Fréttablaðið - 23.11.2019, Page 8
er talsvert önnur en kom fram í nýj-
asta þjóðarpúlsi Gallup í lok október.
Þá mældist Miðflokkurinn með 11,5
prósenta fylgi en Sjálfstæðisflokkur-
inn með 22,7 prósent. Í þjóðarpúlsi
fékk Samfylkingin 17,3 prósent en
13,2 í könnun MMR.
Í könnun Fréttablaðsins um miðj-
an október mældist Miðflokkurinn
með 11,6 prósenta fylgi, Sjálfstæðis-
flokkurinn með 19,6 prósent og Sam-
fylkingin með 18,5 prósent.
Nokkru munar á fylgi ríkisstjórn-
arflokkanna þriggja. Í könnun MMR
mælast þeir samanlagt með 38,1
prósents fylgi sem er á pari við fylgi
þeirra í könnun Fréttablaðsins, en
hjá Gallup mældust þeir samanlagt
með 44,3 prósenta fylgi.
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor
í stjórnmálafræði við Háskólann á
Akureyri, vill fara varlega í að lesa
mikið í einstaka kannanir. „Það
þurfa að koma fleiri mælingar á svip-
uðum slóðum til að hægt sé að draga
ályktanir af þessu,“ segir Grétar.
„Við höfum séð Miðflokkinn áður
rísa upp og falla í könnunum. Við
höfum líka séð Sjálfstæðisflokkinn
fara undir 20 prósentin. Það er ekk-
ert í könnun MMR sem við höfum
ekki séð áður.“
Framsóknarf lokkurinn mælist
undir 10 prósentum í öllum þremur
könnununum, Grétar segir það ekki
vera sérstakt áhyggjuefni fyrir flokk-
inn. „Þeir eru í ríkisstjórn og eru ekki
langt undir kjörfylgi. Hinir ríkis-
stjórnarflokkarnir eru báðir lengra
frá sínu kjörfylgi.
Hann segir þó athyglisvert að Mið-
flokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn
séu að mælast nánast jafn stórir.
„Það þarf þá að rýna í gögnin til að
sjá hvort fylgið sé að fara á milli þess-
ara flokka eins og sumir hafa verið
að velta fyrir sér. Það þarf þó ekki að
vera,“ segir Grétar.
Kjörtímabilið er hálfnað, Grétar
segir að erfitt sé að segja til um
hvernig fylgissveiflurnar koma til
með að hafa áhrif á kosningarnar
sem fara fram 2021 að öllu óbreyttu.
„Sveif lur á miðju kjörtímabilinu
segja ekki of mikið um hvað koma
skal. Það er spurning hvað sé verið
að mæla, hvort það sé dagsformið á
kjósendunum eða hugmyndafræði-
legir tilflutningar á fylgi.“
arib@frettabladid.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
5
1
1
4
H
y
u
n
d
a
i
i2
0
a
lm
e
n
n
5
x
2
0
á
g
ú
s
t
Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 | www.hyundai.is
Nýr og spennandi
Hyundai i20.
Sýndu skynsemi. Veldu nýjan i20.
Nýr i20 er fáanlegur með sjálfvirkri neyðarhemlun, akreinavara og sjálfvirkri hækkun og lækkun
aðalljósa. Innréttingin hefur fengið nýtt og vandaðra yfirbragð, nýr 7" snertiskjár nýtir sér
fullkomnustu margmiðlunartækni á borð við Apple CarPlay™ og Android Auto™.
Verið velkomin að reynsluaka nýjum og glæsilegum Hyundai i20.
Verð frá:
2.390.000 kr.
Hyundai býður viðskiptavinum sínum upp á eina víðtækustu
ábyrgð sem völ er á. Öllum Hyundai bílum fylgir 5 ára
verksmiðjuábyrgð og ótakmarkaður akstur.
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
STJÓRNMÁL Miðflokkurinn mælist
nú næststærsti flokkur landsins með
nærri 17 prósenta fylgi í nýrri könn-
un MMR. Sjálfstæðisf lokkurinn
mælist með rúmlega 18 prósent og
tapar því fylgi upp á þrjú prósentu-
stig milli kannana MMR.
„Ég verð að halda mig við það sem
ég sagði fyrir rúmum tíu árum að
ég myndi ekki sveiflast eftir skoð-
anakönnunum, það verður að gilda
hvort sem þær fara niður eða upp.
Þetta er mjög ánægjuleg vísbending
um að fólk kunni að meta að maður
haldi sínu striki og sveiflist ekki með
tíðarandanum hverju sinni,“ segir
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins.
„Pólitíkin verður að vera þannig
að maður tali fyrir einhverju sem
maður trúi á, hvort sem það er vin-
sælt þann daginn eða ekki. Annars
fara menn að elta umræðu dagsins,
þá er lítið varið í stefnu flokkanna.
Kjósendur verða að vita hvað maður
stendur fyrir og mun standa fyrir í
framtíðinni. Það er besta leiðin til að
ná árangri í kosningum.“
Sigmundur segir að Miðflokkur-
inn hafi ekki markvisst sótt fylgi sitt
til Sjálfstæðisflokksins. „Hins vegar
hefur sá flokkur, sem og hinir stjórn-
arflokkarnir, yfirgefið sitt fylgi með
því að fylgja ekki því góða í þeirra
stefnu,“ segir hann. „Hugmynda-
fræðilega er eitt og annað í þeirra
stefnu sem ég tel að þeir hafi gleymt.“
Athygli vekur að niðurstaða MMR
Á miklu flugi í skoðanakönnunum
Miðflokkurinn mælist nánast jafn stór og Sjálfstæðisflokkurinn í nýrri skoðanakönnun. Formaður Miðflokksins segir þetta merki
um að kjósendur vilji ekki að hann sveiflist með tíðarandanum hverju sinni. Prófessor segir erfitt að segja til um framhaldið.
Það er spurning
hvað sé verið að
mæla, hvort það sé dags-
formið á kjósendunum eða
hugmyndafræðilegir til-
flutningar á
fylgi.
Grétar Þór
Eyþórsson, pró-
fessor við HA
n Kosningar 2017 n 22. nóv n 27. okt n 16. okt
Sjálfstæðisflokkurinn 25,3 18,1 22,7 19,6
Samfylkingin 12,1 13,2 17,3 18,5
Miðflokkurinn 10,9 16,8 11,5 11,6
Vinstri grænir 16,9 10,6 13,4 12,7
Píratar 9,2 10,8 9,0 10,9
Viðreisn 6,7 9,7 10,3 11,3
Framsóknarflokkurinn 10,7 9,4 8,2 7,3
Flokkur fólksins 6,9 6,3 4,6 4,0
Aðrir 1,5 5,1 3,0 4,0
25
20
15
10
5
0
✿ Ef kosið yrði til Alþingis í dag,
hvaða flokk myndir þú kjósa?
ANNAÐ
2 3 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
F
-4
E
8
0
2
4
4
F
-4
D
4
4
2
4
4
F
-4
C
0
8
2
4
4
F
-4
A
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K