Fréttablaðið - 23.11.2019, Qupperneq 99
LEIKHÚS
Mamma klikk!
Gaflaraleikhúsið
Höfundur: Gunnar Helgason
Leikgerð og leikstjórn: Björk
Jakobsdóttir
Leikarar: Gríma Valsdóttir, Val-
gerður Guðnadóttir, Auðunn Sölvi
Hugason, Ásgrímur Gunnarsson,
Gunnar Helgason, Þórunn Lárus-
dóttir, Felix Bergsson, Matthías
Davíð Matthíasson, Agla Bríet
Einarsdóttir, Vera Stefánsdóttir og
Thea Snæfríður Kristjánsdóttir
Leikmynd: Stígur Steinþórsson
Lýsing: Freyr Vilhjálmsson
Búningar, leikgervi og sviðshreyf-
ingar: Björk Jakobsdóttir
Frumsamin tónlist og tónlistar-
hönnun: Hallur Ingólfsson
Lagatextar: Hallur Ingólfsson, Þor-
steinn Valdimarsson og Hjörleifur
Hjartarson
Klipping og hönnun á vídeóefni:
Björk Jakobsdóttir og Vignir Daði
Valtýsson
Stella er alveg að missa þolin-
mæðina. Mamma hennar er að gera
hana brjálaða með afskiptasemi
og furðulegu háttalagi sem náði
hámarki nýlega þegar hún tilkynnti
heilli fermingarveislu að Stella væri
byrjuð á blæðingum. Leikritið
Mamma klikk! í leikstjórn Bjarkar
Jakobsdóttur var frumsýnt síðast-
liðinn mánuð í Gaflaraleikhúsinu
í Hafnarfirði sem hefur einbeitt sér
að barnaleikritum upp á síðkastið,
sem er vel.
Leikritið er samið upp úr vinsælli
bókaseríu Gunnars Helgasonar en
Björk gerir leikgerðina. Hér kemur
fram gnægð af persónum sem
margir þekkja en aðrir eru að kynn-
ast í fyrsta skiptið. Söguþráður
sýningarinnar snýst að mestu um
leit Stellu að sátt við sjálfa sig og
fjölskyldu sína, eitthvað sem allir
geta tengt við. Handritið gengur
upp að mestu en síðasti kaflinn er
eins og klipptur úr öðru verki. Hug-
myndin er fín, enda er mikil þörf á
að kynna klassíska tónlist fyrir
ungum áhorfendum, en hana hefði
þurft að útfæra töluvert betur.
Grasrótarvinna skilar sér
Gríma Valsdóttir í hlutverki Stellu
töfrar fram persónu sem er að feta
sín fyrstu spor í tilveru fullorðinna,
eins og allt ungt fólk. Stella er ekki
orðin nægilega gömul til að hafa vit
fyrir sjálfri sér en hefur fulla getu
til að skilja að heimurinn er ekki
sanngjarn. Allt þetta sýnir unga
leikkonan afskaplega vel og hnýtir
sýninguna fallega saman. Allt unga
fólkið í sýningunni stendur sig með
prýði og greinilegt að grasrótar-
vinna Gaflaraleikhússins er að skila
sér margfalt.
Grímu til halds og trausts er
leikhópur sem samanstendur ekki
einungis af ungu fólki að stíga sín
fyrstu skref en líka reynslumiklum
leikurum. Valgerður Guðnadóttir
leikur hina títtræddu Mömmu
klikk með miklum tilþrifum. Gunn-
ar Helgason leikur Pabba prófess-
or sem virðist hafa meiri áhuga á
sportbílum heldur en fræðilegum
rannsóknum. Valgerður f innur
mannlegu hliðina á sinni persónu
en Gunnar leitar of mikið í auð-
veldar lausnir og spaug.
Felix Bergsson mætir skelegg-
ur á svið í hlutverki hins lumpna
Hanna granna. Vandamálið við
karakterinn er hversu óljós hann er.
Sömuleiðis er Amma snobb, leikin
af Þórunni Lárusdóttur, ekki nægi-
lega afgerandi þó að hún sýni ágæta
takta inn á milli. Bæði eru Felix og
Þórunn fínustu leikarar og gera gott
úr því sem í boði er en áhorfendur fá
einungis snögga innsýn inn í innra
líf þessara annars ágætu karaktera.
Margt vel leyst
Björk hefur í ansi mörg horn að líta
þegar kemur að listrænni stjórnun
sýningarinnar. Ekki einungis sinn-
ir hún leikstjórn heldur hefur einn-
ig umsjón með búningahönnun,
leikgervum og sviðshreyfingum.
Margt er vel leyst og heppnast í
heildina nokkuð vel en óskandi
væri að verkefnunum hefði verið
útdeilt aðeins víðar til að skapa
fjölbreyttari virkni á milli list-
rænna þátta.
Stígur Steinþórsson sér um leik-
myndina sem er fallega hönnuð en
honum reynist erfitt að leysa breidd
sviðsins í Gaflaraleikhúsinu. Sviðið
er litríkt en oft frekar tómt á að líta.
Fallegustu augnablikin eiga sér stað
þegar sviðsmyndin opnast og fjöl-
skyldutréð í bakgarðinum kemur í
ljós. Tónlist Halls Ingólfssonar, sem
og lagatexta, hefði mátt vefa og nýta
betur inn í framvinduna, enda fín
til síns brúks.
Fjölskyldur eru alls konar og gall-
aðar. Mamma klikk! minnir áhorf-
endur á að það er bara hið besta mál
á meðan kærleikurinn er í fyrir-
rúmi. Blessunarlega eru ekki allir
eins, annars væri lífið ansi leiðin-
legt. Þó er þörf á betra jafnvægi
milli skilaboðanna og skopsins.
Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Fjörug og á köflum
falleg fjölskyldusaga um umburðar-
lyndi.
Flækjugangur
kjarnafjölskyldunnar
Margt er vel leyst og heppnast í heildina nokkuð vel, segir gagnrýnandi.
Höfundar Forlagsins afgreiða á básnum og
árita bækur sínar báða dagana kl. 12–17.
BÓK AMESSA Í
BÓKMENNTABORG
SJÁUMST Í HÖRPU
23.–24. NÓVEMBER
Páll Baldvin Baldvinsson kynnir bók sína Síldarárin.
Theodóra Mjöll greiðir gestum og gangandi og kynnir bók sína
Hárbókin – 58 greiðslur fyrir öll tilefni.
Kynning á bókinni Listin að vefa eftir Ragnheiði B. Þórsdóttur
og vefnaður til sýnis.
Sigrún Eldjárn kynnir bækur sínar Kopareggið og
Sigurfljóð í grænum hvelli.
Sigrún Elíasdóttir kynnir bók sína Leit in að vorinu og
Margrét Tryggvadóttir kynnir bók sína Kjarval – málarinn
sem fór sínar eigin leiðir.
Linda Ólafsdóttir teiknari lætur rotturnar úr Draumaþjófnum
lifna við á pappír.
Gunnar Helgason kynnir bók sína Draumaþjófurinn og
Linda Ólafsdóttir teiknar rottumyndir.
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
Opið alla virka daga 10–19 | Laugardaga 11–16
12–13.30
13.30–15.30
15.30–17
13–14
14–15
15–16
16–17
13–14
14–15.30
15.30–17
13–14
14–15
15–16
16–17
Ólína Þorvarðardóttir kynnir bók sína Lífgrös og leyndir
dómar – lækningar, töfrar og trú í sögulegu ljósi.
Þýðendur og ritstjóri bókarinnar Prjónastund sýna flíkur
úr bókinni og veita góð prjónaráð.
Páll Baldvin Baldvinsson kynnir bók sína Síldarárin.
Bergrún Íris Sævarsdóttir kynnir bók þeirra Ævars Þórs Benedikts-
sonar, Stórhættulega stafrófið, og teiknar stafi fyrir krakka.
Arndís Þórarinsdóttir kynnir bók sína Nærbuxnanjósnararnir.
Snæbjörn Arngrímsson kynnir bók sína Rannsóknin á
leyndardómum Eyðihússins.
Kristjana Friðbjörnsdóttir og Halldór Baldursson kynna
bók sína Rosalingarnir.
LAUGARDAGUR
BARNADAGSKR Á
SUNNUDAGUR
DAGSKR Á Á BÁS
BARNADAGSKR Á
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 51L A U G A R D A G U R 2 3 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9
2
3
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
F
-2
2
1
0
2
4
4
F
-2
0
D
4
2
4
4
F
-1
F
9
8
2
4
4
F
-1
E
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
1
2
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K