Fréttablaðið - 30.11.2019, Síða 26
OLÍS-DEILDINNI
NÆSTU LEIKIR Í
KARLAR
KONUR
LAU. 30. NÓVEMBER
1
6
.0
0
LAU. 30. NÓVEMBER
1
6
.3
0
LAU. 30. NÓVEMBER
1
8
.1
5
LAU. 30. NÓVEMBER
1
3
.3
0
LAU. 30. NÓVEMBER
1
4
.0
0
SUN. 1. DESEMBER
1
7
.0
0
MÁN. 2. DESEMBER
1
9
.3
0
LAU. 30. NÓVEMBER
1
6
.0
0
KOMDU Á VÖLLINN
#O
lís
de
ild
in Tímasetningar geta breyst vegna veðurs. Sjá nánar á olis.is/deildin
HNEFALEIKAR Stefnt er að því að
halda Norðurlandameistaramótið
í hnefaleikum hér á landi á næsta
ári en Hnefaleikasamband Íslands
hefur óskað eftir því við Reykja-
nesbæ að fá aðstöðu til að halda
mótið þar. Verið er að leggja drög að
keppnisfyrirkomulagi og kostnaði,
en kostnaður vegna mótsins mun
lenda á Hnefaleikasambandinu.
Þetta verður í fyrsta sinn sem keppt
verður í þrjá daga og mun Ísland fá
fast sæti á mótinu. „Við höfum lengi
barist fyrir því að fá okkar föstu
sæti á mótunum og viljum því gera
eins vel og hægt er nú þegar okkur
er gefið tækifæri til að festa okkur í
sessi,“ segir í fundargerð íþrótta- og
tómstundaráðs Reykjanesbæjar.
Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi
þátttakenda keppendur, þjálfarar,
dómarar og stjórnendur verði á
bilinu 150-200 manns.
Ásdís Rósa Gunnarsdóttir, for-
maður Hnefaleikasambandsins,
segir að alveg frá því að sambandið
var tekið inn í ÍSÍ árið 2015 hafi
verið vilji til að fá mótið hingað til
lands. „Við létum vita að við vild-
um halda mót en þriðja deginum
yrði bætt við af því að við vildum
ekki halda mótið með öllum þeim
kostnaði sem fylgir án þess að vera
með fast sæti fyrir okkar kepp-
endur. Þannig að niðurstaðan var
að halda þriggja daga mót og prófa.
Við höfum verið að senda krakka
að keppa, sterka keppendur, en
þau hafa þurft að færa sig upp eða
niður um þyngdarf lokk vegna
plássleysis á mótinu. Núna fáum við
tækifæri til að sýna hvað í okkur
býr.“ Aðeins er pláss fyrir fimm í
hverjum f lokki og hver keppandi
má aðeins keppa einu sinni á dag.
Það er því setið um hvert sæti sem
er ekki fast í hendi. Mótið er próf-
steinn á það hvort keppendur ætli
sér lengra í íþróttinni. „Þetta er
fyrsta skrefið.“
Ásdís segir að um 1.100 manns
æfi hnefaleika hér á landi þó það
séu ekki allir að keppa. „Við erum
að sjá mikið stökk í barna og ungl-
ingastarfi. Við erum með svokallaða
diplóma-hnefaleika þar sem snert-
ingar eru léttari en meiri áhersla er
lögð á tækni og framkomu. Þegar
krakkarnir útskrifast þaðan teljast
þau hæf að fara í ólympíska hnefa-
leika ef þau vilja. Einn af okkar bestu
keppendum kemur úr þessu starfi.“
Umsvifin jukust töluvert þegar
Hnefaleikasambandið varð sér-
samband innan ÍSÍ og er yfirleitt
mót einu sinni í mánuði til að kepp-
endur öðlist keppnisreynslu. „Við
höfum verið að senda krakka út þar
sem mótherjinn hefur um 50 bar-
daga undir belti. Það er meira en við
höfum náð.“
Læknar erfiðir
Ásdís segir að fordómar í garð hnefa-
leika fari minnkandi. Þó séu alltaf
einhverjir sem erfitt sé að sann-
færa. „Ég finn það eftir að barna- og
unglingastarfið jókst að umtalið og
sýnin á íþróttina hefur batnað. Þetta
er fjölskylduíþrótt en við erum allt-
af í vandræðum með læknaálitið.
Það eru margir læknar sem líta
ekki á þetta sem íþrótt og þar af
leiðandi neita þeir að sinna okkar
keppendum – sem er bæði vont og
svolítið spes. Við gerum allt til að
tryggja öryggi okkar keppenda en
nokkrir læknar neita að taka þátt.
Sem betur fer erum við með aðra í
okkar liði sem styðja við íþróttina.
Almenningsálitið hefur alltaf verið
svolítið slæmt þannig að við gerum
allt til að tryggja öryggi keppenda
og iðkenda. Við göngum lengra í
því en allar aðrar íþróttir ætla ég að
leyfa mér að fullyrða. Af því að við
þurfum þess.
Þetta er eins og að vera kona – þá
þarf að gera aðeins meira. Enginn
íþrótt er hættulaus, ekki fótbolti
eða körfubolti eða aðrar íþróttir.
En það er hægt að fyrirbyggja fullt
og það er gert með ítarlegum reglum
og læknisskoðunum í kringum öll
mót.“ benediktboas@frettabladid.is
Dæmi um að læknar hunsi boxara
Hnefaleikasamband Íslands hefur óskað eftir því við Reykjanesbæ að fá aðstöðu til að halda Norðurlandameistaramótið í
ólympískum hnefaleikum í mars á næsta ári. Formaðurinn segir mikla grósku vera í hnefaleikum og fordómar fari minnkandi.
Um 1.100 manns æfa hnefaleika á Íslandi, þó ekki allir séu að keppa í íþróttinni. Barna- og unglingastarf blómstrar og segir formaðurinn að íþróttin
sé afar fjölskylduvæn. Stefnt er að því að Norðurlandamótið muni fara fram hér á landi á næsta ári. MYNDIR/GUNNAR JÓNATANSSON
OÞað eru margir
læknar sem líta
ekki á þetta sem íþrótt.
Ásdís Rósa
Gunnarsdóttir,
formaður
Hnefaleikasam-
bandsins
3 0 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
3
0
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
6
1
-0
6
D
4
2
4
6
1
-0
5
9
8
2
4
6
1
-0
4
5
C
2
4
6
1
-0
3
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
4
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K