Fréttablaðið - 30.11.2019, Page 62
Staða yfirsjúkraþjálfara er laus til umsóknar.
Heilsustofnun er endurhæfingarstofnun sem þjónar um
120 dvalargestum á hverjum tíma. Lögð er áhersla á að
veita framúrskarandi heildræna endurhæfingu sem styður
við einkunnarorðin Berum ábyrgð á eigin heilsu.
Viðkomandi þarf að búa yfir faglegum metnaði,
vera skipulagður og með góða hæfni í mannlegum
samskiptum. Reynsla af stjórnun æskileg.
Viðkomandi stýrir daglegum rekstri deildarinnar, tekur
þátt í þverfaglegu teymisstarfi og veitir dvalargestum
sjúkraþjálfun og fræðslu.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. janúar.
Möguleiki er á húsnæði á staðnum. Einnig er starfs–
mannarúta til og frá Olís við Rauðavatn í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veita Anna Margrét Guðmundsdóttir
yfirsjúkraþjálfari, annamargret@heilsustofnun.is og Aldís
Eyjólfsdóttir starfsmannastjóri, aldis@heilsustofnun.is.
Umsóknarfrestur er til 15. desember nk.
Umsóknir með ferilskrá sendist
til starfsmannastjóra
aldis@heilsustofnun.is
w w w.heilsustofnun.is
SJÚKRA- EÐA
HEILSUNUDDARI
YFIRSJÚKRAÞJÁLFARI
Reykjalundur, endurhæfingarmiðstöð SÍBS.
Sími 585 2000 – www.reykjalundur.is
Sjúkraþjálfari
Laus er til umsóknar 100% staða sjúkraþjálfara á verkjasviði
Reykjalundar. Um tímabunda ráðningu er að ræða.
Staðan veitist frá 1. febrúar 2020 til eins árs.
Á Reykjalundi er unnið í þverfaglegum teymum þar sem
áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna
sýn. Krafist er frumkvæðis, sjálfstæðis í vinnubrögðum,
skipulagshæfileika og góðrar hæfni í mannlegum
samskiptum.
Hæfnikröfur:
• Íslenskt starfsleyfi.
• Góð og almenn færni í mannlegum samskiptum
og samvinnu.
• Æskileg er reynsla af teymisstarfi og meðferð einstaklinga
með langvinna verki.
Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi Félags sjúkra-
þjálfara og fjármálaráðherra auk stofnanasamnings Félags
sjúkraþjálfara og Reykjalundar.
Upplýsingar um starfið veitir Ásdís Kristjánsdóttir,
forstöðusjúkraþjálfari í síma 585 2160 eða í gegnum net-
fangið asdiskri@reykjalundur.is og Guðbjörg Gunnarsdóttir
mannauðsstjóri í síma 585 2143 eða í gegnum netfangið
gudbjorg@reykjalundur.is
Umsóknarfrestur er til 15. desember 2019
Umsóknarform og upplýsingar um Reykjalund má finna á
heimasíðu Reykjalundar www.reykjalundur.is
HH Ráðgjöf • Fjarðargata 13 - 15 • 220 Hafnarfjörður • Sími: 561 5900 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Ráðningarþjónusta
Sölu- og
lagerstarf
Sölu- og lagerstarf
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu HH Ráðgjafar
www.hhr.is og eru áhugasamir beðnir um að sækja um starfið þar.
Gróðrarstöðin Lambhagi ehf. óskar eftir að ráða umsjónarmann nýrrar gróðrarstöðvar sem
er í uppbyggingu í Lundi í Mosfellsdal.
Um er að ræða fullt starf til framtíðar og mun viðkomandi hafa umsjón með framleiðslu á
salati í stöðinni.
