Fréttablaðið - 30.11.2019, Qupperneq 48
Þorláksmessa 23. desember opið kl. 08:00–18:00
aðfangadagur 24. desember opið kl. 10:00–12:00
jóladagur 25. desember lokað
annar í jólum 26. desember lokað
föstudagur 27. desember opið kl. 08:00–16:00
mánudagur 30. desember opið kl. 08:00–16:00
gamlársdagur 31. desember lokað
nýársdagur 1. janúar lokað
fimmtudagur 2. janúar lokað
föstudagur 3. janúar opið kl. 08:00–16:00
Aðalfundur Hjálparstarfs kirkjunnar var haldinn í Grensáskirkju laugardaginn 21. september 2019.
Starfsskýrslu stofnunarinnar er að finna á vefsíðunni www.help.is undir liðnum um okkur – Ársskýrslur.
Í stjórn Hjálparstarfs kirkjunnar starfsárið 2019–2020 eru: Gunnar Sigurðsson formaður, Hörður
Jóhannesson og Salóme Huld Garðarsdóttir. Varamenn: Vigdís Valgerður Pálsdóttir og Benedikt Vilhjálmsson.
Vakin er athygli á því að Hjálparstarf kirkjunnar hefur hætt framleiðslu útikerta.
Friðarljós verða því ekki til sölu í kirkjugörðum yfir hátíðirnar.
Framkvæmdastjóri: Bjarni Gíslason
Margt smátt …, 4. tbl. 31. árgangur 2019
Ábyrgðarmaður: Kristín Ólafsdóttir
Prentvinnsla:
Umbrot: Pipar \TBWA
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
Ljósmyndir:
Forsíðumynd: Þorkell Þorkelsson: Aukið aðgengi að vatni á
verkefnasvæði Hjálparstarfs kirkjunnar í Kebri Beyah í Eþíópíu
er tryggt með því að byggja vatnsþrær fyrir regnvatn.
Aðrar myndir: Þorkell Þorkelsson og Hjálparstarf kirkjunnar.
Afgreiðslutími á skrifstofu Hjálparstarfs kirkjunnar,
Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík, (gengið er inn í kirkjuna að
neðanverðu), um jól og áramót 2019–2020 er sem hér segir:
Hjálparstarf kirkjunnar leggur áherslu á að vinna að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna
númer 1, 2, 3, 4, 5, 6, 10 og 17.
Vandamálið í heiminum í dag er ekki að
fólk sé ekki góðhjartað. Flestar
manneskjur eru með gott hjarta og vilja
öðrum vel. Langflestir geta sett sig í
spor annarra og sýna samkennd og
skilning á erfiðri stöðu þeirra sem eiga
undir högg að sækja á einhvern hátt.
Vandamálið hjá okkur flestum liggur í því
að það er svo stórt skref, að því er
virðist, að gera eitthvað í málunum.
Leggja eitthvað af mörkum. Leggja
eitthvað á sig, sleppa einhverju fyrir
sjálfan sig og nýta það í staðinn fyrir
náungann.
Svari hver fyrir sig hvort þetta sé rétt:
Hvenær neitaði ég mér um eitthvað til að
vernda umhverfið? Hætti við flugferð til
dæmis? Hvenær sleppti ég síðast að
endurnýja símann minn eða aðrar
græjur nútímans sem enn voru í góðu
lagi og gaf peninginn öðrum til
framdráttar? Svona getum við sjálfsagt
öll tekið dæmi sem passa við okkur.
„Elska skaltu náunga þinn eins og sjálfan
þig“ segir í góðri bók. Sjálfbærnimarkmið
Sameinuðu þjóðanna sem eru leiðarljós í
starfi Hjálparstarfs kirkjunnar snúast í
raun um það sama, að taka ábyrgð á
sjálfum sér, náunganum og sameiginlega
ábyrgð á jörðinni sem við búum á.
Við hjá Hjálparstarfi kirkjunnar getum
reyndar ekki kvartað. Við njótum
ótrúlega mikils stuðnings. Mörg
fyrirtæki og stofnanir styrkja starfið.
Við sendum þrisvar á ári valgreiðslu í
heimabanka landsmanna sem margir
greiða. Vel á minnst jólavalgreiðslan
bíður þín núna! Fermingarbörn um allt
land fá góðar móttökur í árlegri söfnun í
lok október eða byrjun nóvember og
2.290 manns sem við köllum Hjálparliða
styrkja starfið mánaðarlega. Þetta er
frábært og ber að þakka.
Elska skaltu náunga þinn eins og sjálfan
þig. Það er ekki verið að tala um að hata
sjálfan sig, heldur að elskan nái í
jafnmiklu mæli til náunga okkar. Ekki
bara í orði! Það er áskorunin.
Gangi okkur öllum vel með það.
Bjarni Gíslason,
framkvæmdastjóri
Hjálparstarfs kirkjunnar.
Á borði
2 – Margt smátt ... – Jólablað Hjálparstarfs kirkjunnar
3
0
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
6
1
-7
3
7
4
2
4
6
1
-7
2
3
8
2
4
6
1
-7
0
F
C
2
4
6
1
-6
F
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
4
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K