Fréttablaðið - 23.11.2019, Side 26

Fréttablaðið - 23.11.2019, Side 26
unnar vegna hefur Alþingi séð til þess að ég fái aðstoðarmann.“ Aðspurð hvort það sé virkilega skemmtilegt að vinna á Alþingi játar hún það í fullri einlægni. „Þetta er mjög gefandi starf sem ég brenn fyrir. Það koma auðvitað erfiðar stundir inn á milli en þarna er hægt að móta hvernig samfélag við viljum. Það sem sjaldan birtist í fréttum er að oft er breið samstaða milli þingmanna um hin ýmsu framfaramál. Það eru deilurnar sem rata í fréttir. Starfsandinn er að mestu leyti góður þó að vissu- lega komi tímar þar sem þingmenn takast á,“ segir Steinunn. Feðgar með ást á fótbolta Á þessum tímapunkti er Böðvar orðinn afar óþreyjufullur. Hann hvíslar óþarflega hátt að viðtalið sé leiðinlegt. Greinilegt er að þarna er komin eindreginn stuðningsmaður yfirvofandi verkfalls blaðamanna, sérstaklega ef það varir um ókomna tíð. Blaðamaður kýs þá að beygja af leið og ræða það sem raunverulega skiptir máli. Fótbolta. Þá lifnar yfir Böðvari. Þeir feðgar eiga nefnilega fótboltaáhugann saman og þekkja ólíklegustu stað- reyndir um enska boltann. „Böðvar safnaði fótboltaspjöldum af mikilli ástríðu og las þau spjaldanna á milli. Kannski ekki viðurkennd aðferð til þess að auka lestrarhæfni en hún virkaði,“ segir Stefán. Sjálfur er hann Framari út í gegn sem og eldheitur stuðningsmaður Luton Town, liðs sem kann best við sig í neðri deildum enska bolt- ans. Böðvar hefur þó valið sér lið sem njóta öllu meiri velgengni, að minnsta kosti nú um stundir, Val og Manchester City. Aðspurður um hvort að það sé ekki erfitt að sjá soninn í rauðu segir Stefán: „Nei, nei, við sitjum bara ekki saman á leikjum.“ Steinunn og Nóam deila ekki áhuganum á fótboltanum. Nóam prófaði körfubolta og þeir feðgar lýsa fyrstu æfingunni hlæjandi sem hægfara lestarslysi. „Hann driplaði boltanum beint í trýnið á sér og f leira í þeim dúr. Ferillinn í bolta- íþróttunum varð því ekki langur,“ segir Stefán. Nóam hefur síðan fundið sína fjöl í bogfimi sem hann stundar af kappi sem og í tónlistinni, eins og áður segir. „Ég hef verið í gítar- námi en síðan læri ég líka bara mikið sjálfur í gegnum YouTube,“ segir Nóam. Æfingarnar hafa borið ríkulegan ávöxt því atriði í kringum frumsamið lag Nóams og félaga í Hlíðaskóla sigraði í hæfileika- keppni Skrekks á dögunum. Nóam segir að til greina komi að taka lagið upp og gefa það út en síðan eru einnig stærri landvinn- ingar mögulega við sjóndeildar- hringinn. „Ég er í hljómsveit og við ætlum líklega að taka þátt í Músík- tilraunum í ár. Það er að segja ef við komumst inn,“ segir Nóam. Kom út úr skápnum í sumar Sigurlagið títtnefnda fjallar um að koma út úr skápnum, tilfinningu sem Nóam þekkir af eigin raun. Hann fæddist sem stelpa en í sumar tilkynnti hann foreldrum sínum að hann væri strákur og ætlaði að taka upp nafnið sem hann ber í dag. „Ég byrjaði að átta mig á því um tíu ára aldurinn að ég væri hinsegin. Vinir mínir og bekkjarfélagar fóru líka að koma með athugasemdir um að það að tala við mig væri bara eins og að tala við einn af strákunum. Fólk hélt að ég væri lesbía en eftir að ég fór að kynna mér málin betur og hvað það væri að vera trans þá uppgötvaði ég að mér leið þannig,“ segir Nóam. „Þetta kom okkur pínu í opna skjöldu en var þó ekkert mál. Við eigum eflaust eftir að læra ýmislegt á þessari vegferð sem fram undan er,“ segir Steinunn. Stefán jánkar því og bætir við að það sem sér þyki mest til koma er hversu opnir og fordómalausir krakkar í dag eru gagnvart fjölbreytileika mannlífs- ins. Nóam tekur undir það. Vinir og bekkjarsystkin hafa tekið honum opnum örmum. Þá hrósar hann einnig foreldrum sínum og segir að þau séu eiginlega alveg hætt að kalla hana gamla nafninu eða nota vit- laust kyn lýsingarorða! „Þau átta sig stundum á síðustu stundu og breyta kvenkynsendingum í karlkyns,“ segir