af þeim stefnum sem mótuðu Guðjón á námsárunum í Kaupmannahöfn milli 1909 og 1915. Staða Guðjóns sem húsameistara ríkisins gaf honum einstakt tækifæri til áhrifa sem fáum arkitektum hefur hlotn- ast. En verk hans voru líka umdeild á sinni tíð og fáir listamenn hafa mátt sæta óvægnari gagnrýni.“ Mikilvægur gerandi Einkunnarorð sýningarinnar eru tilvitnun í Guðjón: Það er ekki hægt að ala upp góða menn nema í fallegu umhverfi. Um þessi orð segir Pétur: „Þau segja mikið um manninn og kynslóðina sem hann var hluti af. Menn trúðu því að efla mætti and- lega og líkamlega heilsu fólks með því að skapa fallegt og heilsusam- legt umhverfi. Þessi hugsjón bjó að baki f lestu því sem Guðjón gerði. Hann beitti sér fyrir ýmsum fram- faramálum, sat í fyrstu skipulags- nefnd ríkisins og skrifaði árið 1912 fyrstu fræðiritgerðina á íslensku um borgarskipulag. Skipulag bæjanna var hjartans mál Guðjóns ekki síður en húsagerðin. Sem skipu- lagshöfundur var hann mikilvægur gerandi í nútímavæðingu íslensks samfélags. Hann sá uppbyggingu bæjanna sem mikilvægasta verkefni sinnar kynslóðar og leitaðist við að innleiða evrópska þéttbýlismenn- ingu í land sem verið hafði einangr- að og dreif býlt bændasamfélag. Hann var líka alltaf að tala um bæina og borgirnar sem listaverk. Við eigum honum staðsetningu Landakotskirkju að þakka. Hann bjó til þessa áhrifamiklu mynd af Skólavörðustíg með kirkjuna fyrir endanum. Hann lagði grunninn að fyrsta heildarskipulagi Reykjavíkur innan Hringbrautar og margar af fallegustu götum Reykjavíkur: Mímisvegur, Fjölnisvegur, Sjafnar- gata, Sólvallagata, Ásvallagata og Hringbrautin með verkamanna- bústöðunum eru afrakstur hug- mynda hans. Þetta er að mínu mati eitt besta dæmi um það hvernig hægt er að byggja manneskjulega, þétta byggð á norðlægri breiddar- gráðu með gróðri og fallegum götu- rýmum þar sem tekið er ríkt tillit til skjólmyndunar og sólarljóss.“ Fagurfræðileg hugsun Spurður hvað læra megi af Guðjóni í dag segir Pétur: „Það má mikið læra af áherslu hans á fagurfræðilega hugsun inn í mótun byggðar. Því miður á listræn heildarsýn undir högg að sækja í mótun umhverfis í samtímanum. Ég er ekki að tala um að menn eigi að gera eftirlíkingar af verkum Guðjóns. En við mættum taka mið af þeirri hugmynd og fal- legu hugsjón að umhverfið eigi að vera listaverk og að mannúðar- og mannbætandi sjónarmið eigi að vera í forgangi við hönnun og húsa- gerð.“ Á sýningunni er að finna ýmsar tillögur Guðjóns sem ekki urðu að veruleika. Þar á meðal er skipulags- tillaga sem hann gerði að Bolung- arvík. „Hann teiknaði þar fyrir- myndar sjávarþorp í anda breskra garðbæja og gaf hverri byggingu form svo úr varð fagurfræðileg heild. Ef við ættum slíkan bæ væri hann einstakt listaverk,“ segir Pétur. Pétur segir Guðjón með verkum sínum hafa lagt grunn að inn- viðum íslensks samfélags á ýmsum sviðum. „Hann teiknaði þjóðleik- hús, sund- og íþróttahallir, háskóla, kirkjur, verkamannabústaði, skóla- hús af ýmsu tagi og alls konar bygg- ingar. Hann hafði mikinn metnað fyrir hönd þjóðarinnar í þessu tilliti og vildi gera veg Íslands sem mestan með verkum sínum.