Fréttablaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 93
Áramótahappdrætti
Sjálfsbjargar
1. Bifreið, Kia Niro Plug-in Hybrid rafbíll, að verðmæti kr. 3.990.777.-
1011
2.-6. Vöruúttekt hjá Rafha ehf, heimilistæki að eigin vali,
hver að verðmæti kr. 300.000,-
5949 16711 17321 17390 27603
7.-11. Vöruúttekt hjá húsgagnaverslun eða verslun,
hver að verðmæti kr. 175.000,-
2745 10620 15653 19346 28516
12.-41. Vöruúttekt hjá Rafha ehf, heimilistæki að eigin vali,
hver að verðmæti kr. 150.000,-
120 1629 1845 2999 3264 5439
5634 5691 6937 7219 8342 9647
9781 12991 13824 15151 16517 17068
17698 18825 19416 19557 19583 20407
20766 21384 21680 26117 26455 26850
42.-66. Vöruúttekt hjá húsgagnaverslun eða verslun,
hver að verðmæti kr. 100.000.-
320 696 1545 1727 1985 3178
3275 11259 14427 16321 17159 17445
18679 19292 20498 20662 21213 21441
22506 22525 24639 24772 28204 28334
29662
67.-105. Vöruúttekt hjá Rafha ehf, heimilistæki að eigin vali,
hver að verðmæti kr. 75.000.-
2239 2252 2718 5189 5603 6419
6531 7221 8477 9473 9569 9625
9713 10001 11640 12157 12459 13575
15135 16865 17181 17793 19064 19485
19489 19688 20032 21129 22802 22992
24504 24630 25100 25363 27554 27723
28592 29114 19485
Birt með fyrirvara um innsláttarvillur.
Handhafar vinningsmiða eru vinsamlega beðnir um að framvísa þeim á skrifstofu
Sjálfsbjargar landssambands hreyfihamlaðra að Hátúni 12, Reykjavík, 3ja hæð -
sími 5500-360.
Byrjað verður að greiða út vinninga þann 15. janúar 2019. Vinningaskrá er einnig
birt á vefsíðu samtakanna, www.sjalfsbjorg.is.
Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra þakkar landsmönnum veittan stuðning.
Dregið var þann 31. desember 2018
Vinningar og vinningsnúmer
LEIKHÚS
Einræðisherrann
Þjóðleikhúsið
Höfundur: Charlie Chaplin
Leikgerð og leikstjórn: Nikolaj
Cederholm
Leikendur: Sigurður Sigurjónsson,
Ilmur Kristjánsdóttir, Guðjón
Davíð Karlsson, Hallgrímur Ólafs-
son, Þröstur Leó Gunnarsson,
Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi
Gestsson, Oddur Júlíusson og
Sigurður Þór Óskarsson
Meðleikstjóri: Malene Begtrup
Leikmynd: Kim Witzel
Búningar: Line Bech
Tónlistarstjórn, píanóleikur og
leikhljóð: Karl Olgeirsson
Sviðshreyfingar: Anja Gaardbo
Slapstick: Kasper Ravnhøj
Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson
Hljóðmynd: Aron Þór Arnarsson
Þýðing: Magnea J. Matthíasdóttir
Ofur venjulegur rakari lif ir af
orustu á ótrúlegan hátt, hann
bjargar samborgara úr lífshættu
og þeir brotlenda á f lótta. Tuttugu
árum seinna snýr rakarinn aftur
minnislaus til gjörbreyttra heima-
haga. Sögusviðið er lok fyrri heims-
styrjaldarinnar og millistríðsárin,
í landi sem deilir ansi mörgum
einkennum með Þýskalandi þegar
ónef ndu r y f ir va ra skeg g jaðu r
nasisti er að undirbúa yfirtöku
heimsins.
Á annan í jólum frumsýndi Þjóð-
leikhúsið Einræðisherrann, verk
byggt á goðsagnakenndri bíómynd
Charlie Chaplin en í nýrri danskri
uppfærslu leikstjórans Nikolaj
Cederholm.
Tómanía er land í örvinglun,
atvinnuleysi er landlægt og þjóðin
enn í sárum eftir niðurlægingu
stríðsins. Slíkur jarðvegur er frjór
fyrir sterkan leiðtoga með stór-
hættulegar hugmyndir. Sigurður
Sigurjónsson hefur hér tveimur
hlutverkum að sinna, annars vegar
einræðisherrans Hynkels og hins
vegar orðfáa rakarans Charlie.
