Fréttablaðið - 30.11.2019, Page 48

Fréttablaðið - 30.11.2019, Page 48
Þorláksmessa 23. desember opið kl. 08:00–18:00 aðfangadagur 24. desember opið kl. 10:00–12:00 jóladagur 25. desember lokað annar í jólum 26. desember lokað föstudagur 27. desember opið kl. 08:00–16:00 mánudagur 30. desember opið kl. 08:00–16:00 gamlársdagur 31. desember lokað nýársdagur 1. janúar lokað fimmtudagur 2. janúar lokað föstudagur 3. janúar opið kl. 08:00–16:00 Aðalfundur Hjálparstarfs kirkjunnar var haldinn í Grensáskirkju laugardaginn 21. september 2019. Starfsskýrslu stofnunarinnar er að finna á vefsíðunni www.help.is undir liðnum um okkur – Ársskýrslur. Í stjórn Hjálparstarfs kirkjunnar starfsárið 2019–2020 eru: Gunnar Sigurðsson formaður, Hörður Jóhannesson og Salóme Huld Garðarsdóttir. Varamenn: Vigdís Valgerður Pálsdóttir og Benedikt Vilhjálmsson. Vakin er athygli á því að Hjálparstarf kirkjunnar hefur hætt framleiðslu útikerta. Friðarljós verða því ekki til sölu í kirkjugörðum yfir hátíðirnar. Framkvæmdastjóri: Bjarni Gíslason Margt smátt …, 4. tbl. 31. árgangur 2019 Ábyrgðarmaður: Kristín Ólafsdóttir Prentvinnsla: Umbrot: Pipar \TBWA Prentun: Ísafoldarprentsmiðja Ljósmyndir: Forsíðumynd: Þorkell Þorkelsson: Aukið aðgengi að vatni á verkefnasvæði Hjálparstarfs kirkjunnar í Kebri Beyah í Eþíópíu er tryggt með því að byggja vatnsþrær fyrir regnvatn. Aðrar myndir: Þorkell Þorkelsson og Hjálparstarf kirkjunnar. Afgreiðslutími á skrifstofu Hjálparstarfs kirkjunnar, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík, (gengið er inn í kirkjuna að neðanverðu), um jól og áramót 2019–2020 er sem hér segir: Hjálparstarf kirkjunnar leggur áherslu á að vinna að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna númer 1, 2, 3, 4, 5, 6, 10 og 17. Vandamálið í heiminum í dag er ekki að fólk sé ekki góðhjartað. Flestar manneskjur eru með gott hjarta og vilja öðrum vel. Langflestir geta sett sig í spor annarra og sýna samkennd og skilning á erfiðri stöðu þeirra sem eiga undir högg að sækja á einhvern hátt. Vandamálið hjá okkur flestum liggur í því að það er svo stórt skref, að því er virðist, að gera eitthvað í málunum. Leggja eitthvað af mörkum. Leggja eitthvað á sig, sleppa einhverju fyrir sjálfan sig og nýta það í staðinn fyrir náungann. Svari hver fyrir sig hvort þetta sé rétt: Hvenær neitaði ég mér um eitthvað til að vernda umhverfið? Hætti við flugferð til dæmis? Hvenær sleppti ég síðast að endurnýja símann minn eða aðrar græjur nútímans sem enn voru í góðu lagi og gaf peninginn öðrum til framdráttar? Svona getum við sjálfsagt öll tekið dæmi sem passa við okkur. „Elska skaltu náunga þinn eins og sjálfan þig“ segir í góðri bók. Sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna sem eru leiðarljós í starfi Hjálparstarfs kirkjunnar snúast í raun um það sama, að taka ábyrgð á sjálfum sér, náunganum og sameiginlega ábyrgð á jörðinni sem við búum á. Við hjá Hjálparstarfi kirkjunnar getum reyndar ekki kvartað. Við njótum ótrúlega mikils stuðnings. Mörg fyrirtæki og stofnanir styrkja starfið. Við sendum þrisvar á ári valgreiðslu í heimabanka landsmanna sem margir greiða. Vel á minnst jólavalgreiðslan bíður þín núna! Fermingarbörn um allt land fá góðar móttökur í árlegri söfnun í lok október eða byrjun nóvember og 2.290 manns sem við köllum Hjálparliða styrkja starfið mánaðarlega. Þetta er frábært og ber að þakka. Elska skaltu náunga þinn eins og sjálfan þig. Það er ekki verið að tala um að hata sjálfan sig, heldur að elskan nái í jafnmiklu mæli til náunga okkar. Ekki bara í orði! Það er áskorunin. Gangi okkur öllum vel með það. Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar. Á borði 2 – Margt smátt ... – Jólablað Hjálparstarfs kirkjunnar 3 0 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :5 6 F B 1 4 4 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 6 1 -7 3 7 4 2 4 6 1 -7 2 3 8 2 4 6 1 -7 0 F C 2 4 6 1 -6 F C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 4 4 s _ 2 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.