Fréttablaðið - 30.11.2019, Side 4
SAMFÉLAG „Það er mömmu að
þakka að ég fékk áhuga á veðri.
Þegar ég var smábarn var ég alltaf
að horfa upp í skýin. Hún gaf mér þá
bók fyrir börn sem útskýrði á ein-
faldan hátt hvernig veðrið virkar.
Þá varð ekki aftur snúið,“ segir
Muhammed.
Hann er fæddur í Danmörku en er
af tyrknesk/kúrdísku bergi brotinn.
Eftir að áhuginn á veðrinu kviknaði
sökkti hann sér ofan í allt sem hann
komst yfir um efnið. „Venjuleg
áhugamál heilluðu mig ekki heldur
miklu frekar fróðleikur um hvern-
ig náttúran virkar. Þegar ég var um
10-11 ára gamall kunni ég orðið öll
latnesk heiti á hinum ýmsu skýja-
myndunum.
Þrátt fyrir að þetta sé kannski
skrítið áhugamál á táningsaldri
þá hef ég aldrei orðið fyrir neinu
aðkasti. Ég hef alltaf upplifað frek-
ar áhuga og jafnvel aðdáun fólks
þegar ég fer að tala um veðrið,“ segir
Muhammed.
Á unglingsaldri lá hann yfir
gervitunglamyndum og f ljótlega
voru vinir og vandamenn farnir
að hringja í hann til þess að fá
upplýsingar um veður næstu daga
eða vikur. Einn af draumaáfanga-
stöðum hans, út af margbreytilegu
veðri, var Ísland og eftir að frændi
hans hafði mælt með námi á Íslandi
ákvað hann að skrá sig í Háskóla
Íslands árið 2013. Veðrið skemmdi
ekki fyrir.
„Fyrir mér er Ísland veðurpara-
dís. Ég nýt þess að vera úti í roki
og hríðarbyljum, helst þannig
að augnabrúnirnar frjósi,“ segir
Muhammed og hlær.
Það skýtur þó skökku við að
Muhammed nemur hér félagsfræði
en ekki veðurfræði. „Ég er múslimi
og eftir miklar vangaveltur ákvað
Veður
Hæg vestlæg eða breytileg átt, en
5-13 m/s á morgun. Slyddu- eða
snjóél á vestanverðu landinu og á
annesjum fyrir norðan.
SJÁ SÍÐU 62
Svartur föstudagur festir sig í sessi
Íslenskar verslanir kepptust við að auglýsa tilboð í tilefni af svörtum föstudegi að erlendri fyrirmynd. Tilboðsspenntir Íslendingar tóku daginn
snemma. Myndin var tekin rúmlega átta í gærmorgun þar sem viðskiptavinir ætluðu að gera góð kaup á sjónvörpum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Veðurfar hefur verið ástríða Muhammeds frá barnsaldri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Elskar að elta storma í
íslenskri veðurparadís
Muhammed Emin Kizilkaya flutti til Íslands því að hann elskar veðrið. Ekki
af því að það er svo gott heldur af því að það er svo slæmt og margbrotið. Á
milli þess sem hann les námsbækurnar í Háskóla Íslands eltir hann storma.
ég að það væri samfélagslega mikil-
vægara að læra félagsfræði. Ég vil
berjast gegn fordómum í veröldinni.
Veðrið verður samt alltaf ástríða
mín númer eitt. Það mun aldrei
breytast,“ segir hann.
Undanfarin ár hefur Muhammed
skapað sér aukastarf sem stormeltir
(e. storm chaser). „Ég rýk út þegar
von er á miklu óveðri og tek mynd-
bönd af hamförunum. Það er stórt
samfélag úti í Bandaríkjunum í
tengslum við hvirfilbylji en er frekar
nýtt af nálinni í Evrópu.
Ég er í góðu sambandi við áhuga-
menn í mörgum löndum og mynd-
bönd mín hafa oft verið birt í
stórum fréttamiðlum erlendis.“
Hann segir að réttar aðstæður
skapist þó ekki nema af og til og
þegar það gerist einbeiti hann sér
að þéttbýli.
„Rokið þarf helst að fara yfir 20
metra á sekúndu. Ég er búinn að
kortleggja höfuðborgarsvæðið
vel og veit um staði þar sem bygg-
ingarnar magna rokið. Ég fann það
f ljótt út að myndbönd sem sýna
áhrif veðurs á þéttbýli vekja mun
meiri áhuga en áhrif á óbyggðir,“
segir Muhammed.
Þá hefur hann meira að segja
boðið gestum með sér í stormelti-
ferðir. „Íslenskir vinir mínir eru
yfirleitt ekki mjög áhugasamir. Þeir
vilja helst vera inni í vondu veðri.
Þeir sem láta til leiðast elska þetta
þó yfirleitt.“
Hann segir mikilvægt að setja
öryggið á oddinn í ofsaveðrinu.
„Það geta margs konar hættur skap-
ast í mestu vindhviðunum og þess
vegna er ég mjög varkár.“
bjornth@frettabladid.is
Gefðu frí um jólin
með gjafabréfi Icelandair
SLYS Á sjötta tug einstaklinga leituðu
sér aðstoðar á bráðamóttöku Land-
spítalans vegna hálkuslysa á rúmum
sólarhring. Jón Magnús Kristjáns-
son, forstöðumaður bráðamóttöku
Landspítalans, segir að það sé mikill
fjöldi miðað við aðra daga þar sem
sambærilegar aðstæður skapast.
„Þetta er óvenju há tala enda mynd-
uðust þessar aðstæður mjög skyndi-
lega. Það hefur því verið mikið álag
á bráðamóttökuna undanfarinn
sólarhring,“ segir Jón.
Að hans sögn leituðu fimmtán
manns sér aðstoðar frá kvöldmatar-
leyti á fimmtudag til miðnættis og
síðan fjörutíu aðrir einstaklingar frá
miðnætti þar til síðdegis á föstudag.
„Fólk hefur aðallega verið að slasa
sig með því að renna til í hálkunni.
Inni í þessum tölum eru einnig ein-
staklingar sem slösuðust í nokkrum
vægum umferðarslysum. Blessunar-
lega hafa ekki orðið alvarleg umferð-
arslys enn,“ segir Jón. – bþ
Mikið um
hálkuslys
Jón Magnús
Kristjánsson.
FJÖLMIÐLAR Samstarfssamningur
sá sem í gildi hefur verið undan-
farin misseri um efnisaðgang vefs-
ins visir.is að efni Fréttablaðsins
rennur út á morgun, 1. desember.
Undanfarið hafa hafa lesendur vefs-
ins visir.is haft aðgang að fréttum
Fréttablaðsins og þá hefur blaðið
sjálft verið aðgengilegt þar á PDF-
sniði. Við lok samningsins nú verð-
ur breyting á þessu og efnið verður
ekki aðgengilegt annars staðar en á
miðlum Fréttablaðsins, í blaðinu og
á frettabladid.is.
Fréttablaðið og
Vísir aðskiljast
STJÓRNSÝSLA Í drögum að nýju
frumvarpi Áslaugar Örnu Sigur-
björnsdóttur dómsmálaráðherra er
lagt til að mannanafnanefnd verði
lögð niður. Markmið laganna er að
rýmka heimildir til skráninga nafna
og kenninafna.
Lagt er til að reglur um að eigin-
nafn verði að geta tekið eignarfalls-
endingu eða hafi unnið sér hefð í
íslensku máli verði afnumdar, sem og
reglur um að nafn megi ekki brjóta í
bága við íslenskt málkerfi. Nöfn skuli
rituð með bókstöfum latneska staf-
rófsins, þar með töldum viðurkennd-
um sérstöfum. Heimilt verði að taka
upp ættarnöfn en önnur kenninöfn
verði í samræmi við íslenska hefð um
ritun kenninafna. – bþ
Umdeild nefnd
verði lögð niður
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir, dóms-
málaráðherra.
3 0 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
3
0
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
4
4
s
_
P
1
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
6
0
-E
9
3
4
2
4
6
0
-E
7
F
8
2
4
6
0
-E
6
B
C
2
4
6
0
-E
5
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
4
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K