Sigurður er algjörlega öruggur í
túlkun sinni og listrænni fram-
kvæmd í þessu f lókna verkefni.
Hann reynir ekki að herma eftir
Chaplin heldur finnur hann inn-
blástur í líkamsbeitingu hans, ein-
beitni og einlægni.
Eins og alltaf er mjög gleðilegt
að sjá Þröst Leó snúa aftur á leik-
sviðið. Hann leiðir sýninguna
áfram sem sögumaður ásamt því
að sinna nokkrum öðrum smærri
hlutverkum, sem og margir aðrir
leikarar sýningarinnar. Líkt og Sig-
urður af hjúpar Þröstur Leó innra
líf persónanna með því að segja
lítið og leyfa leikhúsupplifuninni
að fæðast í gegnum augnaráð og
þögn. Saman eru þeir bráðfyndnir,
rakarasenan þeirra er lipurlega
framkvæmd og ein sú fyndnasta í
sýningunni.
Ilmur á líka sviðsendurkomu
í Einræðisherranum og sinnir
nánast eina kvenhlutverkinu sem
hefur dramatískt vægi. Í heildina
leysti hún hlutverkið vel af hendi
með skörpum kómískum innkom-
um en stundum vantaði aðeins á
dramatísku hliðina til að vega upp
á móti ærslalátunum.
Landslið grínleikara
Guðjón Davíð og Hallg r ímur
mynda áhugavert dúó í sýning-
unni, sá fyrri sem foringjasleikjan
Gubbels og sá seinni sem upp-
reisnarseggurinn Schultz. Grínið
er Guðjóni Davíð eðlislægt og
nýtur hann sín virkilega vel í öfga-
fullum hreyfingum sem og bros-
legum tímasetningum. Hallgrímur
hefur erfiðara verk að vinna, enda
er Schultz táknmynd stóískra efa-
semda, en hittir í mark sem mann-
legt hjarta sýningarinnar. Hitt
dúóið mynda þeir Oddur og Sigurð-
ur Þór í fjölmörgum hlutverkum
en njóta sín best sem hermenn-
irnir sem þrá að fylgja fyrirmælum.
Báðir skilja þeir vel hvernig lita má
kómedíu með djörfum ýkjum en
spara sér slík látalæti þangað til
þær hitta þráðbeint í mark.
Ekki er ofsögum sagt að á sviðinu
stendur hluti af landsliði íslenskra
grínleikara og Ólafía Hrönn sýnir
af hverju hún er fremst á meðal
jafningja, nánast óþekkjanleg
sem ofurstinn Boring og hr. Mann.
Hún gefur sig alla í hlutverkin og
uppsker hlátursgusur fyrir vikið.
Meðlimur í þessu sama lands-
liði er Pálmi sem stendur sig með
prýði. Hann hikar ekki við að fara
alla leið í sinni túlkun en ber tjón
vegna vondra ákvarðana sem skrif-
ast á leikstjóra og handritshöfund
sýningarinnar.
Nikolaj misstígur sig
Fyrrnefndur Nikolaj Cederholm
setti upphaf legu sýninguna upp í
Danmörku. Í heildina er úrvinnsl-
an á klassík Chaplins beitt og
hugmyndafræðilega sterk, í ætt
við Bertold Brecht. Leikhúsið er
af hjúpað sem ærslaleikur en fjörið
og léttleikinn geyma grafalvarleg
pólitísk skilaboð. Atriðin sem
tengja saman fyrri og seinni hluta
sýningarinnar virka afskaplega
vel, þar sem lífsgleði gyðinganna
er borin saman við hermarsér-
ingu nasistanna. Aftur á móti má
setja spurningarmerki við sumar
ákvarðanir Cederholms bæði sem
handritshöfundar og leikstjóra,
sérstaklega þegar líða tekur á sýn-
inguna.
