Fréttablaðið - 30.11.2019, Page 88
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Innritun stendur yfir.
Ný námsleið:
Fjarnám í ferðafræðum með þremur
staðbundnum helgarlotum í janúar, febrúar og apríl.
Spennandi nám sem býður upp á fjölda nýrra tækifæra.
Innritun stendur yfir.
Á hátíðinni sem kallast RVK Feminist Film Festival verða eingöngu sýndar
kvikmyndir eftir kvenkyns leik
stjóra. Lea segir að boðskapur
hátíðarinnar sé einfaldur, að
jafna kynjahalla þegar kemur
að leikstjórn kvikmynda. „Efni
kvikmyndanna er ekki endi
lega femínískt, þetta er aðallega
spurning um að fá sjónarhorn
konu,“ segir hún.
„Ég held að konur séu oft upp
teknar af því að allt þurfi að vera
fullkomið og það kannski spili
inn í að þær leikstýri ekki eins
mikið og karlmenn. Þess vegna
einmitt vantar okkur f leiri fyrir
myndir á þessu sviði. Það er ótrú
lega mikilvægt fyrir ungar konur
að sjá fyrirmyndir í bransanum.“
Þegar Lea kom heim úr námi
fannst henni hana vanta tengsla
net á Íslandi þar sem hún lærði
úti. Hún fór að leita fyrir sér og
komst á snoðir um Stockholm
Feminist Film Festival og setti
sig í samband við stjórnanda
þeirrar hátíðar. „Sú hátíð er í raun
fyrirmyndin að þessari hátíð sem
verður haldin hér,“ segir Lea.
Lea segir að í raun sé það
manninum hennar að þakka að
hún hafi farið út í að halda þessa
hátíð. „Hann sagði mér að kýla
bara á það. Ég var líka kannski
komin með sjálfstraust til þess að
láta af þessu verða en hef fengið
mikla hvatningu og stuðning frá
fjölskyldu og vinum.
Eins og stendur munum við
sýna sjö bíómyndir í Bíói Paradís
en við ákváðum nýlega að sam
einast Nordisk Film Fokus sem
Norræna húsið heldur. Þau ætluðu
líka að sýna myndir eingöngu
eftir kvenleikstjóra í ár og stungu
upp á að við myndum slá þessum
hátíðum saman. Það þýðir að við
fáum enn f leiri myndir eftir konur
svo það er virkilega gaman að
hafa getað sameinast þeim.“
Myndirnar sem sýndar verða
í Norræna húsinu koma frá
Norðurlöndunum en í Bíói Para
dís verða meðal annars myndir
frá Japan, Taílandi, Póllandi og
SuðurAmeríku. „Þetta eru sem
sagt myndir héðan og þaðan
eftir ólíkar konur frá ólíkum
heimshornum,“ segir Lea „Við
eigum von á að minnsta kosti
tveimur leikstjórum til landsins
og mögulega f leirum í tengslum
við Norræna húsið og norrænu
myndirnar. Elísabet Ronalds
dóttir verður sérstakur heiðurs
gestur hátíðarinnar.“
Stuttmyndakeppni
Á hátíðinni sem fer fram dagana
16.19. janúar 2020 verður ýmis
legt annað í boði en hefðbundnar
kvikmyndasýningar. Á Hótel
Marina verður ýmiss konar dag
skrá. Þar verður svokallað „net
work“ partí fyrir konur í kvik
myndabransanum til að hittast og
spjalla saman. „Mögulega skapast
eitthvert samstarf milli landa út
frá því,“ segir Lea.
Þá verður haldin handrits
smiðja sem kallast Fabúlera.
„Við fáum til okkar mjög f lotta
konu frá Bandaríkjunum. Hún
heitir Gabrielle Kelly, er handrits
höfundur og vinnur hjá Amer
ican Film Institute. Hún ætlar að
kenna á smiðjunni“
Einnig standa skipuleggjendur
hátíðarinnar fyrir stuttmynda
samkeppni undir yfirskriftinni
„Systir“. „Við veitum verðlaun
fyrir bestu íslensku og bestu
erlendu stuttmyndina. Verð
launagripirnir eru búnir til af
tveimur konum, Hallgerði Kötu
Óðinsdóttur sem er járnsmiður
og Gerðu Kristínu Lárusdóttur
sem er gullsmiður. Þetta er sem
sagt verðlaunagripur og hálsmen
og hönnunin á þessum gripum
tengist. Ég var bara að sjá gripinn
um daginn og hann er mjög
f lottur,“ segir Lea.
Lea segir að mikill fjöldi
stuttmynda hafi þegar borist í
keppnina og fimm kvenna dóm
nefnd muni velja sigurvegarana.
Kynning á hátíðinni fer fram á
Hótel Marina í dag og hefst hún
klukkan 17.00. „Við höfum ekki
enn getað sett upp lokadagskrá.
Það er alltaf eitthvað nýtt að
poppa upp en við ætlum að kynna
það sem er öruggt að verði. Svo
verðum við líka með nútímadans
sýningu, ljóðalestur og ein ætlar
að syngja frumsamin lög svo það
verður góð stemning,“ segir Lea.
Hún bætir því við að lokum að
mikið af góðu fólki komi að hátíð
inni með henni. Nara Walker er
listrænn stjórnandi, Sonia Sars
er samhæfingarstjóri, Marta Kol
buszewska er almannatengill og
efnissmiður og Katla Gunnlaugs
dóttir sér um samfélagsmiðla.
Tæknimaður er Alexander Hrafn
Ragnarsson og Róbert Stefánsson
sér um vefstjórn ásamt því að vera
grafíker.
Kvikmyndir eftir konur frá
flestöllum heimshornum
María Lea Ævarsdóttir eða Lea eins og hún er alltaf kölluð, kom heim úr kvikmyndanámi frá LA
og var með þann draum að stofna femíníska kvikmyndahátíð. Draumurinn er nú orðinn að veru-
leika. RVK Feminist Film Festival verður haldin í janúar en kynning verður á Hótel Marina í dag.
Lea segir mikilvægt að ungar konur sjái fyrirmyndir í kvikmyndabransanum. MYND/ALEXANDER HRAFN RAGNARSSON
Á Hótel Marina
verður ýmiss
konar dagskrá. Þar
verður svo kallað „net-
work“ partí fyrir konur
í kvikmyndabransanum
til að hittast og spjalla
saman.
Ég held að konur
séu oft uppteknar
af því að allt þurfi að
vera fullkomið og það
kannski spili inn í að
þær leikstýri ekki eins
mikið og karlmenn.
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
3
0
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
4
4
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
6
1
-3
D
2
4
2
4
6
1
-3
B
E
8
2
4
6
1
-3
A
A
C
2
4
6
1
-3
9
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
4
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K