Fréttablaðið - 30.11.2019, Blaðsíða 22
Gunnar
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is,
MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Fáránleiki
núverandi
regluverks
hefur
kristallast í
máli í
kringum
innflutning,
viðskipta-
hindranir
og tolla á
túlípönum.
Davíð
Stefánsson
david@frettabladid.is
PREN
TU
N
.IS
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
PREN
TU
N
.IS
TARTALETTUR
Íslenskar hátíðar
................................................
Með atkvæðagreiðslu í síðasta mánuði bönn-uðu nemendur Háskólans í Oxford lófatak. Í stað þess að gestir klappi á samkomum
skólans er þess nú óskað að þeir hefji hendur til himins
og hristi þær til, en slíkt látbragð er gjarnan kallað
„djass-hendur“. Tilgangur bannsins er að forðast það
að hávaðinn sem myndast þegar lófum er klappað
saman valdi viðkvæmum kvíða.
Orðið „snjókorn“ hefur öðlast nýja merkingu í seinni
tíð. Er það gjarnan notað niðrandi um ungt fólk sem
sumum þykir sjálfhverft, viðkvæmt og móðgunar-
gjarnt. Hugmyndin er ekki gripin úr lausu lofti. Bresk
rannsókn leiddi í ljós að í níutíu prósentum breskra
háskóla hefði stúdentaráðum tekist að hefta tjáningar-
frelsið með því að banna ákveðna fyrirlesara, sérstaka
hegðun, klúbba, popplög, brandara og athugasemdir
svo að engum þurfti að líða illa, utangátta eða heyra
eitthvað ljótt. „Verndarsvæði“ hafa sprottið upp innan
háskóla þar sem boðið er upp á róandi tónlist, faðm-
lög, litabækur, leir og myndbönd af hvolpum.
Það er þó ekki aðeins unga fólkið sem leitast við að
vopnvæða eigin viðkvæmni í baráttunni um að ná
sínu fram.
Nýverið komst upp um mútugreiðslur sjávarút-
vegsfyrirtækisins Samherja í Namibíu. Þótti ýmsum
afhjúpunin ósvífnari en glæpurinn. Til að vernda
fórnarlömb umræðunnar kröfðust stórlaxar landsins,
allt frá sægreifum til ráðherra, þess að aðgát yrði höfð í
nærveru sálar. „Þessir menn eiga börn,“ sagði Gunn-
ar Bragi Sveins son. „Árásir á starfsmenn Samherja,“
sagði Þorsteinn Már Baldvinsson. „Við eigum ekki að
vera að hlusta á neikvæðar fréttir um félagið,“ sagði
nýr forstjóri Samherja. Sjávarútvegsráðherra hringdi
í gamla forstjórann til að spyrjast fyrir um hvernig
honum liði. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, mætti í Silfur Egils með móðgunargirni sem
framlag sitt til rökræðna um málið. Bjarni Benedikts-
son strunsaði sár út úr þingsal þegar málið var rætt á
Alþingi – hugmynd sem hann kann að hafa fengið frá
hinum virta háskóla University College London sem
tilkynnti nýverið um að nemendum í námskeiðinu
„fornleifafræði styrjalda“ sé nú frjálst að ganga út úr
tíma valdi námsefnið þeim uppnámi.
Úthverfi sálarinnar
Ekki eru allir á eitt sáttir við mátt móðgunargirninnar.
„Við megum ekki leyfa háskólum að breytast í einhæft,
bragðdauft úthverfi sálarinnar þar sem það eina sem
er á matseðlinum er andlegur hafragrautur,“ sagði
heiðursrektor Oxford háskóla um ritskoðunartilburði
innan skólans.
Snjókorn í íslenskri valdastétt krefjast „verndar-
svæðis“. Hvort sem er á götum Garðabæjar eða sölum
Alþingis telja þau sig hafa rétt á að heyra ekkert ljótt.
Afnemum RÚV, tökum Helga Seljan af dagskrá, setjum
lögbann á Stundina, stöðvum styrki til fjölmiðla uns
ekkert er eftir nema veðurfréttir, Mogginn og blað
Sjálfstæðiskvenna. Því það er heilagur réttur ríkustu
manna landsins að sjá sveltandi börn í Afríku aðeins
á sparibaukum Hjálparstofnunar kirkjunnar er þeir
tæma vasana af klinki en ekki í Sjónvarpsfréttum yfir
kvöldmatnum eða í eigin martröðum. Það er réttur
þeirra að fá skjól gegn orðum sem misbjóða; vinalán,
veiðigjöld, skattaskjól, auðlindaákvæði. Því þeir eru
fórnarlömb; fórnarlömb eigin ágætis, eigin yfirburða.