hann. Nóam segir að hið sjaldgæfa nafn sem hann tók upp hafi verið fundið út með útilokunaraðferðinni. „Vinur minn sendi mér lista með mörgum nöfnum og ég renndi vel og vandlega yfir hann. Ég fékk leiða á mörgum nöfnum strax en Nóam sat eftir sem eitthvað sem ég gat tengt mig við. Þess vegna valdi ég þetta nafn,“ segir piltur. Stefán bætir við að Nóam sé fyrir- hyggjusamur og hafi þegar gengið úr skugga um að mannanafnanefnd leggi blessun sína yfir nafnið. Sjálfur hafi hann verið fljótur að tileinka sér hið nýja nafn, hann hugsar bara til Noams Chomsky. Á þessari stundu gefst Böðvar endanlega upp enda augljóslega með öllu útilokað að viðtalið verði skemmtilegt. Hann yfirgefur því samkunduna til að fá sér að borða. Ekki launamaður í áratug Blaðamaður snýr sér að Stefáni og spyr hvort hann hafi alfarið atvinnu af því að vera skemmtilegur. „Ég hef ekki verið launamaður í tæpan áratug,“ segir Stefán bros- andi. Hann starfaði þá á fræðslusviði Orkuveitunnar og þar má segja að hann hafi leiðst út í bransann sem hann starfar helst við í dag, leið- sögn. „Hjá Orkuveitunni var reglu- lega boðið upp á göngutúra með fræðsluívafi um Elliðaárdalinn og ég leiddist út í að taka þátt í því,“ segir Stefán. Hann fann fljótt að slíkt átti vel við hann. „Ég hef alltaf verið sögumaður og hef gaman af að finna litla skemmti- lega fróðleiksmola til þess að upplýsa fólk. Sagan er alls staðar,“ segir hann. Hann hefur mikið að gera í sögu- göngum um Reykjavík, helst Kvosina og Örfirisey. „Þetta er nú ekki mjög skipulagt hjá mér. Ég hef ekkert auglýst né staðið í miðbænum með skilti. Þetta hefur bara spurst út og síðan er ég í símaskránni. Ég fer bæði með Íslendinga og útlendinga en það er mun skemmtilegra að ganga um með heimafólk. Fróðleikurinn fer bara inn um annað eyrað og út um hitt hjá útlendingunum en maður getur farið mun dýpra í hlutina með Íslendingana,“ segir Stefán. Þá hefur Stefán verið einn helsti bjórspekingur landsins um árabil og hefur vart undan að bóka slíkar kynningar í jólabjórsf lóðinu. „Ég held að ég hafi fengið áhuga á bjór út af því að ég var á táningsaldri þegar banninu var aflétt. Allt sem er bannað er jú spennandi. Síðan þegar ég fór að kynna mér söguna á bak við hinar ýmsu bruggaðferðir þá varð ekki aftur snúið fyrir sagn- fræðinginn,“ segir hann. Hann segir að þetta líf, að vinna fyrir sjálfan sig, eigi vel við sig. „Þetta var sérstaklega þægilegt þegar strákarnir voru ungir og ég gat hagað mínum tíma sjálfur,“ segir Stefán. Steinunn tekur undir það. „Ég fer yfirleitt í vinnuna og Stefán sér um afganginn,“ segir hún og hlær. Eini gallinn sem hún kemur auga á er að hinar ýmsu uppákomur sem Stefán er bókaður á þýða oft mikla kvöld- og helgar- vinnu. „Við þurfum alveg að setjast niður með dagbækurnar af og til að skipuleggja næstu vikur. Til þess að tryggja að við eigum einhverjar fjölskyldustundir öll saman,“ segir Steinunn. Talið berst að lokum að jólunum og undirbúningi þeirra. Steinunn og fjölskylda hennar hafa verið í Ása- trúarfélaginu og þangað lá leið trú- leysingjans Stefáns líka. „Við höld- um hefðbundin jól en lengjum þau svo með því að mæta á blót til þess að fagna vetrarsólstöðum. Hátíðin er því lengri hjá okkur. Ég get ekki sagt að við séum trúuð en félags- skapurinn í kringum Ásatrúar- félagið er mjög skemmtilegur,“ segir Steinunn. bjornth@frettabladid.is FÓLK HÉLT AÐ ÉG VÆRI LESBÍA EN EFTIR AÐ ÉG FÓR AÐ KYNNA MÉR MÁLIN BETUR OG HVAÐ ÞAÐ VÆRI AÐ VERA TRANS ÞÁ UPP- GÖTVAÐI ÉG AÐ MÉR LEIÐ ÞANNIG. Nóam 2 3 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 3 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 7 F B 1 1 2 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 4 F -5 3 7 0 2 4 4 F -5 2 3 4 2 4 4 F -5 0 F 8 2 4 4 F -4 F B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 1 2 s _ 2 2 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.