Fréttablaðið - 30.11.2019, Síða 30
Leikskólabörn þekkja vel álfana Þorra og Þuru. Trausta og fjöruga vini sem lenda stundum af klaufaskap í alls kyns ógöngum sem leiðir þá
í ævintýri. Álfarnir hafa heimsótt
þúsundir leikskólabarna með far
andsýningum síðan árið 2008 og
slógu rækilega í gegn með jólaþátt
unum Týndu jólin sem sýndir voru
á RÚV um síðustu jól.
Leikhópurinn Miðnætti stendur
að sýningunni Jólaævintýri Þorra
og Þuru, í hópnum eru Agnes Wild,
Sigrún Harðardóttir og Eva Björg
Harðardóttir.
„Við erum að sýna alla sunnu
daga á aðventunni fram að jólum
í Tjarnarbíói,“ segir Agnes Wild,
handritshöfundur og leikari. „Það
sem einkennir álfana Þorra og Þuru
er dæmalaus vinátta og væntum
þykja. Þau eru bestu vinir og eins
og vinir eiga þau það til að rífast
og vera ósátt. Þau finna alltaf kær
leikann á endanum. Í þessari sögu
eru Þorri og Þura að undirbúa jólin
en þurfa að gæta jólakristals fyrir
afa Þorra. Jólakristallinn er upp
spretta allrar jólagleði í heiminum
og skyldi slökkna á honum þá er
úti um gleðina og jólin gleymast.
Það er einmitt það sem gerist,
kristallinn bilar og hættir að lýsa.
Þura og Þorri þurfa því að leggja í
leiðangur til að bjarga jólunum og
hitta ýmsar furðuverur. Þau lenda
í hremmingum en auðvitað endar
þetta allt saman vel,“ segir Agnes
sem segir gefandi og skemmtilegt
að leika fyrir yngstu leikhúsgestina.
„Þegar þeim finnst eitthvað fyndið
þá hlæja þau innilega og þegar
þeim finnst eitthvað sorglegt þá
finna þau til sterkrar hluttekning
ar, það er dásamlegt að leika fyrir
þau. Reyndar finnst börnum allt
að tólf ára gaman að ævintýrum
Þorra og Þuru, ég held ég gæti mælt
með sýningunni fyrir börn niður í
tveggja ára aldur og upp í tólf ára,“
segir Agnes.
Fr umsý ning á Jólaævintý r i
Þorra og Þuru verður í Tjarnarbíói
á sunnudaginn. – kbg
ÞEGAR ÞEIM FINNST EITT-
HVAÐ FYNDIÐ ÞÁ HLÆJA
ÞAU INNILEGA.
Bjarga jólunum í Tjarnarbíói
Álfarnir Þorri og Þura lenda í jólaævintýri í Tjarnarbíói alla sunnudaga á aðventunni. Þau lenda í vandræðum og
þurfa að leggja mikið á sig til að bjarga jólunum. Það sem einkennir þau er dæmalaus vinátta og væntumþykja.
Einar Kárason les upp úr nýrri ævisögu
sem hann skrifaði. Með sigg á sálinni:
Saga Friðriks Þórs Friðrikssonar.
Meira á frettabladid.is
Upplestur: Með sigg á sálinni
Leikskólabörn þekkja vel álfana Þorra og Þuru enda hafa þau farið í heimsókn víða með farandsýningu sína. Jólavinirnir lenda í jólaævintýri alla sunnudaga á aðventunni MYND: EYÞÓR ÁRNASON
Hver er lang lífasta mýtan um kyn líf? Hvað er gott kyn líf? Hvað tekur kynlíf langan
tíma og hversu al gengt er að fá full
nægingu? Hvað er kyn líf yfirhöfuð?
Kyn fræðingar varpa ljósi á kyn líf í
sam fé laginu í dag og velta fyrir sér
þeim mýtum og tabúum sem því
fylgja. Fólk hugsar um kyn líf á hverj
um degi. Þetta virðist vera niður
staða hverrar einustu rann sóknar
sem hefur reynt að komast að því
hversu oft við mann eskjurnar hugs
um um kyn líf. Þessar rann sóknir
greinir reyndar á um hvort það líði
sjö sekúndur eða sjö klukku tímar
milli hugsananna en ekki virðist
fara á milli málanna að kyn líf er
ofar lega í hugum íbúa jarðar dag
hvern.
Með þessum hugsunum hafa
myndast alls kyns ritúöl, tabú,
mýtur og misskilningur um kyn líf.
Um allan heim hafa verið skrifaðar
bækur, textar og ljóð um kyn líf og
virðist mann fólkið aldrei þreytast
á að tala um þetta brölt sitt.
Kyn líf hefur auðvitað fylgt mann
inum frá örófi alda en það sem virð
ist hins vegar gleymast er að líkt og
menningin hefur kyn líf þróast á
mis munandi hátt á milli sam fé
laga. Það gæti til dæmis komið ein
hverjum á ó vart að komast að því að
vin sælasta kyn lífs stelling Vestur
landanna, trú boða stellingin, var
með öllu ó þekkt í á kveðnum sam
fé lögum fyrir ör fáum ára tugum en
heimildir herma að konum hafi þótt
stellingin með öllu ó á sættan leg.
Það er því ljóst að ekki hugsa allir
um það sama þegar þeir hugsa um
kyn líf.
Frettabladid.is ræddi stöðu kyn
lífs við Siggu Dögg kynfræðing,
Áslaugu Kristjánsdóttur kynlífsráð
gjafa og Krister Blæ Jónsson, vara
formann Ástráðs, kynfræðslufélags
læknanema. Þau voru sammála um
að ótal mýtur lifa enn góðu lífi í
svefnherbergjum Íslendinga og að
löngu tímabært væri að uppræta
þær.
Fréttaskýringin verður birt á
frettabladid.is á sunnudag. Sam
starfssamningur Fréttablaðsins og
visir.is rennur út um helgina,nánar
tiltekið þann 1. desember næstkom
andi og birtist skýringin því ekki á
visir. is. – kdi
Hvað hugsum við þegar við hugsum um kyn líf?
Sigga Dögg er á meðal viðmælenda í fréttaskýringu sem birtist á sunnudag.
3 0 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN
3
0
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
6
1
-2
E
5
4
2
4
6
1
-2
D
1
8
2
4
6
1
-2
B
D
C
2
4
6
1
-2
A
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
4
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K