Það er ekki þeim að kenna að þeir fæddust hvorki
í Namibíu né Efra-Breiðholti. Þeir skulu faðmaðir,
hylltir – ekki með lófataki sem styggt gæti viðkvæma
lund heldur með „djass-höndum“ – því það sem við hin
í einfeldni okkar skiljum ekki er að ef þeir væru ekki
til staðar til að mylja ofan í okkur brauðmola, hvar
myndum við þá fá brauðmola?
Það er því öllum fyrir bestu að við hreiðrum um
okkur í hlýju úthverfi sálarinnar, litum, leirum,
föðmumst og horfum á hvolpamyndbönd. Má bjóða
þér hafragraut? Næst verða sagðar veðurfréttir.
Verndarsvæði fyrir valdafólk
Fréttablaðið hefur flutt fréttir á síðustu mán-uðum af vonlítilli baráttu blómabúða í landinu gegn gríðarháum blómatollum. Alls skoruðu 25 blómabúðir meðal annars á stjórnvöld að lækka blómatolla. Fáránleiki núverandi regluverks
hefur kristallast í máli í kringum innflutning, viðskipta-
hindranir og tolla á túlípönum.
Á árunum 2016 og 2017 var hrint í framkvæmd
áformum um niðurfellingu tolla á öllum vörum nema
matvörum. Tollar á blóm urðu af einhverjum ástæðum
eftir, þótt blóm verði seint flokkuð sem matvara. Ofur-
tollar liggja í annars vegar 30 prósenta verðtolli og hins
vegar 95 króna stykkjatolli sem leggst á hvern afskorinn
túlípana. Tíu túlípana búnt, sem kostar 600 krónur í
innkaupum, fær á sig 1.130 krónur í toll, þannig að inn-
kaupsverðið þrefaldast hér um bil. Búnt af innfluttum
túlípönum kostar nú 3.000 krónur út úr búð, saman-
borið við um 1.000 krónur í öðrum norrænum löndum.
Innlend framleiðsla á afskornum blómum annar ekki
eftirspurn. Því gefa íslenskir kommissarar náðarsam-
legast heimildir tvisvar á ári til innflutnings tollkvóta á
lægri tollum. En það hefur ekki dugað til.
Kerfið sem hefur verið komið á til að meta hvort
skortur sé á vörum, þannig að lækka megi tolla á þeim,
er einkennilegt. Opinber nefnd spyr innlenda fram-
leiðendur og dreifingaraðila hvort þeir eigi eitthvað til
af vörunni. Svör þeirra eru tekin góð og gild. Svo virðist
sem ekki sé farið til dæmis í verslanir og kannað hvað
sé til af vörunni og á hvaða verði. Óralangt er á milli
nýlegrar niðurstöðu opinberu kommissaranna, að ekki
sé skortur á túlípönum, og þess veruleika sem allir neyt-
endur sjá í búðunum.
Ýmsum kann að finnast þetta blómatollamál ómerki-
legt. Eru blóm ekki óttalegur óþarfi og lúxus? Hömlur
og skattar geta raunar gert tilteknar vörur að lúxus. Á
Norðurlöndum eru blóm ekki talin munaðarvara. Fólk
grípur með sér búnt úr búðinni án mikillar umhugsunar
til að gleðja einhvern nákominn eða prýða heimilið. En
hér virðist sú skoðun samt eiga einhverju fylgi að fagna
að blóm eigi að selja í svipuðu viðskiptaumhverfi og
ávexti þegar þeir fengust bara fyrir jólin.
Svo má spyrja hvern sé verið að vernda með tollunum.
Íslenskir túlípanar fást í um 4-5 mánuði á ári. Er ekki
hægt að hafa innflutning frjálsan afganginn af árinu?
Í grunninn lýtur þetta mál að sjálfsagðri neytenda-
vernd og sanngjörnum kröfum gegn bjánalegum við-
skiptahindrunum. Það er hvorki vit né sanngirni í því
að láta íslenska neytendur borga þrisvar sinnum meira
fyrir einhverja vöru en tíðkast í nágrannalöndunum.
Hvar eru nú stjórnmálamennirnir sem kjörnir eru til að
gæta hagsmuna almennings en ekki til að fórna þeim í
hendur kommissara? Eigum við virkilega að trúa því að
þingmenn og ráðherrar telji hag almennings best borgið
með þessu móti?
Koma svo!
Ofurtollaðir
túlípanar
3 0 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
3
0
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
6
0
-D
F
5
4
2
4
6
0
-D
E
1
8
2
4
6
0
-D
C
D
C
2
4
6
0
-D
B
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
4
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K