Fréttablaðið - 23.11.2019, Side 18
Ég ætla ekki að fara
neitt í kringum þá
hluti. Ég var
svekktur að fá
ekki heima-
leik.
Freyr
Alexandersson
FÓTBOLTI Knattspyrnusamband
Íslands, KSÍ, þarf eins og knatt-
spyrnusambönd sem eiga lið í
umspili um laus sæti í lokakeppni
Evrópumótsins í knattspyrnu
karla að staðfesta heimavöll sinn í
umspilsleikjum til evrópska knatt-
spyrnusambandsins, UEFA, fyrir
20. desember næstkomandi.
Íslenskir knattspyrnuáhuga-
menn hafa haft af því áhyggjur að
Laugardalsvöllur, sem er ekki upp-
hitaður, verði ekki leikfær þegar
leikurinn við Rúmena í undanúr-
slitum umspilsins fer fram 26. mars
á næsta ári.
Klara Bjartmarz, framkvæmda-
stjóri KSÍ, segir að um staðlaða
dagsetningu sé að ræða og tengist
því ekkert hvort að um sé að ræða
leikvanga þar sem mögulegt sé að
leikvöllur verði leikfær eður ei á
leikdegi.
Ómar Smárason, fjölmiðlafull-
trúi KSÍ, staðfesti það í samtali við
Fréttablaðið að tekin hefði verið
ákvörðun um að Laugardalsvöllur
verði skráður sem heimavöllur
íslenska liðsins í þessum leik og að
þeirri ákvörðun verði ekki haggað.
Þegar Ísland spilaði við Króatíu
í umspili um laust sæti á heims-
meistaramótinu 2014 um miðjan
nóvembermánuð árið 2013 var
fenginn hitadúkur til þess að
vernda Laugardalsvöllinn fyrir
frosti og líklegt er að farið verði í
einhverjar aðgerðir í þeim dúr þegar
nær dregur leiknum mikilvæga.
Það er vonandi að aðstæður
verði ekki jafn óboðlegar og í leik
Íslands og Írlands sem leikinn var
í umspili fyrir Evrópumót kvenna
árið 2009 í lok október árið 2008. Þá
var Laugardalsvöllur líkari skauta-
svelli en knattspyrnuvelli og leik-
menn runnu til á vellinum eins og
íshokkíleikmenn. Ísland vann þann
leik og komst á EM. – hó
Ákvörðun um leikstað í umspilinu
þarf að liggja fyrir 20. desember
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
FÓTBOLTI „Rúmenarnir voru að
mörgu leyti sterkasta þjóðin en
að sama skapi eru þeir líka með
ákveðna veikleika. Þetta snerist
aðallega um að fá heimaleik í seinni
leiknum og ég ætla ekki að fara neitt
í kringum þá hluti. Ég var svekktur
að fá ekki heimaleik. En það er eitt-
hvað sem maður hefur ekki stjórn á,
því miður. Það leið þó hratt hjá og ég
var farinn að einbeita mér fljótlega
að öðrum hlutum,“ segir Freyr Alex-
andersson aðstoðarlandsliðsþjálfari.
Freyr fylgdist límdur við skjáinn,
eins og trúlega flestir aðrir, með því
hvaða mótherjar kæmu upp úr hatti
UEFA í gær. Upp komu Rúmenar og
þar með hófst vinnan. Hann segir að
margar breytur séu í öllu dæminu
en hvað snerti þjálfarateymið, hann
sjálfan og Eric Hamrén, sé tímalínan
fram að leik nokkuð skýr. „Við erum
byrjaðir að safna upplýsingum um
mótherjana. Líka um Búlgara og
Ungverja. Við setjum okkar njósnara
á þau lið sem fylgja þeim eftir og gefa
okkur skýrslur.
Við erum að fara svo til Búdapest
og Sófíu í byrjun desember að finna
hótel og skoða aðstæður og aðbúnað
fyrir úrslitaleikinn og klára æfinga-
svæði fyrir Evrópumótið.“
Undanúrslitaleikurinn á móti
Rúmeníu verður leikinn á Laugar-
dalsvelli 26. mars á næsta ári og
úrslitaleikurinn verður síðan spilað-
ur í annaðhvort Sófíu eða Búdapest
31. mars. Dregið verður svo í riðla-
keppni lokakeppninnar á mótinu
laugardaginn 30. nóvember.
Byrjaðir að safna gögnum um Rúmena
Birkir Bjarnason skorar hér gegn Moldóvum. Hann þarf að finna sér lið í janúar en samningur hans í Katar rennur út í desember. NORDICPHOTOS/GETTY
Fallið stórveldi
Rúmenar hafa mátt muna sinn
fífil fegri. Liðið hefur aðeins farið
á tvö stórmót síðan um alda-
mótin en eftir að Gheorghe Hagi
lagði landsliðsskóna á hilluna
hefur leiðin aðeins legið niður á
við. Í forkeppninni var liðið með
Spánverjum, Svíum, Norðmönn-
um, Maltverjum og Færeyjum í
riðli. Liðið endaði í fjórða sæti
með 14 stig. Claudiu Keșerü varð
þó markahæstur í riðlinum með
sex mörk. George Pușcaș skoraði
fimm en alls skoraði liðið 17
mörk og fékk á sig 15 í riðlinum.
Vinna er þegar hafin
innan veggja KSÍ við
að safna upplýsingum
um Rúmena. Einnig er
spáð í Búlgara og Ung-
verja. Það er ekki setið
auðum höndum þessa
dagana í Laugardalnum
en Freyr Alexandersson
aðstoðarlandsliðsþjálf-
ari segist svekktur að fá
ekki tvo heimaleiki.
Fari svo að Ísland komist á loka-
mótið er orðið ljóst að F-riðill bíður
okkar. Þar er þegar búið að raða
Þýskalandi niður en spilað verður á
Allianz Arena í München og Puskas-
leikvangi í Búdapest í Ungverja-
landi. Leikirnir fara fram 16., 20. og
24. júní.
Aðalfundur
Golfklúbbs Ness - Nesklúbbsins 2019
Aðalfundur Golfklúbbs Ness - Nesklúbbsins verður
haldinn í golfskála félagsins fimmtudaginn
28. nóvember nk. kl. 19.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál.
Allar nánari upplýsingar um fundinn
má sjá á heimasíðu klúbbsins, nkgolf.is
2 3 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
2
3
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
F
-1
D
2
0
2
4
4
F
-1
B
E
4
2
4
4
F
-1
A
A
8
2
4
4
F
-1
9
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K