Yfir höfuð er Einræðisherrann
fín og vel tímasett ádeila um öfga-
fulla hugmyndafræði, heim þar
sem fordómar um fólk af öðrum
uppruna vaða uppi. En þegar
líða tekur á sýninguna misstígur
Nikolaj sig í atriði þegar Napol-
ini, leikinn af Pálma, kemur fram
á sjónarsviðið. Þá dvína áhrifin
samstundis. Í stað einræðisherra
Bakteríu fá áhorfendur að horfa
upp á einræðisherra Spagettí, og
hans fylgdarlið sem er samansett
af furðulegum staðalímyndum.
Þar með upphefst langdreginn og
ófyndinn kaf li sem fer að mestu
fram á ensku, ekki leikurunum í
hag, og er uppfullur af gamaldags
grínleyfum.
Tímalaus skilaboð
Eitt af því jákvæða er að Ceder-
holm tekur listræna teymið sitt
frá Danmörku með á strendur
landsins og hressandi er að sjá
erlent sviðslistafólk aftur á stóru
sviði leikhúsanna. Leikmynd Kim
Witzel geymir marga útpælda
leyndardóma undir einföldu yfir-
borðinu, og víða er bryddað upp
á spennandi útfærslum. Búningar
Line Bech eru sömuleiðis áhrifa-
ríkir, þó varð blúnduþyngdin Ilmi
aðeins til ama. Aftur á móti standa
sviðshreyfingar og skrípalátatil-
búningur þeirra Önju Gaardbo og
Kaspers Ravnhøj algjörlega upp
úr. Hér er borin virðing fyrir grín-
sögunni og kynt síðan hressilega
undir, á slagsmálin og hópsenurnar
er stundum unun að horfa.
En án efa er Karl Olgeirsson ein
af stjörnum kvöldsins, hann sér um
tónlistarstjórn, píanóleik og leik-
hljóð. Í samvinnu við leikhópinn
tekst honum að skapa heildræna
og áhrifamikla hljóðmynd sem
töfrar fram bæði dýpt og kómík,
í skemmtileg ri samsuðu með
sviðshreyfingunum. Hann er ein-
staklingurinn sem tengir alla sýn-
inguna saman án þess að sýnast en
er ómetanlegur þátttakandi samt
sem áður.
Charlie Chaplin byrjaði að skrifa
The Great Dictator löngu áður en
stríðsglæpir nasistanna urðu heim-
inum ljósir, hann þekkti öll öfga-
merkin og þær hættur sem fordóm-
ar bera með sér. Einræðisherrann
inniheldur tímalaus skilaboð um
mikilvægi umburðarlyndis, kær-
leika og friðar. Öfgahægrihreyf-
ingar eru enn á ný að rísa í Evrópu
og sýningin er þörf áminning um
hættur sem í því felast. Lokaræða
rakarans er ennþá áhrifamikið og
framúrstefnulegt uppbrot.
Leikarahópurinn er með því
sterkasta sem hefur sést á sviðinu
nýlega og sýningin ber krafti hans
vitni, þrátt fyrir eitt gífurlega gall-
að atriði – en eitt hliðarspor má
ekki lita alla sýninguna.
Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Sigurður skín í
eftirminnilegri sýningu sem ásamt
því að framkalla hlátur boðar kær-
leik og umburðarlyndi.
Ærslafull, áhrifamikil og
bláköld alvara Einræðisherrans
Sigurður er algjörlega öruggur í túlkun sinni. MYND/HÖRÐUR SVEINSSON
Laus er staða organista og kórstjóra við
Grundarfjarðarkirkju frá og með 1. febrúar 2019
Í Grundarfirði búa rúmlega 850 manns og er þar hefð fyrir miklu og góðu
tónlistarlífi. Um er að ræða 50% starf. Laun eru greidd skv. kjarasamningi FÍH.
Í Grundarfjarðarkirkju er 13 radda pípuorgel smíðað af þýska orgelsmiðnum
Reinhart Tzschöckel. Einnig er Atlas-flygill í kirkjunni.
Áhugasamir hafi samband við sóknarprest, sr. Aðalstein Þorvaldsson í síma 862 8415
eða formann sóknarnefndar Guðrúnu M. Hjaltadóttur í síma 899 5451. Umsóknir skulu
sendar á netfangið skallabudir@simnet.is
Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2019
Sóknarnefnd
Grundarfjarðarkirkja
Job.is
Þú finnur draumastarfið á
5 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R44 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING