Fréttablaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 22
Í byrjun hvers árs spáir
Whole Foods matvöru-
verslanakeðjan um
hvaða matur verður vin-
sæll á árinu og nýtur við
það aðstoðar heildsala
og framleiðenda. Spáin
hefur oftsinnis ræst, í
ár er því spáð að Kyrra-
hafsmatur muni njóta
vinsælda en líka heil-
næm fita sem fylgir
ketó, paleó og pegan
(paleo+vegan) fæði.
Hvað
borðum
við 2019?
Að vetrarlagi
eftir Isabel
Allende
Í versta byl í
manna minnum
í Brooklyn keyrir
prófessorinn
Richard á bíl
ungrar konu,
Evelynar, sem
er ólöglegur
innflytjandi
frá Gvatemala.
Ekkert stórmál
fyrr en hún
birtist skömmu
síðar heima
hjá honum
og biður um
hjálp.
Kyrrahafsríkjafæði
Fæða frá Asíu og Kyrrahafsríkjum verður vinsæl
á þessu ári. Whole Foods nefnir til dæmis guava,
drekaávöxt, rækju, blekfisk og filippseyska pylsu.
Óvanalegur ís
Ein skemmtilegasta nýjungin sem
Whole Foods spáir vinsældum
er óvanalegur ís. Grunnurinn
er af fjölbreyttu tagi, til
dæmis úr avókadó, framandi
ávöxtum, hummus, tahini
eða kókosvatni. Mexíkóskir
ísréttir, nieves de garrafa,
eru nú þegar vinsælir en
þar eru bragðtegundirnar
fjölbreyttar. Súraldinís
með rósapipar og chia-
fræjum og mandarínuís
með tekíla eru dæmi
um óvanalega ísrétti af
þessum uppruna.
Þari
Þari var mjög vin-
sæll á árinu 2018.
En á þessu ári
bætast við vöru-
tegundir á borð
við þarasmjör og
fleiri tegundir
af þaranúðlum
en áður hafa
þekkst.
Meira af
vegansnarli
Vöruþróun á
veganfæði sem
líkir eftir kjöti
er á fleygiferð.
Neytendur
mega búast
við auknu
úrvali af
vegan
jerkie og
feikoni
(grænmet-
isútgáfa af
beikoni).
Umhyggja í innkaupum
Neytendur vilja í síauknum mæli
kaupa siðrænt inn. Það dugir þeim
ekki að varan sé framleidd á líf-
rænan og umhverfisvænan hátt
heldur verða félagslegir þættir
einnig að vera í lagi. Neytendur
vilja að hagur þeirra sem starfa
við framleiðslu vörunnar sé
góður og vilja sérstaklega styrkja
framleiðslu á vörum þar sem
hugsað er vel um fólk.
Umhverfisvæn bylting
Einnota umbúðir eru á
leiðinni út. Stórar matsölu-
keðjur banna rör og taka
upp umhverfisvænar
umbúðir. Framleiðendur
mega búast við því að
bjóði þeir ekki matvöru
sína í umhverfisvænum
umbúðum sneiði
neytendur hjá þeim.
Meiri fita
Vegna mikilla
vinsælda ma
tarkúra á
borð við ketó
og paleó hel
dur þróun
matvara þar s
em lögð er áh
ersla á fitu
áfram. Kaffid
rykkir með sm
jöri (ghee),
súkkulaði me
ð kókoshnetu
smjöri eru
dæmi um þet
ta. Þá bætist v
ið mat-
vara sem þjón
ar þeim sem
eru á
peganfæði se
m er veganút
gáfa
af paleókúrnu
m.
Engin áramótaheit
Árið mitt verður stútfullt af
tónlist og nýjum tækifærum.
Ég strengdi engin áramótaheit
í þetta skiptið, en ég tek 2019
hins vegar opnum örmum og
held að þetta verði frábært ár.
GDNR Guðrún Ýr
Ríkharður þriðji
Enginn ætti
að missa af
stórkostlegri
uppfærslu
á Ríkharði
þriðja í
Borgar-
leikhúsinu
sem hefur
hlotið fimm
stjörnu
dóm gagn-
rýnanda
Frétta-
blaðsins.
Hvað er hægt að gera þegar svefninn
er kominn í rugl?
Þegar svefn hefur rofnað
og truflast eins og gerir
um hátíðir líkt og jól og
áramót er best að reyna
að snúa hratt með því
að ná lengri svefni yfir
heila nótt en áður var
og mögulega gott
að vaka þá aðeins
lengur þann dag
til að ná upp réttu
líkamlegu þreytu-
stigi að kvöldi og
nálgast þannig aftur
eðlilegan rhythma.
Teitur Guðmundsson
hjá Heilsuvernd
5 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN