Fréttablaðið - 30.11.2019, Blaðsíða 104
Það er óhætt að segja að Dallas Mavericks hafi hitt naglann á höfuðið þegar félagið fékk slóv-enska bakvörðinn Luka Doncic á nýliðavals-
kvöldi NBA-deildarinnar á vor-
dögunum í fyrra. Dallas náði að fá
Atlanta Hawks til að skipta á Trae
Young og Doncic á kvöldi nýliða-
valsins og þó að Young hafi slegið
í gegn með liði Hawks er Doncic
ein af stjörnum deildarinnar. Töl-
fræðilega er Doncic að skila tölum
sem aðeins LeBron James hefur
sýnt á öðru tímabili leikmanns
í deildinni og hefur hann verið
nefndur til sögunnar sem hugsan-
legur verðlaunahafi sem verð-
mætasti leikmaður deildarinnar (e.
Most valuable player). Doncic mun
ásamt Giannis Antetokounmpo
sinna hlutverki kyndilbera Evrópu
í NBA-deildinni í Evrópu næstu árin
og þar eru þeir verðugir arftakar
Dirks Nowitzki sem hætti eftir 21
árs feril í Dallas í vor.
Stóð undir væntingunum
Doncic vakti ungur athygli er pabbi
hans lék fyrir stærsta liðið í Sló-
veníu, Union Olympija. Luka
æfði með yngri f lokkum félags-
ins og þrettán ára gamall sló
hann í gegn með U14 ára liði
Union á alþjóðlegu móti. Það
vakti athygli stærstu liða Evr-
ópu og bauð spænska stórveld-
ið Real Madrid þrettán ára tán-
ingnum fimm ára samning og
flutti hann til Spánar með móður
sinni eftir að foreldrar hans skildu
nokkrum árum áður. Hjá Real fór
hann fyrir unglinga- og varaliðum
félagsins þrátt fyrir ungan aldur og
stuttu eftir sextán ára afmælisdag-
inn lék hann fyrstu mínútur sínar
með varaliði Madrídinga. Það vakti
mikla athygli enda varð hann um
leið yngsti leikmaðurinn í sögu
spænska stórveldisins og sá þriðji
yngsti í sögu ACB-deildarinnar á
Spáni.
Tveimur árum síðar lék hann lyk-
ilhlutverk í sóknarleik Madrídinga
og blómstraði þegar Real Madrid
vann deildina og EuroLeague.
Doncic var valinn besti leikmaður
Evrópudeildarinnar og besti leik-
maður spænsku deildarinnar og til-
kynnti um leið að hann myndi taka
þátt í nýliðavali NBA-deildarinnar
sama vor. Atlanta Hawks valdi
Doncic með 3. valrétti en stuttu
seinna bárust fréttir um að Atlanta
og Dallas hefðu skipt á Doncic og
Young ásamt því að Atlanta myndi
fá fyrsta valrétt Dallas í nýliðavali
ársins 2019. Segja má að Dallas hafi
greitt hátt verð fyrir að skipta á leik-
mönnum sem voru teknir með 3. og
5. valrétti nýliðavalsins en í þetta
skiptið stórgræddu bæði félög. Dall-
as fékk leikmann sem var tilbúinn
að leiða liðið og Atlanta fékk leik-
mann og valrétti til að byggja upp
ungt og spennandi lið.
Stórt stökk á öðru ári
Doncic var fljótur að láta til sín taka
á fyrsta tímabili sínu í NBA-deild-
inni og fór yfirleitt fyrir liði Dallas
í stigaskorun í fyrstu leikjum tíma-
bilsins. Þegar líða tók á tímabilið
fóru varnir andstæðinganna að
leggja aukna áherslu á að stöðva
Slóvenann unga en þá fór hann
að finna liðsfélaga sína betur og
byrjaði að gefa f leiri og f leiri stoð-
sendingar. Dallas áttaði sig snemma
á því að þarna væri á ferðinni leik-
maður framtíðarinnar og skipti öllu
byrjunarliðinu út í byrjun þessa
árs til að ná í Kristaps Porziņģis
frá New York Knicks þrátt fyrir að
hann væri meiddur og myndi ekki
koma aftur fyrr en í haust. Með því
var Dallas komið með meðreiðar-
svein fyrir Doncic til framtíðar.
Slóveninn hefur tekið annað stórt
stökk fram á við á þessu tímabili
eins og algengt er og er gengi liðsins
samkvæmt því. Dallas hefur unnið
Doncic gaf Lebron ekkert eftir í einvígi Dallas og Lakers á dögunum.
LEIKVANGURINN
ellefu af fyrstu sautján leikjum
tímabilsins og er í baráttunni um
heimavallarrétt í úrslitakeppninni
þegar um fimmtungur tímabilsins
er að baki en Doncic er að skila
tölum sem sjást afar sjaldan hjá
leikmanni á öðru ári NBA-deildar-
innar. Hann er nálægt því að vera
með þrefalda tvennu (e. triple
double) að meðaltali með 30,1 stig,
10 fráköst og 9,5 stoðsendingar. Til
samanburðar skilaði LeBron James,
einn af bestu körfuboltamönnum
allra tíma sem Doncic leit upp til
sem pjakkur, meðaltali upp á 27,2
stig, 7,4 frákast og 7,2 stoðsendingar
á öðru tímabili sínu í deildinni.
Aðeins tveir leikmenn í sögu
NBA-deildarinnar hafa náð að vera
með þrefalda tvennu að meðaltali
yfir tímabil, Oscar Robertson náði
því fyrir tæpum fimmtíu árum
síðan og Russell Westbrook hefur
náð því undanfarin þrjú ár.
Fy r i r v i k ið er u þjá l f a r a r
deildarinnar duglegir að lofsama
Luka og er honum iðulega líkt
við LeBron James og Larry Bird
sem þykja tveir af bestu körfu-
bolt a mönnu m a l l r a t íma .
„Hann er einhvers konar blanda
af James Harden, Larry Bird og
LeBron James en þegar ferli
hans lýkur mun hann vera
eins og Luka,“ sagði Doc Rivers,
þjálfari Los Angeles Clippers,
aðspurður hvernig hann myndi
lýsa Doncic sem leikmanni.
Fór illa með Hlyn
Hinn tvítugi Doncic gat valið á
milli landsliða Spánar, Serbíu og
Slóveníu til að spila fyrir en ákvað
að velja lið Slóveníu, þá sautján ára
gamall. Hann fór fyrir liði Slóveníu
á EuroBasket 2017 þar sem Slóvenar
unnu til gullverðlauna í körfubolta
í fyrsta sinn og unnu meðal annars
lið Íslands á vegferð sinni í úrslita-
leikinn.
Doncic sem var átján ára þegar
hann mætti Íslandi í Helsinki setti
niður stórar þriggja stiga körfur í
fyrri hálfleik. Ein þeirra kom þegar
hann nýtti hraðann vel og fór illa
með Hlyn Bæringsson og fékk gal-
opið skot enda var Hlynur kominn
langleiðina undir körfuna.
Doncic skilaði þrettán stigum í
leiknum ásamt sex fráköstum og
þremur stoðsendingum þegar Sló-
venar unnu öruggan 27 stiga sigur
á Íslandi á leið sinni í úrslitaleikinn.
Slóvenska
ungstirnið
í Dallas
Hinn tvítugi Luka Doncic fer
fyrir liði Dallas Mavericks í
NBA-deildinni og er strax
orðinn einn besti leikmaður
deildarinnar. Miklar vænting-
ar voru gerðar til Doncic frá
ungum aldri og hann ætlar
að standa undir þeim öllum.
Mirjam Poterbin, mamma Luka, er fastagestur á hliðar-
línunni á leikjum Luka og fluttist með honum til Madr-
ídar til að elta draum hans. MYND/INSTAGRAM-SÍÐA MIRJAM
Kristinn Páll Teitsson
kristinnpall@frettabladid.is
3 0 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R50 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
3
0
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
6
1
-3
3
4
4
2
4
6
1
-3
2
0
8
2
4
6
1
-3
0
C
C
2
4
6
1
-2
F
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
4
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K