Fréttablaðið - 23.11.2019, Side 24

Fréttablaðið - 23.11.2019, Side 24
Þrátt fyrir mikið annríki hjá fjölskyldunni þessi dægrin finna þau tíma til þess að taka á móti blaðamanni og ljós-myndara á heimili sínu í Hlíðunum. Í desember ríkir eins konar vertíð hjá þeim, sérstaklega hjá Stefáni, enda fá ansi mörg starfs- mannafélög þá flugu í höfuðið rétt fyrir jól að fá hann til þess að standa fyrir jólabjórskynningu á vinnu- staðnum. Á meðan Steinunn brasar ásamt kollegum sínum við að koma saman fjárlögum næsta árs þá er eldri sonurinn, Nóam Óli, varla kominn niður á jörðina ennþá eftir frækinn sigur hans og skólafélaganna í hæfi- leikakeppninni Skrekk á dögunum. Þar söng hópurinn frumsamið lag um það að koma út úr skápnum. Fullkomið tilgangsleysi Fyrsta spurning viðtalsins hrýtur þó af vörum yngri sonarins, hins tíu ára gamla Böðvars, þegar við erum að koma okkur fyrir í stofunni. Hann horfir fullur réttmætrar tor- tryggni á blaðamann og spyr: „Af hverju ertu eiginlega að þessu?“ Alls konar tilvistarlegar vanga- veltur þjóta um huga blaðamanns en ekkert augljóst svar kemur þó í hugann. Fjölskyldufaðirinn stekkur þó blessunarlega til varnar. „Það þarf að vera eitthvert efni með auglýsingunum,“ segir Stefán. Sjaldan hefur sósíalisti varið kapít- alista með jafn fimlegum hætti. Á stofuborðinu er smá rusl sem Steinunn tínir upp og segir afsakandi að sé eftir framleiðslu á barmmerkjum. Fyrir málstað hernaðarandstæðinga. Það hafa ófá barmmerkin verið framleidd á þessu heimili. „Sennilega náði barmmerkja- gerðin hámarki þegar við fram- leiddum merk i til stuðnings R-listanum í borginni á sínum tíma í þúsundatali. Það er smá handa- vinna við hvert og eitt merki og ég fæ enn verk í puttana við að hugsa um þann tíma,“ segir Steinunn. Steinunn er fædd í Neskaupstað og ólst þar upp að hluta en einnig í austurbæ Kópavogs. Hún fór ung að skipta sér af pólitík og snemma á menntaskólaaldri hóf hún afskipti af pólitík í gegnum ungliðahreyf- ingu Alþýðubandalagsins. Ákvað sig átta ára Stefán hóf einnig snemma afskipti af stjórnmálum. „Móðir mín var for- maður Samtaka herstöðvaandstæð- inga og því er ég alinn upp af rót- tæklingum. Ég var í raun búinn að mynda mér skoðun í helstu málum um átta ára aldur. Þá var ég orðinn sósíalisti, friðarsinni, Framari og farinn að halda með liði á Eng- landi. Ég veit ekki hvort það þykir endilega þroskamerki að hafa bara klárað hugsjónapallettuna svona snemma,“ segir Stefán brosandi. Þessi bráðgeri áhugi á stjórnmál- um og hugsjónastarfi hefur einnig gripið elsta soninn. Nóam Óli segist ekki þekkja neitt annað en að mæta í mótmælagöngur, kertafleytingar og aðrar uppákomur því tengdar. Auk þess að mæta á alla mögu- lega viðburði með foreldrum sínum hefur hann einnig fundið sinn eigin farveg í loftslagsmótmælum grunn- skólanemenda. Á fyrstu mótmæl- unum hvöttu vinir Nóams úr skól- anum hann til að halda ræðu sem hann og gerði eftir að hafa hripað niður nokkur orð á símann sinn og tók síðan til máls. „Það er jú það sem maður gerir á mótmælum,“ segir faðirinn og ekki laust við að vera hreykinn. Pólitískar hugsjónir Böðvars hafa ekki enn brotist út með sama hætti þó að eflaust séu þær í gerjun. Blaðamaður hættir ekki á að spyrja drenginn út í þær. Af svipnum að dæma er drengurinn kominn á þá skoðun að spyrjandinn sé algjör fúskari. Glímt við MS í tvo áratugi Steinunn og Stefán fóru að rugla saman reytum upp úr aldamótum enda voru þau bæði virk í pólitísku starfi hjá ungum vinstrisinnum