“ „Það má læra mikið af áherslu hans á fagurfræðilega hugsun,“ segir Pétur um Guðjón Samúelsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK VIÐ MÆTTUM TAKA MIÐ AF ÞEIRRI HUGMYND OG FALLEGU HUG- SJÓN AÐ UMHVERFIÐ EIGI AÐ VERA LISTAVERK OG AÐ MANNÚÐAR- OG MANNBÆT- ANDI SJÓNARMIÐ EIGI AÐ VERA Í FORGANGI VIÐ HÖNNUN OG HÚSAGERÐ. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is BÆKUR Hnífur HHHHH Jo Nesbø Þýðandi: Bjarni Gunnarsson Útgefandi: JPV út- gáfa Fjöldi síðna: 570 Vi n s æld i r nor sk a glæpasagnahöfund- arins Jo Nesbø eru engin tilviljun. Lesendur hans hafa lengi gengið að því sem vísu að hann muni sjá þeim fyrir spennu í bókum þar sem er að finna hroll- vekjandi morð, áhugaverðar persónur og óvæntar f léttur. Allra síðustu árin er þó eins og þreytu sé farið að gæta hjá höfundinum. Morðin hafa orðið óhugnanlegri og illmennin ýktari um leið og söguþráðurinn verður æ ótrúverðugri. Það sem helst hefur haldið sögunum uppi er lögreglumaðurinn Harry Hole, alkóhólisti sem oftar en ekki er versti óvinur sjálfs sín. Nýjasta bókin um Harry Hole er Hnífur, löng og ruglingsleg glæpa- saga. Strax á blaðsíðu 60 gerist atburður sem hlýtur að vekja upp- nám í hugum aðdáenda Hole. Ekki er gott að sjá af hverju Nesbø fór þá leið sem hann þarna velur. Kannski vildi hann sjokkera og það tekst honum rækilega. Meinið er að þegar líða fer á sögu verður hún æ kjánalegri. Persónur, sem lesandinn þekkir úr fyrri bókum um Hole, fara að sýna á sér áður óþekktar hliðar og þær ógeðfelldar. Um sögusviðið þvælist svo raðnauðgari af allra verstu sort, nauðgar konum og þvingar þær til að eignast barnið. Afhjúpunin á morðingjanum undir lokin er að sönnu óvænt en stenst um leið enga skoðun. Eftir situr les- andinn og veltir því fyrir sér hvað hafi orðið um þann Nesbø sem hann eitt sinn þekkti og sá honum alltaf fyrir svo góðri afþreyingu. Kannski er Nesbø orðinn of ríkur og frægur og meðvitaður um að hann kemst upp með næstum hvað sem er. Kannski er enginn lengur til að lesa yfir handrit hans og gefa honum tiltal þegar hann fer út af sporinu eins og hann gerir hér. Eða kannski f innst Nesbø þetta bara afskaplega gott hjá sér. Í lok Hnífsins er Harry Hole að taka ákvörðun um hvert leið hans skuli liggja. Líklegt er að fjölmörg- um lesendum standi algjörlega á sama og bíði næstu bókar ekki með eftirvæntingu. Hnífur er ekki bara slæm glæpasaga, hún er fáránlega vond. Það er afar leitt að sjá jafn hæfileikaríkan höfund og Nesbø fara jafn illilega út af sporinu. Kolbrún Bergþórsdóttir NIÐURSTAÐA: Arfavond og kjána- leg glæpasaga þar sem eiginlega ekkert gengur upp. Hvað kom fyrir Nesbø? 1 4 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R32 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 1 4 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :4 3 F B 0 7 2 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 3 A -F 1 B C 2 4 3 A -F 0 8 0 2 4 3 A -E F 4 4 2 4 3 A -E E 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 7 2 s _ 1 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.