Fréttablaðið - 30.11.2019, Page 120

Fréttablaðið - 30.11.2019, Page 120
ÉG HELD AÐ HIÐ PERSÓNULEGA VERÐI EKKI UMFLÚIÐ Í LJÓÐAGERÐ YFIRLEITT. Brynja Hjálmsdóttir Brynjólfur Þorsteinsson og Brynja Hjálmsdóttir senda frá sér fyrstu ljóðabækur sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Brynja Hjálmsdóttir og Brynjólfur Þorsteins-son senda frá sér fyrstu ljóðabækur sínar um þessi jól. Brynjólfur hlaut í byrjun þessa árs Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóðið Gor- mánuður. „Það var mikil hvatning. Ég er ekki viss um að ég hefði gefið þessa bók út án þeirrar viðurkenn- ingar. Ég hafði varla kallað mig ljóðskáld áður en ég fékk stafinn og var ekki að yrkja neitt af viti,“ segir hann. Aðspurður segist hann eiga í skúffum smásagnasafn og drög að skáldsagnahandriti. „Hann er frábær smásagnahöfundur,“ skýtur Brynja inn í. Samfelld upplifun Ljóðabók Brynjólfs nefnist Þetta er ekki bílastæði. „Bókin skiptist í þrjá hluta sem eru Gormánuður, Ýlir og Mörsugur sem eru gamlir vetrar- mánuðir. Ég kem víða við, en vetur- inn er áberandi og kvíðinn fyrir myrkrinu fram undan. Það er mikill kvíði í samfélaginu þessa dagana, loftslagsváin vegur þar þungt og ég held að það hafi haft áhrif á ljóðin. Mér varð líka hugsað til fortíðar- innar við skrifin, þegar tengsl fólks við náttúruna voru öðruvísi, nánari. Það er mikið um dýr í bókinni og umhverfið leikur stórt hlutverk.“ Okfruman er heiti á bók Brynju. „Þetta er samfelldur ljóðabálkur sem segir sögu tiltekinnar manneskju. Mér var mikið í mun í að þarna yrði til ein samfelld upplifun sem væri hægt að sökkva sér ofan í.“ Spurð hvort þarna sé byggt á eigin reynslu segir hún: „Ljóðin eru að hluta til persónuleg en ekki hundrað prósent sjálfsævisöguleg. Ég held að hið per- sónulega verði ekki umflúið í ljóða- gerð yfirleitt.“ Bunkar af ljóðabókum Brynja og Brynjólfur stunduðu rit- list í Háskólanum og bæði starfa sem bóksalar, hann í Bókabúð Máls og menningar og hún í Eymunds- son. „Það er óskaplega skemmtilegt að vera bóksali í jólabókaf lóði,“ segir Brynja. Spurð hvort þau hafi afgreitt eigin ljóðabækur svara þau því játandi. „Bæði til fólks sem maður þekkir og annarra sem maður þekkir ekki neitt og það er mjög for- vitnilegt,“ segir Brynja. Þau eru spurð hvort þau séu miklir ljóðaunnendur. „Ég las vísur þegar ég var krakki og í lok menntaskólans fór ég að lesa ljóðabækur.“ Spurð um eftirlætisskáld nefnir hún Óskar Árna, Kristínu Eiríksdóttur, Eirík Örn Nordal, Stein Steinarr og Sigurð Pálsson. „Ég las ekki mikið af ljóðum fyrr en ég byrjaði í ritlist. Fram að því las ég aðallega skáldsögur og smá- sögur,“ segir Brynjólfur. Spurður um eftirlætishöfunda nefnir hann Braga Ólafsson. „Það fer svo eftir vikum hvaða ljóðskáld eru í mestu uppáhaldi. Ég er alltaf með bunka af ljóðabókum á náttborðinu.“ Skáld og bóksalar í jólabókaflóði Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Brynja Hjálms- dóttir og Brynj- ólfur Þorsteinsson senda frá sér fyrstu ljóðabækur sínar. BÆKUR Tónlist liðinna alda. Íslensk handrit 1100-1800. Árni Heimir Ingólfsson Útgefandi: Crymogea Fjöldi síðna: 231 Karlar eiga að bera virðingu fyrir konum og alls ekki sjá þær sem leik- föng. Þetta er boðskapur kvæðisins Eitt sinn fór ég yfir Rín, en þar segir frá ungum manni sem ferðast yfir Rínarfljót til að hitta stúlku. Hann vill hana bara fyrir nóttina, en hún neitar að hleypa honum inn nema eitthvað meira hangi á spýtunni. Loksins fá systur stúlkunnar nóg, bjóða honum inn fyrir, en ráðast á hann, binda hendur hans og fætur og henda honum út um glugga. Nóturnar við lagið sem þetta kómíska kvæði er sungið við er að finna í gömlu íslensku handriti, Melódíu, sem er frá sautjándu öld. Þar eru þýðingar við erlendan kveð- skap, lög úr íslenskum, dönskum og enskum sálmabókum, kaþólskir söngvar og fleira. Árni Heimir Ing- ólfsson segir frá handritinu í bókinni Tónlist liðinna alda, sem er þver- skurður íslenskra tónlistarhandrita frá 1100-1800 með ítarlegum grein- ingum á völdum sýnishornum. Ekki eins rýrt og talið var Sumir halda að menningarlífið á Íslandi hafi verið fátæklegt, það voru a.m.k. hughrifin sem maður fékk á Þjóðminjasafninu í gamla daga. Safnið hlaut andlitslyftingu upp úr aldamótum, en áður ríkti þar myrkur og drungi. Í hnotskurn virtist það vera eymdarveröld fólks sem hafði misst af síðasta strætó og glatað tækifærum hvað eftir annað, öld eftir öld. Þetta var þó ekki svona. Siða- skipti voru árið 1550 með nokkrum aðdraganda, við vorum kaþólsk í 550 ár. Hér voru k l au st u r og þar var sungið Guði til dýrðar, l í k l e g a á t t a sinnum á sólar- hring, auk