Fréttablaðið - 23.11.2019, Page 49
FORSTÖÐUMAÐUR
LANDGRÆÐSLUSKÓLANS
HELSTU VERKEFNI
+ Stjórnun, stefnumótun og rekstur
+ Samstarf við samstarfsaðila, innanlands og utan.
+ Ábyrgð á vali nemenda frá þróunarlöndum til að taka
þátt í árlegri 6-mánaða þjálfun eða MS/PhD námi hér
á landi og efla samstarf við viðeigandi samstarfsaðila
í samstarfslöndum skólans í Afríku og Mið-Asíu.
+ Ábyrgð á gæðum og skipulagningu náms.
+ Vinna með systurstofnunum á Íslandi
(Sjávarútvegsskólanum,Jarðhitaskólanum og
Jafnréttisskólanum) og Þekkingarmiðstöð þróunarlanda,
sem er sameiginlegur tengiliður skólanna á Íslandi við
UNESCO og utanríkisráðuneytið
HÆFNISKRÖFUR
+ Doktors- eða meistaragráða á fagsviðum sem tengjast
landgræðslu og sjálfbærri landnýtingu.
+ Stjórnunarreynsla
+ Reynsla af rannsóknum, kennslu eða leiðbeiningarstörfum
nemenda á háskólastigi.
+ Gott vald á rituðu og töluðu máli, bæði ensku og íslensku.
+ Reynsla af störfum á alþjóðavettvangi svo sem þróunar-
samvinnu æskileg.
+ Mjög góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna með
fólki frá mismunandi menningarheimum.
+ Frumkvæði og drifkraftur.
Um er að ræða fullt starf með starfsstöð í Reykjavík.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis
og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt að viðkomandi geti
hafið störf 1. febrúar 2020.
Óskað er eftir að umsókn fylgi ferilskrá yfir menntun og fyrri störf,
staðfesting á námi og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir
grein fyrir ástæðu umsóknarinnar og sýn sinni varðandi hlutverk
og starfsemi skólans.
Sótt er um í gegnum vefsíðu Landbúnaðarháskóla Íslands
www.lbhi.is/storf Umsóknafrestur er til og með 9. desember.
FREKARI UPPLÝSINGAR
Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Landgræðsluskólans,
hafdishanna@lbhi.is
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands,
ragnheidur@lbhi.is
Árni Bragason, formaður stjórnar Landgræðsluskólans,
arni.bragason@land.is
Leitað er að öflugum og jákvæðum stjórnanda
í krefjandi starf. Forstöðumaður Landgræðslu-
skólans ber ábyrgð á stjórnun, stefnumótun og
rekstri skólans,sem og gæðum og skipulagningu
náms sem skólinn stendur fyrir.
kopavogur.is
P
ip
a
r\TB
W
A
\ SÍA
Laust er til umsóknar starf í innra eftirliti á sviði gæðamála. Viðkomandi mun
hafa umsjón með gæðakerfi Kópavogsbæjar, ISO 9001. Gæðakerfið tekur til
allrar starfsemi sveitarfélagsins og leggur grunnlínur í vinnubrögðum. Starfið
heyrir undir sviðsstjóra stjórnsýslusviðs.
Helstu verkefni
• Vinnur við uppbyggingu, rekstur og þróun gæðakerfis og gæðahandbókar.
• Sér til þess að gæðakerfið sé samofið starfsemi sveitarfélagsins.
• Viðheldur vottun gæðakerfisins.
• Heldur utan um mælingar gæðakerfisins og gefur skýrslu um niðurstöður þeirra.
• Þátttaka í fræðslu um gæðakerfið og uppbyggingu þess.
• Umsjón með innri úttektum gæðakerfisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Þekking á gæðastjórnun, hönnun ferla og viðhaldi gæðaskjala.
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu.
• Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni.
• Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í vinnubrögðum.
Umsóknarfrestur er til og með 9. desember 2019
Nánari upplýsingar um starfið veitir Harpa Hallsdóttir, mannauðsráðgjafi
stjórnsýslu sviðs (harpahalls@kopavogur.is), s. 441 0000.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og
viðkomandi stéttarfélags.
Tekið er við umsóknum í gegnum ráðningarvef Kópavogsbæjar.
Innra eftirlit – gæðamál
Sunnulækjarskóli
Við Sunnulækjarskóla á Selfossi er
laus staða umsjónarkennara í 5. bekk
Í skólanum eru um 710 nemendur og þar er lögð áhersla
á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklings
miðað nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð nemenda og góða
samvinnu allra sem að skólastarfinu koma. Laun og starfs
kjör eru samkvæmt viðeigandi kjarasamningi. Áhugasamir
einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu skólans:
http://www.sunnulaekjarskoli.is og í tölvupósti:
birgir@sunnulaek.is
Umsóknarfrestur er til 8. desember.
Sótt er um stöðuna á vef Sveitarfélagsins Árborgar,
http://www.arborg.is, laus störf.
Skólastjóri
Starf lögfræðings hjá Sambandi
íslenskra sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga hyggst ráða lögfræðing
á lögfræði- og velferðarsvið. Lögfræðingar sambandsins
koma fram fyrir þess hönd við undirbúning lagafrumvarpa
og stjórnvaldsfyrirmæla sem varða sveitarfélögin og vinna
að upplýsingagjöf, ráðgjöf og fræðslu til sveitarfélaga.
Lögfræðingurinn mun starfa ásamt öðrum lögfræðingum og
sérfræðingum sviðsins að margþættum og síbreytilegum
verkefnum, sem meðal annars varða skipulags-, umhverfis-
og auðlindamál, skólamál, málefni félagsþjónustu sveitar-
félaga og túlkun laga og reglna sem varða starfsemi
sveitarfélaga.
Gerð er krafa um embættispróf í lögfræði eða meistarapróf
í lögum, ásamt góðri þekkingu á stjórnsýslurétti. Reynsla
af störfum á þeim málefnasviðum sem að ofan greinir er
kostur, ásamt þekkingu og áhuga á málefnum sveitarfélaga.
Gott vald á íslensku máli í ræðu og riti og hæfni í fram-
setningu upplýsinga er skilyrði. Góð kunnátta í a.m.k. einu
öðru Norðurlandamáli og ensku er æskileg, sem og góð
tölvuþekking, bæði til öflunar og úrvinnslu upplýsinga.
Leitað er að hæfum einstaklingi sem hefur til að bera
frumkvæði, sjálfstæði, þjónustulund, hæfni í mannlegum
samskiptum, nákvæmni í vinnubrögðum og forystu- og
skipulagshæfileika. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið
störf sem fyrst.
Föst starfsaðstaða getur verið utan höfuðborgarsvæðisins,
að þeirri forsendu uppfylltri að mögulegt verði að tryggja
fullnægjandi starfsaðstöðu nærri heimili umsækjanda, en
einnig á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga
í Reykjavík.
Gert er ráð fyrir að gagnkvæmur reynslutími sé sex mánuðir
við ráðningu.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Bragason, sviðsstjóri
lögfræði- og velferðarsviðs, netfang:
gudjon.bragason@samband.is, eða Valur Rafn Halldórsson
sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs, netfang:
valur@samband.is eða í síma 515-4900.
Samband íslenskra sveitarfélaga er framsækinn vinnu-
staður sem býður upp á opið vinnuumhverfi, samheldinn
starfsmannahóp og skapar starfsmönnum gott svigrúm
til starfsþróunar. Umsækjendum er bent á að frekari
upplýsingar um Samband íslenskra sveitarfélaga eru á
heimasíðunni, www.samband.is. Þar er einnig að finna
starfslýsingu fyrir starfið og mannauðsstefnu sambandsins.
Umsóknir, merktar Umsókn um starf lögfræðings á
lögfræði- og velferðarsviði, berist eigi síðar en mánudag-
inn 9. desember nk. til Sambands íslenskra sveitarfélaga,
Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík, eða í tölvupósti
til samband@samband.is.
2
3
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
4
F
-8
E
B
0
2
4
4
F
-8
D
7
4
2
4
4
F
-8
C
3
8
2
4
4
F
-8
A
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K