sem og í starfi herstöðvaandstæð- inga. „Við erum svo gömul að við náðum að starfa í æskulýðsfylkingu Alþýðubandalagsins sáluga,“ segir Stefán. Þetta var umrótstími í lífi Stein- unnar enda hafði hún aðeins nokkr- um árum áður greinst með MS-sjúk- dóminn og var að venjast lífinu við þá tilhugsun. Hún hefur því í meira en helming ævi sinnar glímt við sjúkdóminn og það er ljóst að fjöl- skyldan er samstíga í þeirri baráttu. Nóam Óli segist ekki þekkja neitt annað en þessa glímu móður sinnar. „Þetta hefur því aldrei verið neitt áfall eða skrítið. Sjúkdómurinn hefur bara alltaf verið til staðar,“ segir hann. Sjúkdómseinkenni Steinunnar lýsa sér fyrst og fremst í jafnvægis- og orkuleysi. Hún á það til að reka fæturna í og detta þegar síst skyldi. „Ég held að fólk haldi mjög oft að hún sé drukkin,“ segir Stefán. Steinunn jánkar því brosandi og bætir við að það sé rosalegur munur á því viðmóti sem hún fær ef hún er á gangi óstudd eða þá með hjálpartæki eins og staf, hækju eða hjólastól. „Ef ég geng við staf þá er fólk miklu hjálplegra. Þá dúkkar oft upp stóll til að setjast á og önnur slík hugulsemi. Að sama skapi þá fær maður augngotur ef maður stígur óstuddur út úr merktum bíl í stæði fyrir fatlaða,“ segir Steinunn. Skrifaði sig í hjólastólinn Steinunn lauk mannfræðiprófi frá HÍ en fór tæpum áratug síðar í meistaranám í fötlunarfræði. Þá hafði hún verið virk í starfi Öryrkja- bandalagsins um nokkurra ára skeið. Lokaverkefni hennar snerist um reynslu fólks sem notar hjóla- stól af aðgengismálum. „Það má eig- inlega segja að Steinunn hafi skrifað sig að því að fara að nota hjólastól,“ segir Stefán brosandi. Það fer eftir dögum hvort Stein- unn treystir sér til þess að ganga óstudd, við staf eða notar hjólastól. „Þessi veikindi mín snúast fyrst og fremst um orkustjórnun. Ég þarf að meta hvað ég treysti mér til að gera gangandi,“ segir Steinunn. Hún nefnir sem dæmi friðargönguna á Þorláksmessu ár hvert. „Ég gæti kannski labbað niður Laugaveginn en þá væri ég búin á því næstu daga eftir gönguna. Við slík tækifæri vel ég því að nota hjólastólinn,“ segir Steinunn. Hún settist fyrst á Alþingi sem varaþingmaður árið 2008 og segir að margt hafi breyst til batnaðar varðandi aðgengi þingmanna sem glíma við örorku að vinnu sinni. Viðhorfið hefur breyst. Ræðu- púltinu var breytt. „Mín upplifun er að það sé reynt að koma til móts við þarfir varðandi aðgengi í bygg- ingum og þegar ljóst er að ég þarf að nota hjólastól og aðgengi er erfitt á fundum sem ég þarf að sækja vinn- Friðarsinnuðu róttæklingarnir í Eskihlíðinni Hjónin Stefán Pálsson og Steinunn Þóra Árnadóttir og synir þeirra, Nóam Óli og Böðvar, eru friðarsinnaðir róttæklingar fram í fingur- góma. Þau ræða um lífið, baráttuna við MS-sjúkdóminn, enska bolt- ann og tímamótin þegar þau uppgötvuðu að þau ættu tvo stráka. Nóam Óli, Steinunn, Böðvar og Stefán á heimili sínu í Eskihlíðinni. Fjölskyldan hefur í nógu að snúast þessi dægrin. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI ÉG VAR Í RAUN BÚIN AÐ MYNDA MÉR SKOÐUN Í HELSTU MÁLUM UM ÁTTA ÁRA ALDUR. Stefán Björn Þorfinnson bjornth@frettabladid.is 2 3 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 3 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 7 F B 1 1 2 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 4 F -5 8 6 0 2 4 4 F -5 7 2 4 2 4 4 F -5 5 E 8 2 4 4 F -5 4 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 1 2 s _ 2 2 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.