messu. Bænasöngurinn k a l l a s t t í ð a - bænir og veglegur hluti bókar Árna Heimis fjallar um handrit frá kaþ- ólsk um tíma. Í bókinni er að finna sálma í nótum sem átti að syngja við mismunandi tíðir á ólíkum tímabilum. Þessi handrit eru fjölmörg. Menn- ingarlífið dó svo ekki út eftir siða- skipti og handritin bera vott um það. Í stærra samhengi Alls eru tónlistarhandritin um hundrað talsins frá kaþólskri tíð, og um fimmtíu eftir siðaskipti. Þar eru laglínur í misnákvæmri nótnaskrift, og því er ekki alltaf á hreinu hvernig tónlistin hljómaði í flutningi. Sögu- legar heimildir um tónlistariðkun á Íslandi, fyrir utan sjálf nótnahand- ritin, eru mjög af skornum skammti. Árni Heimir hefur þó unnið ótrú- legt þrekvirki að rekja mörg lögin til erlendra handrita á söfnum víða um heim og finna fyrirmyndir þeirra. Það er eins og að leita að nál í heystakki, því gnægð handrita er til. Hið skýra sögulega samhengi við evrópska tónlistar- iðkun sem Árni Heimir bregður upp í bókinni er því aðdáunarvert. Tónlist liðinna alda er fögur bók. Hún er í A4 broti með myndum af f jölda handr ita með nótnaskrift, og höfundurinn greinir hverja mynd, segir frá því hvaðan lagið kemur og við hvaða tækifæri það hlýtur að hafa verið sungið. Útkoman er gríðar- legur fróðleikur um sögu tónlistar á Íslandi, en hann hefur hingað til verið takmarkaður. Margir halda að annar hver karlmaður í gamla daga hafi verið víkingur og að hasar og sverðaglamur hafi verið daglegt brauð. Svo var ekki. Sverðin sem hér hafa fundist eru örfá; tónlistarhand- ritin eru miklu fleiri. Það segir sína sögu. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Frábær bók með miklum fróðleik um íslenska tónlistar- sögu. Sungið frekar en að höggva mann og annan BÆKUR Helköld sól Lilja Sigurðardóttir Útgefandi: JPV útgáfa Fjöldi síðna: 326 Skáldsagan Helköld Sól er nýjasta glæpasagan úr smiðju Lilju Sig- urðardóttur. Söguhetjan að þessu sinni er Áróra, bresk-íslensk kona sem hefur verið búsett í Bret- landi síðan hún var barn. Áróra hefur litlar taugar til Íslands og hefur lítið verið í því að brölta á æsku- slóðirnar nema til þess að heimsækja eldri systur sína, Ísafold. Eldri systirin elti nefnilega ástina til Íslands, til þess eins að festast í ramm- læstum klóm ofbeldismanns. Við upphaf sögul er Ísafold hins vegar týnd og móðir þeirra systra grátbiður Áróru að fara til Íslands og leita að eldri systur sinni. Samband Ísafoldar og Áróru er rauður þráður í gegnum Helköld sól. Þær systur birtast sem algjörar and- stæður, himinn og jörð, svart og hvítt, Bretland og Ísland. Sagan stekkur fram og til baka í tíma og rúmi þann- ig að lesandi fær örlitla innsýn inn í æsku og uppvöxt þeirra systra í Bret- landi, þótt Lilja sé ekki að eyða of miklu púðri í það. Áróra er skemmtilegur karakter sem passar vel inn í glæpasöguform- ið. Það er líka hressandi að lesa sögu sem ekki fjallar um rannsóknarlög- reglumann í leit að réttvísinni. Áróra starfar nefnilega sem nokkurs konar einkaspæjari sem eltist ekki við fólk heldur peninga, sem hún grefur upp í aflandsreikningum og skattaskjólum og skilar á réttan stað hverju sinni. Hún kallar heldur ekki allt ömmu sína, og er lesandinn ítrekað minntur á stærð hennar og styrk. Það svífur helst svolítil klisja yfir vötnum þegar kemur að ástalífi Áróru, sem þykir afar fögur. Henni tekst að næla sér í, ekki bara einn, heldur tvo aðdáendur á skömmum tíma á Íslandi sem báðir vilja allt fyrir hana gera. Rómantískt brölt sögu- hetju í glæpasögum þykir kannski eftirsótt hjá lesendum og ætli þar liggi ekki hundurinn grafinn. Helköld sól er skemmtileg glæpa- saga og tiltölulega auðlesin. Lilju tekst að sauma persónuleg vandræði og hugarrót sögupersóna saman við fléttuna sjálfa, leitina að Ísafold, án þess að slíkt sé endilega í forgrunni. Söguþráðurinn er spennandi fram á síðustu blaðsíðu þrátt fyrir að höf- undur gefi upp á fyrstu blaðsíðum verksins að Ísafold hafi að öllum lík- indum verið komið fyrir kattarnef. Bryndís Silja Pálmadóttir NIÐURSTAÐA: Góð glæpasaga með áhugaverðum persónum og skemmti- legri fléttu. Týnd systir og tveir piparsveinar 3 0 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R66 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 3 0 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :5 6 F B 1 4 4 s _ P 1 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 0 9 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 6 1 -0 1 E 4 2 4 6 1 -0 0 A 8 2 4 6 0 -F F 6 C 2 4 6 0 -F E 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 4 4 s _ 2 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.