Fréttablaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 37
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Í formála segir Margrét meðal annars: „Að forðast megrunar- og skvaptapsauglýsingar svo ekki
sé minnst á dómhörku fjölskyldu-
meðlima, kunningja og ekki síst
okkar sjálfra getur verið krefjandi
í upphafi nýs árs. Hér eru nokkur
verkfæri í átt að jákvæðari líkams-
ímynd á árinu 2019.“ Margrét hefur
löngum verið talskona jákvæðrar
líkamsímyndar fyrir alla líkama.
Hún kennir dans í Kramhúsinu og
stendur nú meðal annars fyrir nám-
skeiðum þar sem konur af öllum
stærðum og gerðum læra dans í
öruggu umhverfi. Uppselt er á tvö
sex vikna námskeið sem hefjast um
miðjan janúar en næstu námskeið
hefjast í byrjun mars.
Eftirfarandi eru áramótaheit
Margrétar Erlu Maack sem hún
staðfærir frá burlesque- og líkams-
virðingardívunni Freyu West.
1. Líðan mín er meira virði en
útlitið. Góður matur er matur
sem nærir mig og gleður. Ég vel
mér hreyfingu sem lætur mér líða
betur, hjálpar mér að fá útrás,
veitir mér gleði, jafnvel félagsskap
eða er einfaldlega „tími fyrir mig“.
2. Ég mun setja mér líkamsræktar-
markmið sem eru ótengd útliti, til
dæmis að hlaupa ákveðna vega-
lengd hraðar en áður, lyfta þyngra
og svo framvegis. Ég mun fara vel
með líkama minn og rækta hann
til að ná þessum markmiðum sem
ég set mér í gleði og metnaði, en
ekki rækta líkamann til að refsa
honum.
3. Ég ætla að hlusta á líkama minn
þegar hann þarf að slaka á og
hvílast og hvetja fólk í kringum
mig til þess sama. Slökun er líka
líkamsrækt.
4. Ég ætla að hætta að nota gildis-
hlaðin orð um mat. Matur er ekki
syndum hlaðinn og sömuleiðis
ætti neysla mín á honum ekki að
vera það. Ég borða þegar ég finn
fyrir hungri og borða til að ná
markmiðum mínum og koma vel
fram við líkama minn.
5. Ég ætla að hætta að láta eftir-
farandi tölur draga mig niður: Fata-
stærð, þyngd eða ummál. Ég er
meira virði en allt þetta til samans
og á meira skilið.
6. Ég ætla að finna mér fatastíl sem
lætur mér líða vel. Ég ætla ekki að
falla í neyslugildru, heldur kaupa
Líðanin meira virði en útlitið
Margrét Erla Maack, danskennari og líkamsvirðingarsinni, birti á dögunum á samfélagsmiðlum
uppástungur að áramótaheitum sem stuðla að jákvæðari líkamsímynd og léttari lund.
Eitt af áramótaheitunum snýst um að borða góðan mat sem nærir líkama og sál. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Margrét Erla Maack kabarettlistakona stingur hér upp á að strengja áramóta-
heit sem vinna með líkamanum en ekki gegn honum. MYND/INGA SÖR
færri föt og einbeita mér að því
að finna uppáhaldsföt sem eru
klassísk, vel gerð í góðum sniðum
og ekki elta tískubylgjur. Ég ætla að
fjarlægja og gefa föt sem ég passa
ekki í eða láta mér líða illa. Ég mun
velja föt sem mér líður vel í og
klæðast því sem mér sýnist.
7. Ég verð á varðbergi gagnvart
skyndi- og töfralausnum. Ég ætla
að muna að á bak við allar aug-
lýsingamyndir er teymi af fagfólki
í vinnu við að búa til ákveðið útlit,
bæði á fólk og vörur. Ekki einu
sinni ofurfyrirsætur líta út eins
og ofurfyrirsætur alla daga. Ég get
ekki komið í veg fyrir að sjá auglýs-
ingar, en ég get tekið ákvörðun um
hvaða áhrif þær hafa á mig. Svo er
ótrúlega skemmtileg fróun fólgin í
að ýta á „hide ad“ – og merkja svo
við „does not apply to me“.
8. Ég ætla að finna mér eða koma
auga á það mennska stoðkerfi sem
er í kringum mig. Ég veit að ég þarf
á vinum að halda og þeir á mér. Ég
lofa að hvetja vini mína og treysti
á að þeir geri slíkt hið sama fyrir
mig. Þessu tengt ætla ég að hrósa
fólki meira – með áherslu á hrós
sem tengjast útliti alls ekki neitt.
9. Ég og fólkið í kringum mig
ætlum að tala af virðingu um fólk,
sérstaklega þegar umræðan snýst
um holdafar á hvaða hátt sem er.
Ég mun benda á þegar líkams-
smánun á sér stað, og mun ekki
taka þátt í henni, ekki einu sinni
þegar um stjórnmálafólk sem mér
er illa við á í hlut! Ég ætla að reyna
að koma í veg fyrir það að fólk tali
illa um líkama, hvort sem það er
þeirra eigin eða annara, og ég ætla
að byrja á því að tala ekki af lítils-
virðingu um minn eigin líkama.
10. Ég ætla ekki að láta þyngd mína
eða útlit stjórna hvenær eða hvort
ég geri eitthvað, heldur „af því
að mig langar – núna“ eða „þetta
verður gaman og mun láta mér
líða vel“. Ég ætla ekki að bíða með
hluti þangað til „eftir að ég missi x
kíló“. Ég ætla að lifa lífinu núna, og
það geri ég í líkamanum sem ég er
í – núna.
Margrét bætir svo við tveimur ráð-
leggingum frá eigin brjósti.
11. Ég ætla ekki að tala niður til
líkama míns, sérstaklega ekki í
návist fólks sem lítur upp til mín
eða þykir vænt um mig, og ég ætla
að passa mig sérstaklega í kringum
börn.
12. Ég ætla að nýta samfélagsmiðla
og fylgja fólki sem ég lít upp til
og lætur mér líða vel. Ég ætla að
hætta að elta þá sem láta mér líða
illa eða eins og ég sé ekki nógu góð
manneskja.
Færslu Margrétar má lesa hér
https://www.facebook.com/mok-
kiburlesque/posts og færslu Freyu
West má lesa hér http://www.freya-
west.com/2017/12/31/10-body-
positive-resolutions-to-make-in-
the-new-year
Vilt þú geta dansað?
Við getum kennt þér.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R