Fréttablaðið - 30.11.2019, Page 68
Festi hf. er eignarhaldsfélag sem í dag rekur fimm rekstrarfélög,
N1, Krónuna, Elko, Bakkann vöruhótel og Festi fasteignir.
Dagleg starfsemi félagsins skiptist annars vegar í rekstur stoð-
þjónustu fyrir rekstrarfélögin og hins vegar í fjárfestingarstarfsemi.2017 - 2020
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Menntunar og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði fjármála eða viðskipta
sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af stjórnun fjármála er skilyrði
• Sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun
• Löggiltur endurskoðandi er kostur
Ábyrgðarsvið:
• Reikningshald
• Gagnavinnsla og greiningar
• Áhættu- og fjárstýring
• Áætlanagerð og eftirfylgni
• Fjárhagsleg greining og eftirlit
• Samskipti við lánastofnanir
og fjárfesta ásamt forstjóra
FESTI hf. leitar að traustum og metnaðarfullum einstaklingi í starf framkvæmdastjóra fjármálasviðs.
Framkvæmdastjóri er öflugur og framsækinn leiðtogi sem er bæði fyrirmynd og ábyrgur í hópi jafningja
við stjórnun félagsins.
Við leitum að einstaklingi sem er tilbúin(n) í krefjandi verkefni, með afburða hæfileika í mannlegum
samskiptum, greiningum og samningum.
Nánari upplýsingar um starfið veita Eggert Þór Kristófersson, eggert@festi.is
og Kolbeinn Finnsson, kolbeinn@festi.is.
Umsóknir óskast fylltar út á https://festi.is/atvinna ásamt starfsferilskrá og kynningarbréfi
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 3. desember.
Öllum umsóknum verður svarað og fullum trúnaði heitið.
Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um starfið.
Starf lögfræðings hjá Sambandi
íslenskra sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga hyggst ráða lögfræðing
á lögfræði- og velferðarsvið. Lögfræðingar sambandsins
koma fram fyrir þess hönd við undirbúning lagafrumvarpa
og stjórnvaldsfyrirmæla sem varða sveitarfélögin og vinna
að upplýsingagjöf, ráðgjöf og fræðslu til sveitarfélaga.
Lögfræðingurinn mun starfa ásamt öðrum lögfræðingum og
sérfræðingum sviðsins að margþættum og síbreytilegum
verkefnum, sem meðal annars varða skipulags-, umhverfis-
og auðlindamál, skólamál, málefni félagsþjónustu sveitar-
félaga og túlkun laga og reglna sem varða starfsemi
sveitarfélaga.
Gerð er krafa um embættispróf í lögfræði eða meistarapróf
í lögum, ásamt góðri þekkingu á stjórnsýslurétti. Reynsla
af störfum á þeim málefnasviðum sem að ofan greinir er
kostur, ásamt þekkingu og áhuga á málefnum sveitarfélaga.
Gott vald á íslensku máli í ræðu og riti og hæfni í fram-
setningu upplýsinga er skilyrði. Góð kunnátta í a.m.k. einu
öðru Norðurlandamáli og ensku er æskileg, sem og góð
tölvuþekking, bæði til öflunar og úrvinnslu upplýsinga.
Leitað er að hæfum einstaklingi sem hefur til að bera
frumkvæði, sjálfstæði, þjónustulund, hæfni í mannlegum
samskiptum, nákvæmni í vinnubrögðum og forystu- og
skipulagshæfileika. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið
störf sem fyrst.
Föst starfsaðstaða getur verið utan höfuðborgarsvæðisins,
að þeirri forsendu uppfylltri að mögulegt verði að tryggja
fullnægjandi starfsaðstöðu nærri heimili umsækjanda, en
einnig á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga
í Reykjavík.
Gert er ráð fyrir að gagnkvæmur reynslutími sé sex mánuðir
við ráðningu.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Bragason, sviðsstjóri
lögfræði- og velferðarsviðs, netfang:
gudjon.bragason@samband.is, eða Valur Rafn Halldórsson
sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs, netfang:
valur@samband.is eða í síma 515-4900.
Samband íslenskra sveitarfélaga er framsækinn vinnu-
staður sem býður upp á opið vinnuumhverfi, samheldinn
starfsmannahóp og skapar starfsmönnum gott svigrúm
til starfsþróunar. Umsækjendum er bent á að frekari
upplýsingar um Samband íslenskra sveitarfélaga eru á
heimasíðunni, www.samband.is. Þar er einnig að finna
starfslýsingu fyrir starfið og mannauðsstefnu sambandsins.
Umsóknir, merktar Umsókn um starf lögfræðings á
lögfræði- og velferðarsviði, berist eigi síðar en mánudag-
inn 9. desember nk. til Sambands íslenskra sveitarfélaga,
Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík, eða í tölvupósti
til samband@samband.is.
JT Verk er ungt og vaxandi fyrirtæki sem sér-
hæfir sig í verkefnastjórn byggingaframkvæmda.
JT Verk er leiðandi í faglegum rekstri verkefna
og hagnýtir sér nýjustu tækni í verkefnastjórnun.
Umsóknarfrestur er til og með 15. desember.
Umsóknir óskast í gegnum umsóknarkerfi
Alfreðs. Ferilskrá og kynningarbréf þarf að
fylgja umsókn. Frekari upplýsingar um starfið
veitir Jónas Halldórsson, jtverk@jtverk.is.
Menntun, hæfni og reynsla skiptir okkur miklu máli,
en við leggjum ekki síður mikið upp úr ríkri þjónustu-
lund og lipurð í mannlegum samskiptum.
JT Verk óskar eftir
verkefnastjóra
Helstu verkefni:
— Almenn stjórnun verkefna
— Hönnunarstýring
— Rekstur gæða- og öryggismála
— Samningagerð við verkkaupa, birgja og undirverktaka
— Gerð og eftirfylgni kostnaðar- og verkáætlana
— Þátttaka í að móta ungt fyrirtæki til vaxtar
— Segja gamansögur
Hefur þú brennandi
áhuga á framkvæmdum?
10 ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 0 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
3
0
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
4
4
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
6
1
-6
4
A
4
2
4
6
1
-6
3
6
8
2
4
6
1
-6
2
2
C
2
4
6
1
-6
0
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
4
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K