Fréttablaðið - 30.11.2019, Blaðsíða 95
Á opnum fundi í viðburðaröð Háskóla Íslands um
heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna þann 19.
nóvember síðastliðinn ræddu Vilborg Oddsdóttir,
félagsráðgjafi Hjálparstarfs kirkjunnar, og
fræðafólkið Sigrún Ólafsdóttir, prófessor við
félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild,
Berglind Rós Magnúsdóttir, dósent við deild
menntunar og margbreytileika og Ásgeir Jónsson,
seðlabankastjóri og prófessor við hagfræðideild
Háskóla Íslands um fyrsta heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna um að útrýma fátækt í allri sinni mynd,
alls staðar, eigi síðar en árið 2030. Þau beindu
sjónum sínum fyrst og fremst að stöðu mála hér á
landi.
Á Íslandi eru nú 9% íbúa undir lágtekjumörkum eða
31.400 manns og á það fólk á hættu að búa við
fátækt. Fjögur prósent íbúa, eða 14.514 manns, búa
við skort á efnislegum gæðum og 0,7%, eða 2.540
einstaklingar, búa við verulegan skort hér á Íslandi.
Hagstofan segir að í evrópskum samanburði búi hér
hlutfallslega fáir við skort og að þeim hafi fækkað
um 2,1 prósentustig frá árinu 2016. Það er vel en
eitt barn sem býr við efnislegan skort í
velferðarsamfélagi er einu barni of mikið.
Sigrún Ólafsdóttir sagði félagsfræðikenningar
skýra fátækt með hegðun einstaklingsins, hvernig
samfélaginu er skipt upp og með ákvörðunum
stjórnmálafólks. Hún sagði rannsóknir sýna að mikill
ójöfnuður gæti haft neikvæð áhrif á heilsufar,
afbrotatíðni, lífsstíl, samfélagsþátttöku og átök í
samfélaginu.
Berglind Rós Magnúsdóttir minnti á að árið 2014
hefðu 9% barna á Íslandi skort efnisleg, andleg og
tilfinningaleg gæði sem eru börnum nauðsynleg til
að lifa, þroskast og dafna í hverju samfélagi.
Berglind sagði að menntun foreldra og
ráðstöfunartekjur hefðu áhrif á árangur barna í
skóla. Þá sagði hún að á Íslandi væri stéttskipting í
menntakerfinu og félagsleg aðgreining. Berglind
sagði að aukin markaðsvæðing menntunar leiddi til
kerfislægs aðstöðumunar. Hún sagði nauðsynlegt
að huga að börnum sem ekki hefðu íslensku að
móðurmáli jafnt sem þeim sem glímdu við fötlun.
Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi Hjálparstarfs
kirkjunnar, sagði að fólkið sem hefur leitað til
stofnunarinnar samfleytt í mörg ár og væri fast í
fátæktargildru ætti það margt sameiginlegt að hafa
upplifað áfall, koma frá brotnum fjölskyldum, hafa
stutta skólagöngu að baki og búa við vanvirkni. „Það
kostar peninga að taka þátt í samfélaginu og
fátæktin getur haft þær afleiðingar að fólk verður
félagslega einangrað. Einhvers staðar á leiðinni
hafa draumar fólksins dáið og þá hefur það ekkert
til að stefna að í lífinu,“ sagði Vilborg.
„Til þess að þeir sem leita til Hjálparstarfs kirkjunnar
verði ekki enn fastir í fátæktargildru árið 2030
verðum við sem samfélag að beita sértækum
úrræðum. Við þurfum að hækka lægstu laun en það
dugar ekki eitt og sér. Við getum notað
barnabótakerfið betur, það þarf að fá fleira fagfólk
inn í grunnskóla til að vinna með kennurum og við
þurfum fleiri virkniúrræði fyrir þá sem búa við
örorku,“ sagði Vilborg og bætti við að meiri samvinna
þyrfti að vera á milli ráðuneyta og síðast en ekki síst
þyrfti alvöru notendasamráð þar sem fólkið sem býr
við fátækt tæki þátt í að taka ákvarðanir sem það
varðar.
Ásgeir Jónsson sagði hagvöxt forsendu aukinnar
velmegunar en hagsveiflur hafa farið verst með þá
sem höllum fæti standa. Hann sagði góða hagstjórn
og stöðugleika því skipta mestu máli. Ásgeir tók
undir með Vilborgu um að staðfesta þyrfti
orsakasamhengi og skilgreina mælanleg markmið
með sértækum aðgerðum í þágu þeirra sem búa við
fátækt.
„Einhvers staðar á leiðinni
hafa draumarnir dáið“
Sigrún Ólafsdóttir, prófessor við félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild,
Berglind Rós Magnúsdóttir, dósent við deild menntunar og margbreytileika, Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri
og prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands, og Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi Hjálparstarfs kirkjunnar,
fjölluðu um baráttuna við að útrýma fátækt á opnum fundi í Háskóla Íslands þann 19. nóvember síðastliðinn.
Hátíðar-
messa
í Hallgrímskirkju
fyrsta sunnudag
í aðventu
1. desember kl. 11:00
Frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup
Íslands, prédikar og sr. Irma Sjöfn
Óskarsdóttir þjónar fyrir altari.
Mótettukór Hallgrímskirkju syngur
undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Gjöfum til Hjálparstarfs kirkjunnar
verður veitt móttaka. Messunni verður
útvarpað á Rás 1.
Margt smátt ... – Jólablað Hjálparstarfs kirkjunnar – 9
3
0
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
6
1
-6
E
8
4
2
4
6
1
-6
D
4
8
2
4
6
1
-6
C
0
C
2
4
6
1
-6
A
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
4
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K