Fréttablaðið - 30.11.2019, Qupperneq 10
• Innréttingar frá JKE Danmörku
• Boðið er upp á þrjár gerðir innréttinga
• Innanhússhönnun M/STUDIO Reykjavík
• Steinborðplötur
• Bílskúrar fylgja ákveðnum íbúðum
• Tvö baðherbergi
• Þaksvalir/þakgarðar með
einstöku útsýni
• Lofthæð 280 cm
• Gólfsíðir VELFAC-gluggar
• Miele-tæki
• Free@home
• Lokaður og skjólgóður garður
• Bílastæði í bílakjallara
• Hægt er að kaupa ákveðnar íbúðir
tilbúnar til innréttingar
• Rafmagn í gluggatjöldum
• Myndavélardyrasími sem tengist
við snjallsíma
• Álklætt og einangrað að utan
• Aukin hljóðvist
• Rafmagnshönnun og innfelld lýsing
hússins hönnuð af Lúmex
• Allar íbúðir með LED-lýsingu
• Rafbílaheimtaug í bílakjallara
1 0 2 H L Í Ð A R E N D I
Einstök hönnun í hjarta Reykjavíkur
Skráið ykkur í forsölu á
www.102hlidarendi.is
A R N A R H L Í Ð 2
Glæsilegar og mjög vel staðsettar íbúðir í byggingu við Arnarhlíð 2 í nýju
póstnúmeri, 102, við rætur Öskjuhlíðar. Íbúðunum fylgir stæði í bílakjallara,
lokaður og mjög skjólgóður garður ásamt þaksvölum með stórbrotnu
útsýni. Lokið verður við að steypa upp allt húsið í desember 2019.
Íbúðirnar eru 2-4 herbergja, á bilinu 74 – 204 fermetrar.
FORSALA
SVEITARSTJÓRNIR Fasteignagjöld
verða lækkuð í Kópavogi árið 2020,
og einnig bæði fráveitugjald og
sorphirðugjald. Þetta kemur fram
í fjárhagsáætlun sem Ármann Kr.
Ólafsson mælti fyrir á þriðjudag á
fundi bæjarstjórnar Kópavogs.
Áætlunin var samþykkt af öllum
11 bæjarfulltrúum og er þetta
fimmta árið í röð sem hún er unnin
í samvinnu allra f lokka. Fimm
flokkar eiga fulltrúa í bæjarstjórn
Kópavogs.
Fasteignaskattar á íbúðarhús-
næði lækka úr 0,22 prósentum í
0,215 og atvinnuhúsnæði úr 1,5
prósentum í 1,49. Þá verða tekju-
viðmið afslátta einnig hækkuð.
Skattar á opinbert húsnæði haldast
þó óbreyttir. Fráveitugjaldið lækkar
úr 0,105 prósentum í 0,09 og sorp-
hirðugjaldið úr 36.800 krónum í
34.000. Ákveðið er að halda útsvar-
inu óbreyttu í 14,48 prósentum.
Í Hafnarfirði urðu meiri deilur
um fjárhagsáætlun og þá sérstak-
lega að halda útsvarsprósentunni
í 14,48 prósentum. Samfylkingin
lagði til að útsvar yrði hækkað í
hámarkið, 14,52 prósent, og undir
það tóku Sigurður Þ. Ragnarsson,
fulltrúi Miðf lokks, og Guðlaug
Kristjánsdóttir, fulltrúi Bæjarlista,
á bæjarstjórnarfundi á miðvikudag.
Adda María Jóhannsdóttir, oddviti
Samfylkingar, bókaði að auk þess að
halda útsvarinu óbreyttu sé verið að
hækka gjaldskrár á tekjulága hópa,
langt umfram tilmæli Sambands
íslenskra sveitarfélaga. Ágúst Bjarni
Garðarsson, fulltrúi Framsóknar-
flokks, sagði að meirihlutinn hefði
það markmið að halda gjaldskrám
þeim lægstu á höfuðborgarsvæðinu.