Starfssvið Hæfniskröfur
• Umsjón og ábyrgð á gróðrarstöð
• Umsjón með starfsfólki gróðrarstöðvar
• Skipulagning daglegra starfa og verkefna
• Almenn störf í gróðrarstöð
• Menntun á sviði garðyrkjufræði, landbúnaðar-
verkfræði eða sambærileg menntun æskileg
• Reynsla af vinnu við lokuð ræktunarkerfi kostur
• Metnaður og frumkvæði í starfi
• Rík ábyrgðakennd, skipulögð vinnubrögð og
góð hæfni í mannlegum samskiptum
Framleiðslustjóri garðyrkjustöðvar
Í Lundi eru tvö lítil hús sem fyrirtækið hefur umráð yfir og mun viðkomandi
starfsmaður eiga möguleika á að hafa búsetu í öðru þeirra ásamt fjölskyldu sinni ef
svo ber undir.
Gróðrarstöðin Lambhagi ehf. var stofnuð árið 1979 og er stærsti framleiðandi og
seljandi á fersku salati og kryddjurtum á Íslandi.
Háskóli Íslands leitar að öflugum leiðtoga fyrir Félagsvísindasvið sem er eitt af fimm
fræðasviðum háskólans. Forseti Félagsvísindasviðs starfar í umboði rektors. Hann er
æðsti yfirmaður og akademískur leiðtogi fræðasviðsins og stjórnar daglegri starfsemi
þess. Með forseta fræðasviðs starfar öflugt teymi stjórnenda og sérfræðinga.
Ráðið verður í starfið til fimm ára og er áætlað að ráða í starfið frá 1. júlí 2020. Á grundvelli laga nr. 85/2008
um opinbera háskóla og reglur sem háskólaráð hefur sett getur rektor ákveðið að framlengja ráðningu forseta
fræðasviðs til fimm ára í senn. Forseti fræðasviðs er ráðinn af rektor að fenginni umsögn sérstakrar nefndar
um ráðninguna.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 6. janúar 2020.
Sækja skal um starfið á starfatorg.is. Með umsókn þarf að fylgja greinargerð um framtíðarsýn
umsækjenda og hvernig hann hyggst vinna samkvæmt stefnu Háskóla Íslands 2016-2021.
Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Við ráðningu í störf við Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ragnhildur Ísaksdóttir, sviðsstjóri starfsmannasviðs Háskóla Íslands,
netfang ragnhildurisaks@hi.is, sími 525-4355.
Háskóli Íslands er alþjóðlegur rannsóknaháskóli og stærsta kennslu-, rannsókna- og
vísindastofnun landsins. Um 1.500 starfsmenn starfa í föstum störfum við skólann
og um 2.200 eru lausráðnir. Nemendur við skólann eru um 13.000. Háskóli Íslands
starfar á fimm fræðasviðum, býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli
landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám í öllum helstu fræðigreinum.
Á Félagsvísindasviði starfa á þriðja hundrað manns að kennslu og rannsóknum.
Vísindafólk sviðsins stundar grunnrannsóknir, hagnýtar rannsóknir og þjónustu-
rannsóknir og lögð er áhersla á fjölbreytta miðlun þekkingar, öflugar
samræður víð íslenskt samfélag og alþjóðlega fræðasamfélagið.
Forseti fræðasviðs ber m.a. ábyrgð á:
• Útfærslu og framkvæmd stefnu Háskóla Íslands
á vettvangi fræðasviðs
• Fjármálum og rekstri fræðasviðs og stofnana
sem undir það heyra
• Gæðum kennslu, rannsókna og þjónustu
• Starfsmannamálum
• Öflugri liðsheild og faglegu samstarfi
• Tengslum við innlenda og erlenda samstarfsaðila
• Stjórnsýslu og stoðþjónustu fræðasviðsins
Umsækjendur skulu hafa:
• Akademískt hæfi sem og þekkingu og reynslu
á háskóla- og/eða rannsóknaumhverfi,
• Leiðtogahæfileika,
• Metnaðarfulla og skýra framtíðarsýn,
• Ríka samskiptahæfni,
• Farsæla reynslu af stjórnun og stefnumótun.
P
ip
ar
\T
BW
A
\
SÍ
A
FORSETI FÉLAGSVÍSINDASVIÐS
4 ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 0 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
3
0
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
4
4
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
6
1
-6
9
9
4
2
4
6
1
-6
8
5
8
2
4
6
1
-6
7
1
C
2
4
6
1
-6
5
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
4
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K