Fréttablaðið - 30.11.2019, Qupperneq 6
Fáðu fréttablað dagsins í
tölvupósti kl. 3.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista blaðsins á
www.frettabladid.is#nyskraning
Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Margrét Lára Viðarsdóttir
knattspyrnukona
tilkynnti á þriðju-
daginn að hún
myndi leggja skóna
á hilluna. Margrét
Lára er markahæsti
leikmaður íslenska
kvennalandsliðsins
frá upphafi. Hún skoraði þrennu
eða meira í sjö landsleikjum og
skoraði alls 79 mörk, það síðasta
með lokaspyrnu sinni í lands-
liðstreyjunni gegn Lettlandi á
dögunum.
Andrés Ingi Jónsson
alþingismaður
sagði sig úr þing-
flokki VG á mið-
vikudaginn.
„Ég hef verið að
melta þetta í nokkra
daga. Og fara yfir síðustu
tvö ár, hvernig samstarfið hefur
verið innan þingflokksins og á milli
samstarfsflokkanna,“ sagði Andrés
við frettabladid.is.
Elisabeth Roscher
einn eigenda lögmanns-
stofunnar Wikborg
Rein
leiðir rannsókn á
umsvifum Samherja
í Namibíu. „Okkar
rannsókn þarf að geta
staðist ítarlega skoðun í fram-
tíðinni,“ sagði Elisabeth Roscher,
við Fréttablaðið á miðvikudag. Hún
vann hjá norska ríkissaksóknara-
embættinu 2002 til 2011.
Þrjú í fréttum
Fótbolti, pólitík
og mútumál
118
milljarðar króna bættust í eigna-
safn Lífeyrissjóðs verzlunar-
manna á fyrstu níu mánuðum
þessa árs.
68
þúsund krónur verður lægsta far-
gjaldið sem kínverska flugfélagið
Juneyao Air býður milli Sjanghæ
og Keflavíkur.
71,4%
þeirra sem greiddu atkvæði felldu
kjarasamning sem Blaðamanna-
félag Íslands hafði gert við Samtök
atvinnulífsins.
100
þúsund Kínverjar hafa heimsótt
Ísland á síðastliðnum tólf mán-
uðum sem er aukning um
14 prósent frá því í fyrra.
48,6%
barna eru skráð í þjóðkirkjuna við
fæðingu samkvæmt tölum frá
Þjóðskrá. Árið 2003 var hlutfallið
83 prósent.
TÖLUR VIKUNNAR 24.11.2019 TIL 30.11.2019
fiat.is
UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
MILLJÓN KRÓNA AFSLÁTTUR
FIAT TIPO STATION
BLACK FRIDAY TILBOÐ
AÐEINS 3 BÍLAR Í BOÐI
Milljón króna afsláttur (30% afsláttur) á Fiat
Tipo Station. 5 ára ábyrgð.
TILBOÐSVERÐ: 2.290.000 KR.
FULLT VERÐ: 3.290.000 KR.
ÁRA5ÁBYRGÐ
K JARAMÁL „Okkur er sagt upp á
þeim forsendum að kyrrsetning
MAX-þotanna hafi neikvæð áhrif
á rekstur Icelandair, stuttu seinna
er tilkynnt um 7,5 milljarða króna
hagnað. Þetta er sárt,“ segir fyrrver-
andi flugmaður hjá Icelandair.
Fréttablaðið hitti flugmenn sem
eru úr hópi þeirra 87 sem var sagt
upp 25. september síðastliðinn. Þeir
segja kergju í hópnum en að það
myndi skaða atvinnumöguleika til
frambúðar ef þeir stigju fram undir
nafni, en fram kom í tilkynningu frá
Icelandair á sínum tíma að vonast sé
til að ráða þá sem flesta aftur næsta
vor.
„Við skildum það í sumar þegar
við vorum færð niður í 50 prósent
starf frá desember til apríl. Við erum
tryggir starfsmenn og viljum ekki
gera neitt annað,“ segir einn flug-
mannanna. Frá því að þeim var sagt
upp hafa þeir haft mikinn tíma til
að velta stöðu sinni fyrir sér. „Í stað
okkar er Icelandair að leigja full-
mannaðar vélar að utan og er að fjár-
festa í flugfélagi á Grænhöfðaeyjum.“
Örnólfur Jónsson, formaður
Félags íslenskra atvinnuflugmanna,
segist vilja sjá flugmennina aftur í
fullu starfi en staðreyndin sé sú að
forsendur hafi gjörbreyst.
„Þegar Icelandair gekk frá því var
gert ráð fyrir að MAX 8-vélarnar
væru að komast í gagnið á fjórða
ársfjórðungi. Það var gert ráð fyrir
fimm nýjum vélum frá Boeing í vor
sem koma ekki,“ segir Örnólfur.
Varðandi samninginn um 50 pró-
sent starf frá desember segir Örn-
ólfur að honum hafi verið sagt upp
samhliða. „Þegar Icelandair stendur
frammi fyrir því að þurfa að segja
upp miklu fleira fólki en gert var ráð
fyrir þá var þeim samningi sagt upp
með sama þriggja mánaða fyrirvar-
anum.“
Umfangið sé mun minna en gert
var ráð fyrir og þar af leiðandi sé
minni þörf á mannskap. Það eigi
eftir að koma í ljós hvernig umfangið
verður næsta sumar. Alls eru 800
flugmenn í FÍA, þarf af eru rúmlega
450 starfandi hjá Icelandair. Örnólf-
ur segir að í vetur séu 130 flugmenn
sem störfuðu hjá Icelandair í sumar
ekki með vinnu í vetur.
Ekki hafa fengist viðbrögð frá
Ice landair þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir. Í nýlegri tilkynningu frá
félaginu segir að stefnt sé að því að
taka MAX-þoturnar aftur í gagnið í
mars á næsta ári. arib@frettabladid.is
Fyrrverandi flugmenn gramir
Kergja er meðal flugmanna sem sagt var upp hjá Icelandair í kjölfar kyrrsetningar Boeing 737 MAX
8-þotanna. 130 flugmenn sem störfuðu hjá Icelandair síðastliðið sumar eru ekki við störf þar í vetur.
Boeing 737 MAX 8-þotur Icelandair voru kyrrsettar í mars á þessu ári. Stefnt er að því að þeim verði flogið á ný í mars á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Það var gert ráð
fyrir fimm nýjum
vélum frá Boeing í vor sem
koma ekki.
Örnólfur Jónsson, formaður FÍA
3 0 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
3
0
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
6
0
-F
C
F
4
2
4
6
0
-F
B
B
8
2
4
6
0
-F
A
7
C
2
4
6
0
-F
9
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
4
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K