Vinna við gerð fjárhagsáætlana
stendur nú yfir í f leiri sveitarfélög-
um, svo sem Akureyrarbæ, Reykja-
nesbæ og Árborg. – khg
Spekt í Kópavogi en
deilur í Hafnarfirði
3 0 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8
REYKJAVÍK „Maður getur tekið við
ýmsu í pólitík en það er ekki hægt
að láta það yfir sig ganga að verið
sé að rýra mannorð manns fyrir
framan alla og koma fram með
ósannindi,“ segir Aron Leví Beck,
borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.
Hann er nú að fara yfir það með
lögmanni sínum hvort hann muni
stefna Vigdísi Hauksdóttur, odd-
vita Miðf lokksins í Reykjavík,
fyrir meiðyrði vegna ummæla sem
hún lét falla um Aron Leví á fundi
borgarstjórnar 19. nóvember síðast-
liðinn.
Líkt og Fréttablaðið greindi frá
í gær sendi lögmaður Arons Leví
bréf á Vigdísi í síðustu viku þar sem
henni var gefinn frestur á að biðjast
afsökunar og koma með yfirlýsingu
um bætta hegðun.
Vigdís ætlar ekki að verða við því.
„See you in court! Þetta er þannig
mál,“ segir Vigdís.
Hann segist ekki ætla að taka
ummælum hennar þegjandi, en vilji
frekar gera það í gegnum lögmann
og dómstóla en með upphrópunum.
„Ég get ekki verið að leggjast niður
á hennar plan. Ég er ekki á leiðinni
með hnúajárn í einhvern drullupoll
með Vigdísi í einhverju svona dóti.
Það er vonlaust að leggjast svona
lágt.“
Aron Leví þvertekur fyrir að hafa
staðið í þeirri spillingu sem Vigdís
sakar hann um í kringum fyrir-
hugað verkefni ALDIN Biodome
við Stekkjarbakka. Sem nemandi
í skipulagsfræðum tók hann þátt í
rannsókn á nýtingarmöguleikum
affallsvatns úr Laugardalslaug við
verkefnið. Vill Vigdís meina að
hann vinni að því að koma því í
gegnum kerfið, til þess sé hann í
stjórnmálum. Aron segir að hann
hafi alltaf vikið af fundum þegar
málið var til umfjöllunar einmitt
til að koma í veg fyrir tortryggni.
„Hvar á að draga línuna? Eru
bara engar línur í pólitík?“ spyr
Aron Leví. „Hún er að draga mína
persónu þarna inn án þess að hafa
nokkuð fyrir sér. Hún er á atkvæða-
veiðum, er að sækja í fólk sem er
reitt út í kerfið, það er bara popúl-
ismi.“
Telur hann að Vigdís sé með sig á
heilanum, en hún hefur endurtekið
málflutning sinn í útvarpsviðtölum
á Útvarpi Sögu og á Bylgjunni.
„Henni er skítsama um borgarbúa.
Hún vill bara pönkast í stjórn-
sýslunni. Hún var með Dag B. Egg-
ertsson á heilanum og núna er hún
komin með mig á heilann. Einhvers
staðar hljóta að vera einhver mörk á
vitleysunni.“ arib@frettabladid.is
Skoðar hvort
hann muni
stefna Vigdísi
Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar er nú að fara yfir
það með lögmanni sínum hvort hann muni stefna
oddvita Miðflokksins fyrir meiðyrði. Segir hana
reyna að höfða til kjósenda sem er reitt út í kerfið.
Lögmaður Arons Levís sendi kröfubréf á Vigdísi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
3
0
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
6
1
-2
4
7
4
2
4
6
1
-2
3
3
8
2
4
6
1
-2
1
F
C
2
4
6
1
-2
0
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
1
4
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K